Nations Bible

Marcos 10

316-biblían · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

1Síðan fór hann þaðan til Júdeu og austur fyrir ána Jórdan. Eins og alltaf safnaðist mikill mannfjöldi í kringum hann og hann kenndi þeim eins og hann var vanur að gera. 2Hópur farísea kom til hans og reyndi að leggja fyrir hann gildru með því að spyrja hann hvort maður mætti skilja við konuna sína. 3„Hvað sagði Móse um það?“ spurði Jesús þá á móti. 4„Móse leyfir að hann skilji við hana með skriflegu skjali,“ svöruðu þeir. 5„Hann setti ykkur þessa reglu vegna þess að þið eruð svo miskunnarlausir,“ sagði Jesús. 6„Í upphafi skapaði Guð bæði karla og konur. 7Maðurinn fer frá föður sínum og móður og tengist konunni sinni. 8Þau verða eitt, eins og tvær manneskjur í einum líkama. 9Og maðurinn ætti ekki að rífa í sundur það sem Guð hefur tengt saman.“ 10Þegar þeir voru komnir heim spurðu lærisveinarnir Jesú aftur út í þetta. 11„Sá sem skilur við konuna sína og giftist annarri konu,“ sagði hann, „heldur framhjá henni. 12Og ef kona skilur við manninn sinn og giftist öðrum manni heldur hún framhjá honum.“

13Fólk kom til Jesú með ung börn og vildi fá hann til að snerta þau, en lærisveinarnir skömmuðu það. 14Jesús var ekki ánægður að sjá þetta. „Leyfið börnunum að koma til mín,“ sagði hann. „Þau mega það alveg! Konungsríki Guðs er fyrir fólk eins og þau.“ 15Muniði það að sá sem tekur ekki við konungsríki Guðs eins og barn kemst ekki þangað.“ 16Síðan tók hann börnin í fangið og blessaði þau.

17Einu sinni þegar Jesús var úti á göngu kom maður hlaupandi til hans og féll á kné fyrir framan hann. „Góði kennari!“ sagði hann við Jesú. „Hvað þarf ég að gera til þess að ég fái örugglega eilíft líf?“ 18„Hvað meinarðu með því að ég sé „góður“?“ spurði Jesús hann. „Guð er sá eini sem er „góður“. 19Þú þekkir boðorðin: Ekki halda framhjá, ekki myrða, ekki stela, ekki ljúga, ekki svíkja, sýndu föður þínum og móður virðingu.“ 20„Kennari,“ svaraði maðurinn, „ég er búinn að halda öll þessi boðorð síðan ég var ungur.“ 21Jesús horfði ástúðlega á hann. „Þá vantar bara eitt uppá hjá þér,“ sagði hann. „Farðu og seldu allt sem þú átt og gefðu fátækum það sem þú færð fyrir það. Þá eignastu auðævi á himnum – komdu svo og fylgdu mér og berðu krossinn þinn.“ 22Það var mikið áfall fyrir manninn að heyra þetta. Hann fór þaðan dapur í bragði, því hann átti miklar eigur. 23Jesús leit á lærisveinana. „Mikið er erfitt fyrir ríkt fólk að komast inn í konungsríki Guðs,“ sagði hann. 24Þetta fannst lærisveinunum merkilegt að heyra. „Það er erfitt fyrir þá sem treysta á peningana sína að komast inn í konungsríki Guðs,“ sagði Jesús. 25„Það væri auðveldara fyrir kameldýr að komast í gegnum nálarauga en fyrir ríkan mann að komast inn í konungsríki Guðs.“ 26Lærisveinarnir voru alveg dolfallnir. „Hvernig getur nokkur þá bjargast?“ veltu þeir fyrir sér. 27Jesús heyrði þetta. „Það er vissulega ómögulegt fyrir fólk,“ sagði hann, „en ekki fyrir Guð, sem getur allt.“ 28„En hvað með okkur?“ spurði Pétur. „Við yfirgáfum allt til að fylgja þér.“ 29„Ég get sagt ykkur það,“ svaraði Jesús, „að allir sem hafa yfirgefið heimili sitt, bræður, systur, föður, móður, eiginkonu, börn eða eigur vegna mín og fagnaðarerindisins 30fá hundrað sinnum meira til baka fyrir það: heimili, bræður, systur, mæður, börn, eigur – og ofsóknir – og eilíft líf í framtíðinni. 31En margir þeirra sem eru fyrstir verða síðastir og margir þeirra sem eru síðastir verða fyrstir.“

