Lucas 7
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Tvö athyglisverð kraftaverk
1Þegar Jesús hafði lokið við að tala til fólksins, fór hann aftur til Kapernaum.
2Rómverskur höfuðsmaður bjó þar og átti þræl sem var honum mjög kær. Nú lá þrællinn fyrir dauðanum. 3Þegar höfuðsmaðurinn frétti af Jesú, sendi hann nokkra virðulega Gyðinga til hans og bað hann að koma og lækna þrælinn. 4Þeir báðu Jesú innilega að koma og hjálpa manninum og sögðu: „Hann á það skilið að þú hjálpir honum, 5því hann elskar þjóð okkar og lét meira að segja byggja samkomuhúsið fyrir eigið fé.“
6Jesús fór með þeim. Rétt áður en þeir komu að húsinu sendi höfuðsmaðurinn vini sína til Jesú með þessi skilaboð: „Herra, vertu ekki að ómaka þig með að koma inn til mín, því ég er hvorki verður þess að hitta þig né hafa þig sem gest. Segðu það aðeins með orði, þar sem þú ert staddur, og þá mun þræll minn læknast. Ég skil þig vel, því sjálfur þarf ég að hlýða æðri herforingjum, en hef síðan vald yfir mínum undirmönnum. Ég þarf aðeins að segja við þá: „Farið“ og þá fara þeir, eða: „Komið“ og þeir koma. Við þræl minn segi ég: „Gerðu þetta“ og hann hlýðir. Segðu því bara: „Læknist þú“ og þá mun þræll minn verða heilbrigður.“
9Jesús varð undrandi. Hann sneri sér að mannfjöldanum og sagði: „Aldrei hef ég hitt neinn Gyðing, sem átt hefur jafn mikla trú og þessi útlendingur.“
10Þegar vinir höfuðsmannsins komu aftur inn í húsið fundu þeir þrælinn alheilbrigðan.
11Stuttu seinna fóru Jesús og lærisveinar hans til þorpsins Nain, og enn fylgdi mannfjöldinn. 12Þegar hann nálgaðist þorpshliðið, kom þar að líkfylgd. Hinn dáni var drengur, einkasonur móður sinnar sem var ekkja. Hópur syrgjandi þorpsbúa var í líkfylgdinni ásamt ekkjunni. 13Þegar Drottinn sá hana, kenndi hann í brjósti um hana og sagði: „Gráttu ekki.“ 14Síðan gekk hann að líkbörunum og snerti þær. Þeir sem báru, námu staðar og Jesús sagði: „Ungi maður, ég segi þér: Rístu upp!“
15Þá settist drengurinn upp og fór að tala við viðstadda! En Jesús gaf hann aftur móður hans. 16Mikil hræðsla greip um sig og fólkið lofaði Guð og hrópaði: „Voldugur spámaður er kominn fram á meðal okkar. Við höfum sannarlega séð Guð að verki í dag.“ 17Og fréttin flaug um nágrennið og landið allt.
Jesús og Jóhannes
18Lærisveinar Jóhannesar fluttu honum fréttirnar um verk Jesú. 19Þegar hann heyrði þær, sendi hann tvo af lærisveinum sínum til Jesú og lét þá spyrja: „Ert þú Kristur? Eða eigum við að halda áfram að bíða hans?“
20Þegar lærisveinar þessir komu til Jesú, var hann einmitt að lækna fólk af ýmsum sjúkdómum. Hann læknaði lamaða og blinda, og rak út illa anda. Þegar þeir báru fram spurningu Jóhannesar, svaraði hann: „Farið aftur til Jóhannesar og segið honum hvað þið hafið séð og heyrt hér í dag: Blindir fá sjón, lamaðir ganga óstuddir, holdsveikir hreinsast, heyrnarlausir heyra, dauðir lifna við og fátækir og vonlausir fá að heyra gleðifréttir. 23Að lokum skuluð þið segja honum: Blessaður er sá sem ekki glatar trúnni á mig.“
24Þegar þeir voru farnir, talaði Jesús við fólkið um Jóhannes og sagði: „Hver er hann, þessi maður, sem þið fóruð að sjá út í Júdeuauðninni? Fannst ykkur hann veikburða líkt og strá sem bærist í golunni? 25Var hann klæddur sem ríkmenni? Nei! Menn, sem lifa munaðarlífi, búa í höllum en ekki í eyðimörkum. 26Hvað funduð þið þá? Spámann? Já, og meira en það! 27Biblían segir um hann: „Sjá, ég sendi boðbera minn á undan þér til að undirbúa komu þína.“ 28Jóhannes er mestur allra manna, en samt er hinn minnsti þegn í guðsríki honum meiri.“
29Allir sem hlustuðu á Jóhannes – jafnvel þeir sem dýpst voru sokknir í synd – beygðu sig að kröfu Guðs og létu skírast.
30En farísearnir og lögvitringarnir höfnuðu áformi Guðs um þá og vildu ekki láta skírast.
