Nations Bible

Marcos 8

316-biblían · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

1Einu sinni hafði sérstaklega mikill mannfjöldi safnast í kringum Jesú. Allir voru matarlausir, og Jesús kallaði lærisveina sína til sín. 2„Sjáiði allt þetta vesalings fólk,“ sagði hann við þá. „Það hefur verið hérna í þrjá daga og hefur ekkert að borða. 3Flest þeirra er langt að komið – ef ég sendi það heim matarlaust líður yfir það af hungri á leiðinni.“ 4„En hvar ættum við eiginlega að fá mat handa öllu þessu fólki hérna úti í óbyggðunum?“ spurðu lærisveinarnir. 5„Hversu mörg brauð eruð þið með?“ spurði Jesús. „Sjö,“ svöruðu þeir. 6Jesús lét fólkið setjast á jörðina. Síðan tók hann brauðin sjö, þakkaði Guði fyrir þá og byrjaði að rífa þau í bita, og lét lærisveinana útdeila þeim til fólksins. 7Þeir voru líka með nokkra fiska með sér, sem Jesús blessaði og lét þá gefa fólkinu. 8Allir borðuðu þar til þeir voru orðnir saddir, og lærisveinarnir söfnuðu síðan leifunum saman þar til þeir voru komnir með sjö fullar körfur. 9Þegar allir voru búnir að borða – um fjögur þúsund manns samtals – sendi Jesús fólkið af stað heim.

10Eftir það steig hann um borð í bát með lærisveinunum og þeir fóru af stað til Dalmanútasvæðisins. 11Þar komu farísearnir til hans og vildu fá hann til að sýna þeim kraftaverk til að sanna sig fyrir þeim. 12Jesús andvarpaði djúpt. „Þetta fólk er æst í sannanir,“ sagði hann, „en það er einfaldlega ekki í boði.“ 13Síðan fór hann þaðan, steig um borð í bátinn og sigldi aftur yfir vatnið.

14Lærisveinarnir höfðu gleymt að taka með sér mat áður en þeir lögðu af stað, og voru bara með eitt brauð með sér í bátnum. 15„Gætið ykkar á súrdeigi faríseanna og súrdeigi Heródesar,“ sagði Jesús við þá. 16Lærisveinarnir skildu ekki alveg hvað það átti að þýða. „Hann hlýtur að vera að meina það að við erum ekki með brauð með okkur,“ ákváðu þeir að lokum. 17„Haldið þið virkilega að ég sé að tala um brauðið sem þið höfðuð með ykkur?“ sagði Jesús þegar hann heyrði þetta. „Eruð þið í alvörunni ekki búnir að ná þessu? 18Þið eruð með augu og eyru – sjáið þið ekki og heyrið? Eruð þið búnir að gleyma öllu? 19Hversu mörgum körfum fullum af matarleifum söfnuðuð þið þegar ég braut brauðin fyrir fimm þúsund manna hópinn?“ „Tólf,“ svöruðu þeir. 20„Og hversu mörgum körfum fullum af matarleifum söfnuðuð þið þegar ég braut brauðin fyrir fjögur þúsund manna hópinn?“ spurði Jesús. „Sjö,“ svöruðu þeir. 21„Skiljið þið þetta virkilega ekki?“ sagði Jesús.

22Þegar Jesús kom til Betsaídu kom fólk til hans með blindan mann og bað Jesú um að snerta hann. 23Jesús tók í höndina á blinda manninum og leiddi hann út úr þorpinu. Hann hrækti í augu mannsins og snerti hann svo. „Sérðu eitthvað?“ spurði hann manninn. 24Maðurinn leit upp. „Jú,“ svaraði hann, „ég sé fólk á gangi – það lítur út eins og tré!“ 25Jesús lagði þá aftur hendurnar á augu mannsins og lét hann síðan horfa upp aftur. Við það fékk maðurinn sjónina og sá fólkið í kringum sig greinilega. 26Jesús sendi hann af stað heim. „Farðu ekki inn í þorpið,“ sagði hann, „og segðu engum í þorpinu frá þessu.“

