Lucas 6
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Herra helgidagsins
1Svo bar við á helgidegi að Jesús fór um akur ásamt lærisveinunum og þeir tíndu sér kornöx, neru þau með höndunum og átu. 2„Þetta er bannað“ sögðu farísearnir. „Lærisveinar þínir eru að uppskera korn og lögum samkvæmt er það bannað á helgidögum.“
3Jesús svaraði: „Hafið þið aldrei lesið hvað Davíð konungur gerði þegar hann og menn hans hungraði? 4Hann fór inn í Guðs hús, tók skoðunarbrauðin og át, ásamt mönnum sínum, en það var óheimilt.“ 5Og Jesús bætti við: „Ég er herra helgidagsins.“
6Á öðrum helgidegi var hann að kenna í samkomuhúsinu. Þar var þá staddur fatlaður maður – hægri höndin var máttlaus. 7Farísearnir og fræðimennirnir höfðu gætur á því hvort Jesús læknaði manninn á helgidegi – til þess að þeir gætu fundið eitthvað til að kæra hann fyrir.
8En Jesús vissi hvað þeir hugsuðu. Hann sagði við fatlaða manninn: „Stattu upp og komdu hingað.“ Maðurinn stóð upp og kom til hans.
9Þá sagði Jesús við faríseana og lögvitringana: „Nú spyr ég ykkur: Hvort er leyfilegt að gera gott eða illt á helgidegi? Bjarga lífi eða deyða?“ 10Hann horfði á þá einn af öðrum og sagði síðan við manninn: „Réttu fram höndina.“ Maðurinn hlýddi og um leið varð hönd hans heilbrigð! 11Óvinir Jesú urðu ævareiðir og töluðu saman um hvað þeir gætu gert honum.
Jesús velur sér samstarfsmenn og uppfræðir þá
12Um þetta leyti fór Jesús til fjalla til að biðjast fyrir og var alla nóttina á bæn. 13Í dögun kallaði hann saman fylgjendur sína og valdi tólf þeirra til að vera postula sína eða sendiboða. 14Þeir hétu: Símon (Jesús kallaði hann einnig Pétur), Andrés (bróðir Símonar), Jakob, Jóhannes, Filippus, Bartólómeus, Matteus, Tómas, Jakob Alfeusson, Símon (félagi í flokki Selóta, byltingarsinnuðum stjórnmálaflokki), Júdas Jakobsson og Júdas Ískaríot (sem síðar sveik Jesú).
17Þegar þeir komu aftur niður á sléttlendi, var þar fyrir mikill hópur lærisveina hans og fjöldi fólks úr allri Júdeu, Jerúsalem, og jafnvel norðan frá strandhéruðum Týrusar og Sídonar, til að hlusta á hann og fá lækningu. Þarna rak hann út marga illa anda. 19Allir reyndu að snerta hann, því þegar fólk gerði það, þá streymdi lækningakraftur frá honum, svo það læknaðist.
20Jesús sneri sér að lærisveinunum og sagði: „Sælir eruð þið, fátækir, því ykkar er guðsríki! 21Sælir eruð þið sem þolið hungur, því þið munuð saddir verða. Sælir eruð þið sem nú grátið, því þið munuð hlæja af gleði! 22Þið eruð sælir þegar menn hata ykkur og útskúfa, smána og baktala mín vegna. 23Fagnið þá og látið gleðilátum! Gleðjist, því laun ykkar verða mikil á himnum. Þannig var einnig farið með spámenn Guðs forðum.
24En þið sem ríkir eruð – ykkar bíður mikil ógæfa. Gleði ykkar er öll hér á jörðu. 25Þótt þið nú séuð saddir og vegni vel, þá bíður ykkar mikill skortur. Nú hlæið þið kæruleysislega, en þá munuð þið sýta og gráta. 26Einnig bíður mikið böl þeirra, sem nú eiga hylli fjöldans – falsspámenn hafa alla tíð verið vinsælir. 27Takið eftir! Elskið óvini ykkar! Verið þeim góðir sem hata ykkur. 28Blessið þá sem bölva ykkur, og biðjið fyrir þeim sem valda ykkur tjóni.
29Þeim sem slær þig á aðra kinnina, skaltu bjóða hina! Láttu þann sem heimtar yfirhöfn þína fá skyrtuna að auki. 30Gefðu þeim sem biður þig, og sé eitthvað haft af þér, reyndu þá ekki að ná því aftur. 31Komið fram við aðra eins og þið viljið að þeir komi fram við ykkur!
32Haldið þið að þið eigið hrós skilið fyrir að elska þá sem elska ykkur? Nei, það gera einnig guðleysingjarnir. 33Hvað er stórkostlegt við það að vera góður við þá sem eru góðir við þig? Það gerir hvaða syndari sem er! 34Og hvaða góðverk er það að lána þeim einum fé, sem geta endurgreitt? Jafnvel verstu illmenni lána fé – en þau vænta líka fullrar endurgreiðslu!
