Mateo 26
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Ráðagerð um að svíkja Jesú
1Þegar Jesús hafði lokið ræðu sinni, sagði hann við lærisveinana:
2„Þið vitið að eftir tvo daga koma páskarnir og þá verð ég svikinn og krossfestur.“ 3Um svipað leyti héldu prestarnir fund, ásamt öðrum embættismönnum Gyðinga, í höll Kaífasar æðsta prests. 4Þeir voru að bollaleggja hvernig þeir gætu handtekið Jesú svo lítið bæri á og líflátið hann. 5„En ekki á sjálfum páskunum, því þá er svo margt aðkomufólk í borginni og hætt við óeirðum,“ samþykktu þeir.
Smurningin í Betaníu
6Jesús fór til Betaníu, heim til Símonar holdsveika. 7Meðan hann mataðist, kom þangað inn kona sem hélt á flösku með mjög dýrri ilmolíu, og hellti henni yfir höfuð hans.
8Lærisveinarnir urðu gramir og sögðu sín á milli:
„Til hvers er þessi sóun? Þetta hefði mátt selja fyrir stórfé og gefa peningana fátækum.“ 10Jesús las hugsanir þeirra og sagði:
„Hví eruð þið að hryggja konuna? Hún gerði góðverk á mér. 11Þið hafið ávallt fátæka hjá ykkur, en ekki mig. 12Hún hellti ilmvatni þessu yfir mig til þess að búa líkama minn til greftrunar. 13Hennar mun verða minnst og þess getið sem hún gerði, hvar sem fagnaðarboðskapurinn verður fluttur.“
Júdas samþykkir að svíkja Jesú
14Þá fór einn postulanna tólf, Júdas Ískaríot, til æðstu prestanna 15og spurði:
„Hve mikið viljið þið borga mér fyrir að koma Jesú í hendur ykkar?“ Þeir greiddu honum þrjátíu silfurpeninga. 16Upp frá því beið Júdas eftir hentugu tækifæri til að svíkja Jesú í hendur þeirra.
Jesús heldur páska með lærisveinunum
17Á fyrsta degi páskahátíðarinnar (Gyðingar fjarlægðu þegar allt súrdeig – gerbrauð – af heimilum sínum) komu lærisveinarnir til Jesú og spurðu hann:
„Hvar eigum við að undirbúa páskamáltíðina?“
18„Farið inn í borgina,“ svaraði Jesús, „finnið mann nokkurn og segið við hann: „Meistari okkar segir: Minn tími er kominn. Hjá þér vil ég halda páska með lærisveinum mínum.“ “
19Lærisveinarnir gerðu eins og Jesús sagði og undirbjuggu páskamáltíðina. 20Þetta kvöld, þegar hann var sestur til borðs ásamt lærisveinunum tólf, sagði hann:
„Ég veit að einn ykkar mun svíkja mig.“ 22Hryggð og ótti greip lærisveinana og þeir spurðu hver um sig: „Ekki þó ég?“ Jesús svaraði:
23„Það er sá sem ég þjónaði fyrst í kvöld.“
24„Ég verð að deyja eins og spáð var, en vei þeim manni sem því veldur. Betra væri honum að hann hefði aldrei fæðst.“ 25Júdas sem varð til þess að svíkja hann, spurði líka: „Er það ég?“ Og Jesús svaraði: „Já.“
Jesús stofnar heilaga kvöldmáltíð
26Meðan á máltíðinni stóð tók Jesús brauð, blessaði það og braut í sundur, rétti lærisveinunum og sagði:
„Takið þetta og neytið, það er líkami minn.“ 27Og hann tók bikar með víni, gjörði þakkir, rétti þeim og sagði: „Drekkið allir hér af, 28því þetta er blóð mitt, innsigli nýja sáttmálans. Því er úthellt til syndafyrirgefningar fyrir marga. 29Takið eftir þessum orðum mínum: Ég mun ekki drekka vín á ný fyrr en ég drekk það nýtt með ykkur í ríki föður míns.“ 30Þegar þeir höfðu sungið lofsöng fóru þeir út til Olíufjallsins.
