Nations Bible

Mateo 27

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Jesús leiddur fyrir Pílatus

1Við dagrenningu hittust æðstu prestarnir og leiðtogarnir á ný til að ræða hvernig þeir ættu að fá Jesú dæmdan til dauða. 2Eftir það bundu þeir hann og sendu til Pílatusar, rómverska landstjórans.

Júdas hengir sig

3Þegar Júdasi, þeim er sveik hann, varð ljóst að Jesús hafði verið dæmdur til dauða, iðraðist hann gjörða sinna. Hann fór aftur með peningana til æðstu prestanna og hinna leiðtoganna og sagði:

4„Ég hef syndgað með því að svíkja saklausan mann.“

„Það er þitt mál og þú um það!“ svöruðu þeir hranalega. 5Þá hljóp hann inn í musterið, fleygði peningunum á gólfið, fór síðan burt og hengdi sig. 6Æðstu prestarnir tíndu peningana upp og sögðu:

„Okkur er óheimilt að setja þá í samskotabaukinn, því það er ólöglegt að leggja í hann peninga sem greiddir eru fyrir morð.“ 7Síðan ræddu þeir málið og ákváðu loks að kaupa akur nokkurn fyrir peningana, en þar fannst leir sem leirkerasmiðir notuðu við iðn sína. Þetta svæði gerðu þeir síðan að grafreit fyrir útlendinga sem létust í Jerúsalem, 8og það er ástæða þess að grafreiturinn er enn kallaður „Blóðakur“. 9Þar með rættist spádómur Jeremía: „Og ég tók þessa þrjátíu silfurpeninga – en á það mátu Ísraelsmenn hann – 10og keypti akur leirkerasmiðsins, eins og Drottinn hafði sagt mér að gera.“

Jesús frammi fyrir Pílatusi

11Nú stóð Jesús frammi fyrir Pílatusi, rómverska landsstjóranum.

„Ert þú Kristur, konungur Gyðinga,“ spurði landstjórinn.

„Já,“ svaraði Jesús. 12Þá tóku æðstu prestarnir og leiðtogar þjóðarinnar að bera fram ákærur, en hann svaraði engu.

13„Heyrirðu ekki hvað þeir segja?“ spurði Pílatus, 14og honum til mikillar furðu svaraði Jesús engu orði.

Í stað Barrabasar

15Landstjórinn var vanur að náða einn fanga ár hvert, á páskahátíðinni, einhvern þann sem fólkið kysi. 16Þetta árið var alræmdur glæpamaður að nafni Barrabas í fangelsi. 17Pílatus spurði fólkið sem hafði safnast saman framan við höllina: „Hvorn viljið þið að ég náði, Barrabas eða Jesú, sem kallast Kristur?“ 18Pílatusi var fullljóst að ástæðan fyrir því að leiðtogar Gyðinga höfðu handtekið Jesú var öfund vegna vinsælda hans meðal fólksins. 19En rétt í þessu, meðan Pílatus var að stjórna málaferlunum, var komið með eftirfarandi skilaboð frá konu hans:

„Láttu þennan góða mann í friði, því í nótt fékk ég hræðilega martröð hans vegna.“

20Meðan Pílatus var að íhuga skilaboðin frá konu sinni, kepptust æðstu prestarnir og leiðtogar fólksins við að telja mannfjöldanum trú um að best væri að fá Barrabas lausan, en Jesú tekinn af lífi. 21Þegar Pílatus spurði aftur:

„Hvorn þeirra viljið þið fá lausan?“ hrópaði múgurinn hátt: „Barrabas!“

22„Hvað á ég þá að gera við Jesú, sem kallast Kristur?“ spurði Pílatus.

„Krossfestu hann!“ hrópaði mannfjöldinn.