27Eftir þetta fór Jesús af stað með lærisveinum sínum til þorpanna í sesarísku Filippí. „Hvað er fólk að segja um mig?“ spurði hann lærisveinana á leiðinni. „Hver er sagt að ég sé?“ 28„Jóhannes skírari, eða Elía,“ svöruðu þeir, „eða einn af spámönnunum.“ 29„En hver haldið þið að ég sé?“ spurði hann. „Þú ert Kristur,“ svaraði Pétur. 30En Jesús sagði þeim að þeir mættu ekki segja neinum hver hann væri. 31Hann útskýrði fyrir þeim að Mannssonurinn myndi þurfa að ganga í gegnum miklar þjáningar og höfnun öldunganna, æðstuprestanna og lögmálskennaranna. Að lokum yrði hann tekinn af lífi en myndi síðan rísa upp þremur dögum síðar. 32Allt þetta sagði hann af svo mikilli ákveðni að Pétri fannst einhver þurfa að gagnrýna hann. „Hvernig geturðu sagt svona lagað?“ byrjaði hann. 33Jesús leit á hina lærisveinana. „Burt með þig, Satan!“ sagði hann. „Þetta er ekki frá Guði komið, heldur frá mönnum.“

34Hann kallaði til sín bæði mannfjöldann og lærisveina sína. „Allir þeir sem vilja fylgja mér verða að afneita sjálfum sér, taka upp krossinn sinn, og koma með mér,“ sagði hann. 35„Sá sem reynir að bjarga lífi sínu mun missa það, en sá sem missir lífið vegna mín og fagnaðarerindisins mun bjarga lífi sínu. 36Það er ekkert svo verðmætt að það sé þess virði að eignast það ef það kostar mann sálina. 37Er ekki sálin það dýrmætasta sem hægt er að eiga? 38Ef þú skammast þín fyrir mig og það sem ég segi á þessum síðustu og verstu tímum mun Mannssonurinn skammast sín fyrir þig þegar hann kemur með englunum í dýrð Guðs.“

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Ver quién es Jesús

  • Después de que unos cuatro mil hombres comieron y se recogieron siete cestas de pedazos, Jesús entró en la barca con sus discípulos y fue a la región de Dalmanuta, un nombre que aparece solo en este capítulo. Era un lugar en el lado oeste del mar de Galilea, cerca de Magdala. En el pasaje paralelo de Mateo, él llega a los límites de Magdala, que probablemente era el nombre griego de una de las torres de vigilancia de la orilla occidental del lago.Fuentes: el propio texto bíblico · Dalmanutha
  • En Betsaida, algunas personas trajeron a un ciego, y Jesús lo llevó de la mano fuera de la aldea, le escupió en los ojos y le puso las manos encima. Al principio, el hombre veía a la gente como árboles que caminaban; solo cuando Jesús volvió a poner las manos sobre los ojos del hombre se le restauró la vista por completo. La ciudad se describe en el lado este del lago, a unas dos millas subiendo el Jordán, en Gaulanítide; Felipe el tetrarca la amplió y la llamó Julias, por la hija del emperador, aunque algunos han supuesto que había una sola Betsaida, edificada a ambos lados del lago, cerca de donde el Jordán entra en él.Fuentes: el propio texto bíblico · Bethsaida
  • Jesús y sus discípulos siguieron hacia las aldeas de alrededor de Cesarea de Filipo, ciudad situada unas veinte millas al norte del mar de Galilea, junto a la base del monte Hermón, en el nacimiento superior del Jordán, y descrita como el límite norte de su ministerio público. Según algunos, antes había sido Baal-Gad o Baal-Hermón, un santuario cananeo de Baal, y después se llamó Panio o Paneas, por una caverna profunda llena de agua cerca de la ciudad. Allí Pedro dijo: "Tú eres el Cristo"; y cuando reprendió a Jesús por enseñar que el Hijo del Hombre debía sufrir muchas cosas, ser muerto y resucitar después de tres días, Jesús respondió: "Ponte detrás de mí, Satanás", nombre que significa adversario o acusador.Fuentes: el propio texto bíblico · Caesarea Philippi · Satan

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Caesarea Philippi · Hoy: Banias · 33.246, 35.693 · versículo 27
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 27

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Fuente: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.