Jesús segir fyrir um afneitun Péturs
31Jesús sagði við þá: „Í nótt munuð þið allir yfirgefa mig. Í Ritningunni stendur að Guð muni slá hirðinn og hjörðin tvístrast. 32En eftir að ég er risinn upp frá dauðum fer ég til Galíleu og hitti ykkur þar.“
33„Þótt allir aðrir yfirgefi þig, mun ég ekki gera það,“ sagði Pétur. 34Jesús svaraði:
„Sannleikurinn er þó sá, að einmitt í nótt, áður en hani galar við sólarupprás, munt þú afneita mér þrisvar.“
35„Fyrr mun ég deyja!“ svaraði Pétur og allir hinir tóku í sama streng.
Bænin í Getsemane
36Jesús fór síðan með lærisveinana inn í garð sem heitir Getsemane, og bað þá að setjast niður meðan hann færi spölkorn lengra til að biðjast fyrir. 37Hann fékk með sér þá Pétur og bræðurna Jakob og Jóhannes Sebedeussyni. Mikill ótti og örvænting kom yfir Jesú og hann sagði: 38„Sál mín er buguð af ótta og angist allt til dauða. Bíðið hér og vakið með mér.“ 39Hann gekk lítið eitt lengra, hneig til jarðar og bað: „Faðir minn! Taktu þennan bikar frá mér ef mögulegt er, en verði þó þinn vilji en ekki minn.“
40Síðan kom hann aftur til lærisveinanna þriggja og fann þá sofandi.
„Pétur!“ kallaði hann, „gastu ekki einu sinni vakað með mér eina stund? 41Vakið og biðjið, til þess að þið fallið ekki í freistni. Andinn er fús, en holdið er veikt!“ 42Hann fór frá þeim aftur og bað: „Faðir! Ef ekki er unnt að taka þennan bikar frá mér án þess að ég tæmi hann, þá verði þinn vilji.“ 43Síðan sneri hann aftur til þeirra og fann þá enn sofandi, því þeir gátu ekki haldið augunum opnum. 44Hann yfirgaf þá enn og baðst fyrir í þriðja sinn með sömu orðum. 45Eftir það fór hann aftur til lærisveinanna og sagði: „Sofið þið enn og hvílist? Stundin er komin! Ég hef verið svikinn í hendur vondra manna. 46Standið upp, förum! Sjáið! Þarna kemur sá sem svíkur mig.“
Svik og handtaka í Getsemane
47Meðan hann var enn að tala kom Júdas, einn postulana tólf, og með honum fjöldi manna, sem vopnaðir voru sverðum og bareflum. Þessa menn höfðu leiðtogar Gyðinga sent. 48Júdas hafði sagt þeim að handtaka þann sem hann heilsaði með kossi, því að hann væri maðurinn sem þeir vildu ná. 49Júdas gekk því beint til Jesú og sagði:
„Sæll, meistari!“
50„Vinur minn,“ sagði Jesús, „hvers vegna komstu hingað?“ Þá gripu sendimennirnir Jesú. 51Einn lærisveina Jesú dró þá sverð úr slíðrum og hjó annað eyrað af þjóni æðsta prestsins.
52„Slíðraðu sverðið!“ sagði Jesús. „Þeir sem beita sverði munu falla fyrir sverði. 53Veistu ekki að ég gæti beðið föður minn um þúsundir engla okkur til varnar og hann mundi þegar í stað senda þá? 54En hvernig ættu orð Biblíunnar þá að rætast?“ 55Síðan ávarpaði Jesús mennina og sagði:
„Er ég hættulegur afbrotamaður, fyrst þið þurftuð að koma vopnaðir sverðum og bareflum til að handtaka mig? Ég hef gengið um á meðal ykkar og kennt daglega í musterinu en þið handtókuð mig ekki. 56En þetta, sem nú er að gerast er uppfylling spádóma Biblíunnar.“ Þá yfirgáfu allir lærisveinarnir hann og flúðu.
Jesús leiddur fyrir hæstarétt Gyðinga
57Þeir sem handtóku Jesú fóru nú með hann til bústaðar Kaífasar, æðsta prestsins, því þar voru allir leiðtogar Gyðinga saman komnir.
58Pétur læddist í humátt á eftir og smeygði sér inn í hallargarð æðsta prestsins og settist niður hjá þjónunum. Þar beið hann þess að sjá hvað yrði um Jesú.
