Nations Bible

Marcos 9

316-biblían · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

1„Hlustið nú vel,“ sagði hann við þá. „Sumir þeirra sem eru hér í dag munu sjá konungsríki Guðs koma í fullum krafti áður en þeir deyja.“ 2Sex dögum síðar tók Jesús þá Pétur, Jakob og Jóhannes með sér upp á hátt fjall þar sem þeir gátu verið einir. Þar urðu þeir vitni að því þegar Jesús umbreyttist fyrir framan þá. 3Fötin hans urðu skyndilega glampandi skjannahvít, hvítari en nokkuð annað 4og Elía og Móse birtust á fjallinu með þeim og töluðu við Jesú. 5„Kennari,“ kallaði Pétur til Jesú, „þetta er góður staður. Við gætum sett upp þrjú tjöld, eitt fyrir þig, eitt fyrir Móse og eitt fyrir Elía.“ 6Hann sagði þetta bara til að segja eitthvað í þessum ótrúlegu aðstæðum – þeir Jakob og Jóhannes voru allir orðlausir af hræðslu. 7Stórt ský færðist yfir þá og rödd drundi út úr því. „Þetta er sonur minn, sem ég elska,“ sagði röddin. „Hlustið á hann!“ 8Skyndilega litu þeir í kringum sig og sáu engan þarna lengur nema Jesú. 9Þegar þeir komu niður af fjallinu brýndi Jesús fyrir þeim að þeir mættu ekki segja neinum frá því sem þeir höfðu séð – ekki fyrr en eftir að Mannssonurinn væri risinn upp frá dauðum. 10Þeir sögðu þess vegna engum frá þessu, en tóku þetta til sín og veltu því lengi fyrir sér hvað Jesús ætti eiginlega við með því að hann myndi „rísa upp frá dauðum“. 11„Af hverju segja lögmálskennararnir að Elía þurfi fyrst að koma aftur?“ spurðu þeir hann. 12„Það er rétt, Elía kemur vissulega aftur áður og endurreisir allt. En það stendur í ritningunni að Mannssonurinn muni þjást og fólk muni hæðast að honum. 13Elía er kominn aftur og fólkið hefur komið fram við hann eins og því sýndist, alveg eins og stendur í ritningunni.“

14Þegar Jesús kom aftur til hinna lærisveinanna sá hann að þeir voru umkringdir fólki, og lögmálskennararnir voru í djúpum samræðum við þá. 15Fólkið var spennt að sjá Jesú og hljóp til hans til að heilsa honum. 16„Um hvað voruð þið að tala við lærisveinana mína?“ spurði Jesús lögmálskennarana. 17„Kennari,“ svaraði einn þeirra, „ég kom hingað til þín með son minn – hann er haldinn mállausum anda 18sem þjáir hann endalaust, lætur hann froðufella og gnísta tönnum. Sonur minn er að veslast upp. Ég bað lærisveinana þína um að kasta andanum út en þeir gátu það ekki.“ 19„Mikið eruð þið trúlausir!“ sagði Jesús. „Hvað á ég eiginlega að gera við ykkur? Jæja, komið með hann til mín.“ 20Þeir komu með strákinn til hans. Um leið og hann sá Jesú byrjaði andinn að engjast um í stráknum, sem froðufelldi og féll til jarðar. 21„Hversu lengi hefur hann verið svona?“ spurði Jesús föður stráksins. „Síðan hann var barn,“ svaraði hann. 22„Þessi andi hefur margoft reynt að drepa hann með því að kasta honum í eld eða vatn. Hjálpaðu okkur ef þú mögulega getur, gerðu það!“ 23„Allt er mögulegt ef þú trúir,“ svaraði Jesús. 24„Meistari,“ hrópaði maðurinn með tárin í augunum, „ég trúi! Hjálpaðu mér með vantrúna!“ 25Jesús leit á fólkið sem hafði safnast saman í kringum þá. „Mállausi og heyrnarlausi andi,“ sagði hann við illa andann, „ég skipa þér að koma út úr honum og angra hann aldrei framar!“ 26Andinn öskraði hástöfum, engdist um í stráknum og fór út úr honum. Strákurinn lá hreyfingarlaus eftir á jörðinni. „Er hann dáinn?“ spurði einhver. 27En Jesús tók í höndina á honum til að reisa hann á fætur og hann stóð upp. 28Þegar þeir voru komnir heim spurðu lærisveinarnir hann: „Af hverju gátum við ekki kastað andanum út?“ 29„Þið kastið ekki út svona verum nema með bæn og föstu,“ svaraði Jesús.