23„Hvers vegna?“ spurði Pílatus ákveðinn. „Hvað illt hefur hann gert?“ Þá hrópaði fólkið enn hærra:

„Krossfestu hann! Krossfestu hann!“

24Þegar Pílatus sá að hann kom engu til leiðar, og allt var að fara í upplausn, bað hann um skál með vatni, þvoði hendur sínar í augsýn mannfjöldans og sagði:

„Ég er saklaus af blóði þessa góða manns. Þið berið ábyrgðina!“ 25Og múgurinn kallaði á móti:

„Blóð hans komi yfir okkur og börnin okkar!“

26Þá lét Pílatus Barrabas lausan, en lét húðstrýkja Jesú og afhenti hann rómversku hermönnunum til krossfestingar.

Hermennirnir hæða Jesú

27Fyrst fóru þeir með hann í vopnabúrið og kölluðu saman alla herdeildina. 28Þeir afklæddu hann og færðu í skarlatsrauða skikkju. 29Síðan fléttuðu þeir kórónu úr hvössum þyrnum og settu hana á höfuð hans. Að því búnu létu þeir prik í hægri hönd hans – það átti að vera veldissproti – og krupu síðan frammi fyrir honum, hæddu hann og æptu: „Lengi lifi konungur Gyðinga!“ 30Og þeir hræktu á hann, rifu af honum prikið og börðu hann með því í höfuðið. 31Eftir þessa niðurlægingu færðu hermennirnir hann úr skikkjunni klæddu hann í hans eigin föt og fóru með hann til krossfestingar.

Konungurinn á krossi

32Á leiðinni til aftökustaðarins mættu þeir manni frá Kýrene í Afríku, Símoni að nafni, og neyddu hann til að bera kross Jesú. 33Þeir komu nú á stað sem kallast Golgata, en það þýðir „hauskúpuhæð“. 34Þar gáfu hermennirnir Jesú beiskt vín til deyfingar, en þegar hann hafði bragðað það, vildi hann það ekki.

35Eftir að hermennirnir höfðu krossfest Jesú vörpuðu þeir hlutkesti um föt hans, 36en síðan settust þeir niður til að halda vörð um hann. 37Þeir settu skilti á krossinn og þar stóð:

Jesús, konungur Gyðinga.

38Tveir ræningjar voru einnig krossfestir þennan sama morgun. 39Fólk, sem leið átti hjá, hreytti ónotum í Jesú, hristi höfuðið og sagði: 40„Þú ert maðurinn sem getur brotið niður musterið og reist það aftur á þremur dögum. Komdu nú niður af krossinum, ef þú ert sonur Guðs!“

41Og æðstu prestarnir og leiðtogarnir hæddu hann einnig og sögðu með fyrirlitningu: „Hann bjargaði öðrum, en sjálfum sér getur hann ekki bjargað. Þú þykist vera konungur Ísraels. Komdu nú niður af krossinum og þá skulum við trúa á þig! Hann sagðist treysta Guði. Hvers vegna bjargar Guð honum þá ekki, ef hann hefur mætur á honum? Hann sagðist vera sonur Guðs, var það ekki?“ 44Á sama hátt smánuðu ræningjarnir hann.

Jesús deyr á krossinum

45Um hádegið varð myrkur um alla jörðina í þrjár stundir, allt til klukkan þrjú.

46En þá hrópaði Jesús hátt: „Elí, Elí, lama sabaktaní!“ Það þýðir „Guð minn, Guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig?“ 47Sumir þeirra, sem þarna stóðu, misskildu þetta og héldu að hann væri að kalla á Elía spámann. 48Einn þeirra hljóp þá til og fyllti svamp af súru víni, setti hann á stöng og rétti Jesú það að drekka.

49„Láttu hann eiga sig,“ sögðu hinir. „Sjáum til hvort Elía kemur að bjarga honum.“ 50Þá hrópaði Jesús aftur og gaf upp andann. 51Og í sama bili rofnaði fortjaldið í musterinu í tvennt, – en það huldi hið allra helgasta, – ofan frá og niður úr, jörðin skalf og björgin klofnuðu. 52Þá opnuðust margar grafir og heilagt fólk, sem þar hafði legið, lifnaði við. 53Eftir upprisu Jesú fór þetta fólk út úr gröfunum og gekk inn í Jerúsalem og birtist þar mörgum.