31„Við hvað á ég að líkja slíkum mönnum?“ spurði Jesús. 32„Þeir eru eins og börn sem kalla hvert til annars: „Við fórum í brúðkaupsleik en þið vilduð ekki vera með, þá fórum við í jarðarfararleik en þið vilduð samt ekki vera með.“ 33Jóhannes fastaði oft og bragðaði aldrei áfengi, en þá sögðu menn: „Hann hlýtur að vera skrýtinn.“ 34En þegar ég borða og drekk eins og aðrir, þá er sagt: „Þessi Jesús, hann er nú meira átvaglið og hann drekkur meira að segja líka! Og vinir hans, það er ljóta hyskið.“ 35Alltaf finnið þið eitthvað til að afsaka ykkur með.“
Óvenjulegt hádegisverðarboð
36Einn af faríseunum bauð Jesú til máltíðar heima hjá sér og hann þáði boðið. Þeir voru ný sestir að matnum 37þegar kona nokkur kom inn utan af götunni. Hún var skækja sem hafði frétt að Jesús væri þarna og kom því með flösku af dýrindis ilmolíu. 38Hún gekk rakleitt til Jesú og kraup grátandi að fótum hans. Tár hennar féllu á fætur hans, en hún þurrkaði þá með hári sínu, kyssti þá og hellti síðan ilmolíu yfir.
39Þegar faríseinn sem boðið hafði Jesú sá þetta, og þekkti konuna, sagði hann við sjálfan sig: „Það er auðséð að Jesús er ekki spámaður, því ef Guð hefði sent hann, hlyti hann að vita hvers konar kona þetta er.“
40Þá sagði Jesús við faríseann: „Símon, ég þarf að segja þér nokkuð.“
„Jæja, meistari, hvað er það?“ spurði Símon.
41Þá sagði Jesús honum eftirfarandi sögu: „Tveir menn fengu peninga að láni hjá auðmanni. Annar fékk fimm hundruð þúsund krónur, en hinn fimmtíu þúsund. 42En þegar að gjalddaga kom gat hvorugur greitt. Maðurinn gaf þeim þá báðum eftir skuldina og þeir þurftu ekkert að borga! Hvor þeirra heldur þú að hafi elskað hann meira á eftir?“
43„Sá sem skuldaði honum meira, býst ég við,“ svaraði Símon. „Alveg rétt!“ sagði Jesús.
44Síðan sneri hann sér að konunni og sagði: „Símon, sjáðu þessa konu sem krýpur hérna. Þegar ég kom inn, léstu það ógert að koma með vatn og þvo rykið af fótum mínum, en hún þvoði þá með tárum sínum og þurrkaði þá með hárinu. 45Ekki heilsaðir þú mér með kossi eins og venja er, en hún hefur kysst fætur mína án afláts frá því ég kom. 46Þú sinntir ekki þeirri almennu kurteisi að smyrja höfuð mitt með ólífuolíu, en hún hellti dýrri ilmolíu yfir fætur mína. 47Því segi ég þér, allar hennar mörgu syndir eru fyrirgefnar – og þess vegna elskar hún mig mikið. En sá sem lítið er fyrirgefið, elskar lítið.“
48Jesús sagði síðan við konuna: „Syndir þínar eru fyrirgefnar.“
49„Hvað heldur þessi maður eiginlega að hann sé,“ sögðu gestirnir hver við annan. „Hann gengur um og fyrirgefur syndir.“
50En Jesús sagði við konuna: „Trú þín hefur frelsað þig, farðu í friði.“

¿Sabías que…?
Fe, compasión y la pregunta de un profeta
- El Easton's Bible Dictionary (1897) describe Capernaúm como una ciudad de Galilea que no se menciona en el Antiguo Testamento y que llegó a ser la ciudad que Jesús trataba como suya después de ser expulsado de Nazaret, escenario de muchos episodios de su vida. En este capítulo llega allí y encuentra al siervo muy estimado de un centurión a punto de morir; unos ancianos judíos ruegan, diciendo que el oficial ama a su nación y ha construido su sinagoga.Fuentes: Capernaum · el propio texto bíblico
- El Easton's Bible Dictionary (1897) relaciona el nombre Naín con una palabra hebrea que significa pastos verdes o hermoso, e identifica el pueblo con la aldea de Nein, en la ladera noroeste del Jebel ed-Duhy, llamado también la colina de Moré o el Pequeño Hermón, a unas cuatro millas de Tabor y veinticinco millas al suroeste de Capernaúm, sobre la llanura de Esdraelón. A la puerta del pueblo, Jesús se encontró con el funeral del hijo único de una viuda, y el asombro se extendió por la multitud.Fuentes: Nain · el propio texto bíblico
- Juan el Bautista es presentado como el precursor del Señor y como hombre de linaje sacerdotal: su padre, Zacarías, era sacerdote del turno de Abías, y su madre, Elisabet, era una de las hijas de Aarón. Su misión se describe como objeto de profecía, y en este capítulo Jesús dice a las multitudes que Juan es más que un profeta, el mensajero enviado por delante para preparar el camino, mientras los discípulos de Juan preguntan si Jesús es el que había de venir.Fuentes: John the Baptist · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Nain · Hoy: Nein · 32.631, 35.350 · versículo 11
- Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 17
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org