32Á leiðinni upp til Jerúsalem urðu lærisveinarnir tólf hræddir þegar Jesús sagði þeim frá því sem myndi koma fyrir hann. 33„Nú komum við bráðum til Jerúsalem,“ sagði hann. „Þar munu æðstuprestarnir og lögmálskennararnir handtaka Mannssoninn, dæma hann til dauða og leyfa heiðingjunum að taka hann. 34Þeir munu hæðast að honum, beita hann ofbeldi, hrækja á hann og drepa hann, og þremur dögum síðar mun hann rísa upp aftur.“

35„Kennari,“ sögðu Jakob og Jóhannes Sebedeussynir við Jesú, „okkur langar að biðja þig um að gera svolítið fyrir okkur.“ 36„Nú,“ svaraði Jesús. „Hvað viljið þið að ég geri fyrir ykkur?“ 37„Þegar þú kemst til valda viljum við fá að sitja sinn hvorum megin við þig,“ svöruðu þeir. 38„Þið vitið ekki um hvað þið eruð að biðja,“ sagði Jesús. „Þið viljið ekki drekka það sem ég þarf að drekka, eða vera skírðir þeirri skírn sem ég verð skírður.“ 39„Jú, víst,“ andmæltu þeir. Jesús sagði: „Þið fáið vissulega að drekka það sem ég þarf að drekka, og verðið skírðir þeirri skírn sem ég verð skírður. 40En það er ekki mitt að ákveða hverjir sitji sinn hvorum megin við mig – þeir verða þar sem eiga að vera þar.“ 41Þegar hinir lærisveinarnir tíu heyrðu þetta urðu þeir fúlir við Jakob og Jóhannes. 42En Jesús kallaði þá til sín. „Þið vitið að svokallaðir leiðtogar heiðingjanna níðast á þegnum sínum og undiroka þá. 43Þannig verður það ekki hjá ykkur. Sá ykkar sem vill vera merkilegastur verður að þjóna hinum. 44Sá sem vill gerast leiðtogi verður að gerast þjónn. 45Mannssonurinn kom ekki til að láta þjóna sér, heldur til að frelsa aðra með því að fórna lífi sínu.“

46Þegar Jesús var kominn í gegnum borgina Jeríkó og var á leið út úr henni aftur með lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat blindur maður, Bartímeus Tímeusarson, þar við veginn og betlaði. 47Þegar hann heyrði að þetta væri Jesús frá Nasaret byrjaði hann að hrópa á hann. „Jesús, sonur Davíðs! Sýndu mér miskunn!“ 48Fólkið sagði honum að þegja en hann hrópaði bara enn hærra: „Sonur Davíðs! Sýndu mér miskunn!“ 49Jesús stoppaði og sagði þeim að koma með Bartímeus til sín. Fólkið kallaði þá á Bartímeus. „Komdu, félagi,“ sagði það við hann. „Hann er að kalla á þig!“ 50Bartímeus henti af sér skikkjunni, stóð upp og fór til Jesú. 51„Hvað viltu að ég geri fyrir þig?“ spurði Jesús hann. „Mig langar að fá sjónina,“ svaraði blindi maðurinn. 52„Gott og vel,“ sagði Jesús. „Trúin þín hefur læknað þig.“ Um leið fékk hann sjónina og byrjaði að fylgja Jesú.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Discipulado y Fe en el Camino a Jerusalén

  • Mientras Jesús y Sus seguidores viajaban hacia Jerusalén pasando por Jericó, en el valle del Jordán, encontraron a Bartimeo, cuyo nombre significa hijo de Timeo. Sentado junto al camino como un mendigo ciego, aclamó repetidamente a Jesús como 'Hijo de David' antes de recobrar la vista y seguirlo por el camino.Fuentes: Jericho · Bartimaeus · Timaeus · el propio texto bíblico
  • Santiago y Juan, los hijos del pescador galileo Zebedeo, le pidieron a Jesús los dos lugares de mayor honor a Su derecha y a Su izquierda. Jesús aprovechó la petición para contrastar a los gobernantes gentiles que se enseñorean de los demás con el reino de Dios, donde quien quiera ser el primero debe hacerse servidor y esclavo de todos.Fuentes: James (Son of Zebedee) · John the Apostle · Zebedee · el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Jordan · Hoy: Jordan River · 31.761, 35.558 · versículo 1
  • Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 1
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 17, 32, 33
  • Jericho · Hoy: Tell el Alayiq · 31.852, 35.436 · versículo 46
  • Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 47

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Fuente: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.