Mateo 25
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Dæmisagan um meyjarnar tíu
1„Himnaríki má líkja við tíu brúðarmeyjar, sem tóku lampa sína og lögðu af stað til móts við brúðgumann.
2Aðeins fimm þeirra gættu þess að fylla lampa sína af olíu, en hinar fimm gleymdu því og fóru með tóma lampa. 5Þegar brúðgumanum seinkaði, syfjaði þær og sofnuðu. En á miðnætti voru þær vaktar með háu hrópi: „Brúðguminn er að koma! Gangið út og takið á móti honum!“ 7Stúlkurnar spruttu á fætur og fóru að sýsla við lampana. Þær fimm sem vantaði olíu, sárbáðu hinar að gefa sér lítið eitt, því það lifði ekki á lömpum þeirra. 9En hinar svöruðu „Nei, það getum við ekki, því það verður ekki nóg handa okkur öllum. Farið og kaupið olíu handa ykkur.“ 10En á meðan þær voru fjarverandi kom brúðguminn. Þær sem viðbúnar voru fóru með honum til brúðkaupsins og dyrunum var læst. 11Seinna komu hinar til baka og stóðu fyrir utan og kölluðu: „Herra, opnaðu fyrir okkur!“ 12En hann kallaði á móti: „Farið! Þið komið of seint!“ 13Vakið því og verið viðbúnir, því þið vitið hvorki daginn né stundina er ég kem aftur.“
Dæmisaga um ávöxtun fjár
14„Himnaríki er einnig líkt manni sem fór til útlanda. Hann kallaði saman starfsmenn sína og afhenti þeim fé, sem þeir áttu að ávaxta meðan hann væri í burtu. 15Einum fékk hann tvær milljónir króna, öðrum eina milljón og hinum þriðja hálfa milljón. Þeir fengu misjafnlega mikið eftir hæfileikum sínum og dugnaði. Síðan fór hann úr landi. 16Maðurinn, sem fékk tvær milljónir, fór þegar að versla með peningana og græddi fljótt aðrar tvær milljónir. 17Sá sem fékk eina milljón, hófst handa eins og hinn og hagnaðist um aðra milljón. 18En maðurinn, sem fékk hálfa milljón, gróf peningana í jörðu svo að hann tapaði þeim ekki. 19Eftir langan tíma kom húsbóndinn aftur úr ferðalaginu. Hann kallaði starfsmennina til sín svo að hann gæti gert upp við þá. 20Sá sem fengið hafði tvær milljónir kom og afhenti húsbónda sínum fjórar milljónir. 21Húsbóndinn hrósaði honum og sagði: „Þetta var vel af sér vikið. Þú varst trúr yfir litlu, nú mun ég setja þig yfir mikið. Komdu og við skulum gera okkur dagamun.“
22Næst kom sá sem fengið hafði eina milljón. Hann sagði: „Herra þú lést mig fá eina milljón og nú hef ég tvöfaldað þá upphæð.“ 23„Gott hjá þér!“ sagði húsbóndinn. „Þú ert góður og dyggur þjónn. Þú varst trúr yfir þessu lítilræði, en nú mun ég láta þig fá miklu meira. Komdu, við skulum gleðjast saman!“
24Síðast kom sá þriðji með sína hálfu milljón og sagði: „Herra, ég vissi að þú ert harður húsbóndi og þar sem ég bjóst við að þú rændir mig hagnaðinum, faldi ég peningana í jörðu og hér hefur þú þá!“ 26„Letingi!“ svaraði húsbóndinn. „Þú vissir að ég krefði þig um hagnaðinn, 27svo þú hefðir að minnsta kosti átt að setja peningana í banka til að ég fengi þó vexti. 28Takið peningana af þessum manni og látið þann, sem hefur fjórar milljónirnar, fá þá. 29Sá sem notar vel það sem honum er gefið, mun fá enn meira, og hafa allsnægtir, en sá sem er ótrúr, tapar því litla sem hann hefur. 30Kastið nú þessum duglausa þjóni út í myrkrið. Þar verður grátið og kveinað.“ “
Kristur mun dæma þjóðirnar