54Þegar foringinn og hermenn hans, sem gættu Jesú, fundu jarðskjálftann og sáu hvað gerðist, greip þá skelfing og þeir hrópuðu:

„Þessi maður hefur áreiðanlega verið sonur Guðs!“

55Margar konur, sem farið höfðu með Jesú frá Galíleu og þjónað honum, fylgdust úr fjarlægð með því sem fram fór. 56Þeirra á meðal var María Magdalena, María móðir Jakobs og Jóse, og móðir Jakobs og Jóhannesar (Sebedeussona.)

Jesús grafinn í gröf Jósefs

57Þegar kvöld var komið fór Jósef frá Arímaþeu, ríkur maður og vinur Jesú, 58til Pílatusar og bað um lík Jesú. Pílatus lét honum það eftir. 59Jósef tók þá líkið, vafði það í hreint léreft 60og lagði í gröf, sem hann hafði nýlega látið höggva handa sjálfum sér. Síðan velti hann stórum steini fyrir dyr grafarinnar og fór burt. 61María Magdalena og María hin sátu skammt frá og fylgdust með því sem gerðist.

Pílatus setur vörð

62Daginn eftir – að kvöldi fyrsta dags páskahátíðarinnar – fóru farísearnir og æðstu prestarnir til Pílatusar 63og sögðu: „Herra, svikari þessi sagði eitt sinn: „Eftir þrjá daga mun ég rísa upp.“ 64Við viljum því biðja þig að setja vörð við gröfina í þrjá daga til þess að lærisveinar hans komi ekki og steli líkinu, og segi svo öllum að hann hafi lifnað við. Ef svo færi, yrðu seinni svikin verri hinum fyrri!“ 65„Notið ykkar eigin musterislögreglu,“ svaraði Pílatus, „hún ætti að geta gætt grafarinnar nægilega vel.“ 66Þeir fóru og gengu tryggilega frá gröfinni. Síðan settu þeir innsigli keisarans á steininn í viðurvist varðmannanna, til þess að gröfin yrði ekki opnuð.

¿Sabías que…?

Juicio, cruz y sepultura

  • Poncio Pilato fue el sexto procurador romano de Judea, del año 26 al 36 d.C. Tenía su sede en Cesarea, pero subía con frecuencia a Jerusalén, y su gobierno abarcó los ministerios de Juan el Bautista y de Jesús. En la fiesta seguía una costumbre romana de soltar a un preso: ofreció a la multitud elegir entre Jesús y Barrabás, un ladrón notorio cuyo nombre significa “hijo de Abba” o “hijo de un padre”, y ellos exigieron a Barrabás.Fuentes: Pontius Pilate · Barabbas · el propio texto bíblico
  • Cuando Judas vio que Jesús había sido condenado, se llenó de remordimiento, arrojó las treinta monedas de plata en el templo, se marchó y se ahorcó. Los principales sacerdotes se negaron a meter el dinero de sangre en el tesoro y, en cambio, compraron el campo del alfarero como lugar de entierro para extranjeros. En arameo, los judíos lo llamaban Aceldama, “campo de sangre”; queda en una terraza estrecha y llana en la ladera sur del valle de Hinom, y su nombre moderno es Hak ed-damm.Fuentes: Judas Iscariot · Akeldama · el propio texto bíblico
  • Jesús fue crucificado en el Gólgota, transcripción griega del arameo Gulgaltha, el mismo nombre que Calvario y emparentado con la palabra hebrea para “cráneo”. Los evangelistas lo explican como “el lugar de la calavera”, un pequeño montículo redondeado como un cráneo desnudo, un sitio conocido fuera de la puerta y cerca de la ciudad.Fuentes: Golgotha · el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Cyrene · 32.821, 21.851 · versículo 32
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 53
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 55

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.