59Æðstu prestarnir – og reyndar allur hæstiréttur Gyðinga – leituðu nú manna er borið gætu lognar sakir á Jesú. Ætlun þeirra var að höfða mál gegn honum og fá hann dæmdan til dauða. 60En þótt þeir fyndu marga sem vildu bera falsvitni, þá bar vitnisburði þeirra ekki saman. Að lokum fundust þó tveir sem sögðu: „Þessi maður sagði: „Ég er fær um að brjóta niður musteri Guðs og reisa það aftur á þrem dögum.“ “
62Þá stóð æðsti presturinn upp og sagði við Jesú: „Sagðir þú þetta? Svaraðu! Já, eða nei!“ 63Jesús þagði.
Þá hélt æðsti presturinn áfram og sagði: „Ég krefst þess í nafni hins lifandi Guðs, að þú svarir eftirfarandi spurningu: Heldur þú því fram að þú sért Kristur, Guðssonurinn?“
64„Já, ég er hann og þú munt síðar sjá mig, Krist, sitja við hægri hönd Guðs og koma á skýjum himinsins,“ svaraði Jesús. 65Þá reif æðsti presturinn klæði sín og hrópaði:
„Guðlast! Nú þurfum við ekki frekar vitnanna við. Þið heyrðuð hann allir segja það! Hver er nú dómur ykkar?“ Þeir hrópuðu:
„Hann skal deyja!“ 67Síðan hræktu þeir í andlit hans og slógu með prikum og sögðu: 68„Kristur! Gettu hver sló þig núna?“
Pétur afneitar Jesú og grætur
69Á meðan þetta fór fram sat Pétur úti í hallargarðinum. Þá kom til hans stúlka og sagði:
„Þú varst líka með Jesú og þið eruð báðir frá Galíleu.“ 70Þessu neitaði Pétur svo allir heyrðu og hrópaði reiðilega:
„Ég veit ekki um hvað þú ert að tala!“
71Seinna tók önnur stúlka eftir honum úti við hliðið og sagði við nærstadda: „Þessi maður var með Jesú frá Nasaret.“ 72Pétur sór og sárt við lagði: „Ég þekki alls ekki manninn.“
73Stuttu seinna komu þeir, sem þarna stóðu, til Péturs og sögðu: „Við vitum vel að þú ert einn af lærisveinum hans, því við heyrum á málfari þínu að þú ert frá Galíleu.“
74Þá tók Pétur að blóta og sverja og sagði: „Ég þekki alls ekki þennan mann!“ Og um leið og hann sleppti orðinu gól hani. Þá minntist Pétur orða Jesú: 75„Áður en hani galar, muntu þrisvar afneita mér.“ Og hann gekk út fyrir og grét sárt.

¿Sabías que…?
De la conspiración al arresto
- Los principales sacerdotes y los ancianos se reunieron en el patio de Caifás para planear un arresto en secreto. El diccionario bíblico de Easton (1897) lo identifica como sumo sacerdote del 27 al 36 d. C., durante todo el gobierno de Pilato, y como saduceo cuya esposa era hija de Anás, un antiguo sumo sacerdote. Acordaron no actuar durante la fiesta, por temor a un disturbio entre el pueblo.Fuentes: Caiaphas · el propio texto bíblico
- La unción tuvo lugar en Betania, una aldea en la ladera sureste del monte de los Olivos, a unas dos millas al este de Jerusalén, en el camino a Jericó; el nombre se vincula con las palmeras que crecían allí. Jesús estaba en la casa de Simón, un leproso de Betania, cuando una mujer derramó un perfume costoso sobre su cabeza mientras él estaba recostado a la mesa.Fuentes: Bethany · Simon · el propio texto bíblico
- Después de cantar un himno, Jesús y los discípulos salieron al monte de los Olivos, una sierra al este de Jerusalén, llamada así por los olivos de sus laderas y separada de la ciudad por el valle del Cedrón. Getsemaní, un olivar al pie de esa sierra, significa “prensa de aceite”; era un lugar al que Jesús solía retirarse con sus discípulos.Fuentes: Gethsemane · Mount of Olives · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Mount of Olives · 31.778, 35.246 · versículo 30
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículos 32, 69
- Gethsemane · 31.779, 35.239 · versículo 36
- Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 71
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org