31„Þegar ég, Kristur, kem aftur í dýrð minni og allir englarnir með mér, mun ég setjast í hástól dýrðarinnar. 32Þá verður öllum þjóðunum safnað saman frammi fyrir mér og ég mun skilja fólkið að, eins og fjárhirðir aðskilur sauðfé og geitur. 33Kindunum mun ég skipa mér til hægri handar og geitunum til vinstri handar. 34Þá mun ég, konungurinn, segja við þá til hægri handar: „Komið, þið hinir blessuðu föður míns, inn í ríkið sem ykkur hefur verið ætlað frá því heimurinn varð til. 35Ég var hungraður og þið gáfuð mér að borða, þyrstur og þið gáfuð mér að drekka. Ég var ókunnugur og þið buðuð mér inn á heimili ykkar. 36Ég var fatalaus og þið klædduð mig. Ég var sjúkur, og í fangelsi og þið heimsóttuð mig.“ 37Þá svara hinir réttlátu og segja: „Herra, hvenær sáum við þig hungraðan og gáfum þér að borða, þyrstan og gáfum þér að drekka, 38eða ókunnugan og hjálpuðum þér. Hvenær sáum við þig klæðalausan og klæddum þig, 39og hvenær veikan eða í fangelsi og litum til þín?“ 40Þá mun ég, konungurinn, svara þeim og segja: „Þetta sem þið gerðuð bræðrum mínum, gerðuð þið mér.“ 41Síðan mun ég snúa mér að þeim sem eru til vinstri og segja: „Burt með ykkur, bölvaðir, í eilífa eldinn sem ætlaður er djöflinum og þjónum hans. 42Ég var hungraður, en þið gáfuð mér ekki að borða, þyrstur og þið færðuð mér ekkert að drekka. 43Ég var ókunnugur og þið sýnduð mér ekki gestrisni, klæðlaus og þið gáfuð mér enga flík. Ég var veikur og í fangelsi og þið heimsóttuð mig ekki.“ 44Þá munu þeir svara: „Drottinn, hvenær var það sem við sáum þig hungraðan eða þyrstan, ókunnugan, nakinn, sjúkan eða í fangelsi og hjálpuðum þér ekki?“ 45Þá mun ég svara: „Þegar þið neituðuð mínum minnsta bróður um hjálp, þá neituðuð þið mér.“ 46Og þeir munu fara burt til eilífrar refsingar, en hinir réttlátu til eilífs lífs.“
¿Sabías que…?
Preparados antes de que venga el Hijo del Hombre
- Mateo 25 compara el reino de los cielos con diez vírgenes que toman lámparas y salen al encuentro del novio. Las cinco prudentes llevan aceite en frascos; las cinco insensatas no lo llevan y, tras la demora, un grito a medianoche las encuentra con las lámparas apagándose, de modo que les dicen que compren aceite y ellas vuelven cuando la puerta de la boda ya está cerrada. Él les dice que no las conoce, y el relato termina diciendo que hay que velar, porque nadie sabe el día ni la hora.Fuentes: el propio texto bíblico
- La escena siguiente es la de un hombre que, antes de un viaje, confía sus bienes a tres siervos: cinco talentos, dos talentos y un talento, a cada uno según su capacidad. Los dos primeros ponen el dinero a trabajar y lo duplican; el que recibió un solo talento cava un hoyo y lo esconde. Después de mucho tiempo, el señor alaba a los dos primeros como buenos y fieles y los invita a entrar en su alegría, pero llama al tercero malo y perezoso, y dice que la suma debió dejarse con los banqueros para que produjera intereses.Fuentes: el propio texto bíblico
- El capítulo termina con el Hijo del Hombre que viene en gloria con todos los ángeles y se sienta en su trono glorioso mientras las naciones se reúnen ante él. Las separa como un pastor separa las ovejas de las cabras: las ovejas a su derecha y las cabras a su izquierda. Recibe a los de la derecha por haber dado de comer al hambriento, de beber al sediento, acogido al extranjero, vestido al desnudo, cuidado al enfermo y visitado al preso, y dice que lo hecho a uno de estos sus hermanos más pequeños fue hecho a él, mientras los de la izquierda, que no hicieron nada de esto, van al castigo eterno, y los justos a la vida eterna.Fuentes: el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org