35Nei – elskið óvini ykkar! Gerið þeim gott! Lánið þeim og hafið ekki áhyggjur, þótt þið vitið að þeir muni ekki endurgreiða það. Þá munu laun ykkar verða mikil á himnum og framkoma ykkar sýna að þið eruð synir Guðs, því að hann er góður við vanþakkláta og vonda.
36Verið miskunnsamir eins og faðir ykkar er miskunnsamur. 37Verið ekki dómharðir og sakfellið ekki, þá verðið þið ekki heldur sakfelldir. Verið tillitssamir og þá mun ykkur einnig verða sýnd tillitssemi. 38Gefið og ykkur mun gefið verða! Þið munuð fá ríkulega endurgoldið. Laun ykkar verða mæld með sama mæli og þið mælið öðrum, hvort sem hann er lítill eða stór.“
39Jesús sagði einnig þessar líkingar í ræðum sínum: „Getur blindur leitt blindan? Nei, því þá falla báðir í sömu gryfjuna! 40Ekki er nemandinn meiri en kennarinn, en sé hann iðinn og námfús, verður hann eins og kennarinn.
41Hvers vegna sérðu flís í auga bróður þíns – einhver smá mistök sem hann kann að hafa gert – en tekur ekki eftir plankanum í þínu eigin auga! 42Hvernig geturðu sagt við hann: „Bróðir, leyfðu mér að losa flísina úr auga þér,“ meðan þú sérð varla til vegna plankans í þínu eigin auga? Hræsnari! Fjarlægðu fyrst plankann úr þínu auga og þá sérðu nógu vel til að draga út flísina í auga hans.
43Gott tré ber ekki skemmda ávexti og lélegt tré ber ekki góða ávexti. 44Tré þekkist af ávexti sínum. Hvorki tína menn fíkjur af þyrnirunnum né vínber af þistlum. 45Góður maður kemur góðu til leiðar, því hann hefur gott hjartalag, en vondur maður verður til ills, vegna síns spillta hugarfars. Orð þín lýsa innra manni.
46Hvers vegna kallið þið mig „Herra“ en viljið svo ekki hlýða mér? 47Sá sem kemur til mín, heyrir orð mín og breytir eftir þeim, er líkur manni sem byggði hús. Hann gróf djúpt og lagði undirstöðuna á klöpp. Þegar vatnsflóð kom, skall beljandi straumurinn á húsinu, en það haggaðist ekki, því það stóð á traustri undirstöðu. 49En sá sem heyrir orð mín, og fer ekki eftir þeim, er líkur manni sem byggði hús án undirstöðu. Þegar beljandi flóðið skall á því, hrundi það.“

¿Sabías que…?
El sábado, los Doce y la llanura
- En un sábado, mientras Jesús pasaba por los sembrados, sus discípulos arrancaban espigas, las restregaban entre las manos y se las comían, y algunos fariseos dijeron que eso era ilícito. Jesús recordó que David y sus compañeros, con hambre, comieron el pan consagrado de la casa de Dios, lícito solo para los sacerdotes, y dijo que el Hijo del Hombre es Señor del sábado. En otro sábado, restauró en la sinagoga la mano derecha atrofiada de un hombre, mientras los escribas y fariseos lo observaban buscando un motivo para acusarlo; una cronología fecha ambos episodios en el año 28 d. C.Fuentes: el propio texto bíblico · Corn on the Sabbath · Healing a Withered Hand
- Después de pasar la noche en oración en el monte, Jesús llamó a sus discípulos y eligió a doce, a quienes designó apóstoles. Entre ellos estaban Simón, a quien llamó Pedro, y Andrés, hermano de Pedro, pescadores de Betsaida, en la costa occidental del mar de Galilea, y Mateo, recaudador de impuestos en Capernaúm, antes conocido como Leví.Fuentes: el propio texto bíblico · Simon Peter · Andrew · Matthew
- Jesús bajó con ellos y se detuvo en un lugar llano, donde se había reunido gente de Judea, de Jerusalén y de la costa de Tiro y Sidón para oírlo y ser sanada. Tiro y Sidón eran antiguas ciudades fenicias del Mediterráneo; Sidón, la más antigua, quedaba a unas veinticinco millas al norte de Tiro. Una cronología fecha esta enseñanza en el año 28 d. C. y la titula Sermón del Monte, aunque el relato sitúa a Jesús en terreno llano después de bajar del monte.Fuentes: el propio texto bíblico · Tyre · Sidon · Sermon on the Mount
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 17
- Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 17
- Sidon · Hoy: Sandikli archaeological site in Sidon · 33.561, 35.372 · versículo 17
- Tyre · 33.271, 35.196 · versículo 17
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org