30Síðan fóru þeir þaðan og laumuðust í gegnum Galíleu, svo enginn tæki eftir þeim. 31„Fólk á eftir að handtaka Mannssoninn og drepa hann,“ sagði hann við þá á leiðinni, „en hann mun rísa upp aftur þremur dögum eftir að hann hefur verið drepinn.“ 32Þeir skildu þetta ekki en þorðu ekki að spyrja hann nánar út í það.

33„Jæja,“ sagði Jesús við þá þegar þeir voru komnir á áfangastað í Kapernaúm, „hvað voruð þið að ræða ykkar á milli á leiðinni hingað?“ 34Þeir vildu ekki svara honum, því á leiðinni höfðu þeir verið að rífast um hver þeirra væri bestur. 35Jesús fékk sér sæti og safnaði lærisveinunum tólf í kringum sig. „Sá sem vill verða fyrstur,“ sagði hann, „verður að vera síðastur. Hann verður að vera þjónn allra.“ 36Hann kallaði barn til sín og tók það í fangið. 37„Ef þið takið á móti barni eins og þessu í mínu nafni,“ sagði hann við þá, „takið þið á móti mér. Og ef þið takið á móti mér takið þið ekki á móti mér, heldur þeim sem sendi mig.“

38„Kennari,“ sagði Jóhannes, „við sáum mann kasta út djöflum í þínu nafni. En hann var ekki einn af okkur, þannig að við bönnuðum honum að gera það.“ 39„Það hefðuð þið alls ekki átt að gera,“ svaraði Jesús. „Fólk sem getur gert kraftaverk í mínu nafni er ekki á móti mér. 40Sá sem er ekki á móti okkur er með okkur. 41Sá sem svo mikið sem gefur ykkur vatnsglas í mínu nafni vegna þess að þið tilheyrið Kristi fær svo sannarlega laun fyrir það. 42Og sá sem leiðir börnin mín sem trúa á mig afvega væri betur settur ef hann hengdi stóran stein um hálsinn á sér og henti sér í sjóinn. 43Ef höndin á þér leiðir þig í villu skaltu skera hana af þér! Það er skárra að vera einhentur en að fara með tvær hendur til helvítis, í eldinn sem slokknar aldrei, 44þar sem ormarnir deyja aldrei og logarnir brenna að eilífu. 45Og ef fóturinn á þér leiðir þig í villu skaltu skera hann af þér! Það er skárra að vera haltur en að fara með tvo fætur til helvítis, í eldinn sem slokknar aldrei, 46þar sem ormarnir deyja aldrei og logarnir brenna að eilífu. 47Og ef augað í þér leiðir þig í villu skaltu stinga það úr þér! Það er skárra að fara eineygður inn í konungsríki Guðs en að vera kastað í eldinn í helvíti með bæði augun, 48þar sem ormarnir deyja aldrei og logarnir brenna að eilífu. 49Eldurinn saltar okkur öll. 50Salt er ágætt en ef það missir saltbragðið er ekki hægt að salta það aftur. Verið þess vegna vel sölt og lifið í friði hvert við annað.“

¿Sabías que…?

La transfiguración y la enseñanza en el camino

  • Seis días después, Jesús llevó a Pedro, Santiago y Juan solos a un monte alto, y fue transfigurado delante de ellos. Pedro, llamado originalmente Simón, era pescador de Betsaida, en el mar de Galilea. Santiago, hermano mayor de Juan e hijo de Zebedeo, también era pescador y estuvo presente con Pedro y Juan en la transfiguración.Fuentes: el propio texto bíblico · Simon Peter · James (Son of Zebedee)
  • En el monte alto, Elías, el tisbita y el Elías del Nuevo Testamento, apareció con Moisés, hablando con Jesús. Mientras bajaban, los discípulos preguntaron por qué los escribas dicen que Elías debe venir primero. Jesús respondió que Elías en efecto viene primero y que ya ha venido.Fuentes: el propio texto bíblico · Elijah
  • Jesús y los discípulos pasaron por Galilea, pero él no quería que nadie lo supiera, porque los estaba enseñando, y llegaron a Capernaúm. Capernaúm, la ciudad de Nahúm, era una ciudad de Galilea que se convirtió en la propia ciudad de Jesús después de su expulsión de Nazaret. Los judíos llamaban Galil a una llanura elevada entre las montañas de Neftalí, y la región llegó a llamarse Galilea de los gentiles.Fuentes: el propio texto bíblico · Capernaum · Galilee

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 30

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Fuente: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.