Nations Bible

Lucas 8

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Sagan um sáðmanninn

1Skömmu síðar fór Jesús borg úr borg og þorp úr þorpi, predikaði og boðaði komu guðsríkisins. 2Með í förinni voru postularnir tólf, og einnig nokkrar konur, sem hann hafði rekið illa anda út af eða læknað. Þeirra á meðal voru María Magdalena (en út af henni hafði Jesús rekið sjö illa anda), 3Jóhanna (kona Kúsa, sem var ráðsmaður Heródesar konungs og hafði umsjón með höll hans og hirð), Súsanna og margar aðrar. Veittu þær Jesú og lærisveinum hans fjárhagslegan stuðning.

4Einu sinni sem oftar hópaðist fólkið að Jesú til að hlusta á hann. Fólkið kom víðs vegar að úr ýmsum bæjum. Þá sagði hann þessa dæmisögu:

5„Bóndi gekk út á akur sinn til að sá korni. Meðan hann var að sá, féll sumt af útsæðinu á götuslóðann og tróðst niður, en síðan komu fuglar og átu það upp. 6Annað féll þar sem grunnt var á klöpp. Það óx, en skrælnaði fljótlega og dó, því raka vantaði í grunnan jarðveginn. 7Sumt lenti meðal þyrna, sem kæfðu viðkvæma kornstönglana. 8En annað lenti í frjósömum jarðvegi og óx og gaf af sér hundraðfalda uppskeru. Um leið og Jesús sagði þetta hrópaði hann: „Hver sem hefur eyru til að heyra, hann heyri.“

9Lærisveinarnir spurðu þá Jesú hvað sagan þýddi. 10Hann svaraði: „Guð hefur ætlað ykkur að skilja þessar líkingar, því þær kenna ykkur margt um guðsríki. Fólk almennt heyrir þær, en skilur ekki, rétt eins og spámennirnir fornu sögðu fyrir.

11Merking sögunnar er þessi: Útsæðið er Guðs orð. 12Hjörtu margra sem heyra Guðs orð eru hörð eins og gatan, þar sem fræið féll. Síðan kemur djöfullinn, tekur burt orðið og kemur í veg fyrir að fólkið trúi og frelsist. 13Grýtti jarðvegurinn táknar þá sem taka við orðinu með fögnuði, en það festir ekki rætur hjá þeim. Þeir trúa um stund, en falla frá trúnni þegar á reynir. 14Kornið sem lenti meðal þyrnanna, táknar þá sem hlusta og trúa orðum Guðs. En síðar kafnar trú þeirra í áhyggjum, auðæfum og alls konar lífsgæðakapphlaupi. Það fólk ber engan þroskaðan ávöxt trúarinnar.

15Sæðið sem lenti í frjósama jarðveginum táknar þá sem heyrt hafa orðið, geyma það í göfugu og góðu hjarta, og eru stöðuglyndir, þannig að ávextir trúarinnar sjást í lífi þeirra.“

16Seinna spurði Jesús: „Hafið þið nokkru sinni heyrt um mann sem kveikti á lampa, en stakk honum síðan undir stól, svo að hann lýsti ekki frá sér? Nei, því að lampar eru settir á góðan stað, svo að birtan dreifist vel. 17Þetta auðveldar okkur að skilja að dag einn mun allt sem mannshugurinn geymir verða dregið fram í dagsljósið og verða öllum augljóst. 18Gætið því vel að því sem þið heyrið. Því að þeim sem hefur, mun verða gefið enn meira, en frá þeim sem ekkert á, mun jafnvel verða tekið það sem hann telur sig eiga.“

19Eitt sinn, er móðir Jesú og bræður komu og ætluðu að hitta hann, komust þau ekki inn í húsið þar sem hann var að kenna, vegna mannfjöldans. 20Þegar Jesús heyrði að þau væru fyrir utan og vildu finna hann, 21sagði hann: „Móðir mín og bræður mínir eru þeir sem heyra orð Guðs og fara eftir því.“

Jesús stillir vind og vatn

22Dag einn var Jesús með lærisveinum sínum í báti úti á vatni. Lagði hann þá til að þeir færu yfir vatnið og í land hinum megin. 23Á siglingunni sofnaði hann. Þá hvessti skyndilega á vatninu svo að gaf á hjá þeim og voru þeir hætt komnir. 24Þeir þutu til, vöktu hann og hrópuðu: „Herra, við erum að farast!“ Þá hastaði Jesús á storminn og sagði: „Hafðu hægt um þig!“ Jafnskjótt lægði vindinn og öldurnar og gerði blíðalogn. 25Síðan sneri hann sér að lærisveinunum og spurði: „Hvar er trú ykkar?“

Þá fundu þeir til ótta gagnvart honum og sögðu hver við annan: „Hver er hann eiginlega? Bæði vindar og vatn hlýða honum.“

Maður með marga illa anda

26Þeir komu að landi í Gerasena, en það er landsvæði við vatnið, gegnt Galíleu. 27Þegar hann var að stíga upp úr bátnum, kom þar að maður frá nálægu þorpi. Maður þessi hafði lengi verið haldinn illum anda. Hann var heimilislaus og klæðlaus og hafðist við í gröfunum. 28Um leið og hann sá Jesú, rak hann upp vein, féll til jarðar og hrópaði: „Hvað viltu mér, Jesús, sonur hins hæsta Guðs? Ég bið þig að kvelja mig ekki.“

29Jesús hafði skipað óhreina andanum að fara út af manninum. Oft hafði þessi maður verið hlekkjaður á höndum og fótum, en þegar illi andinn hafði hann á valdi sínu sleit hann í sundur hlekkina og æddi viti sínu fjær út á eyðimörkina.

30„Hvað heitir þú?“ spurði Jesús illa andann.

„Hersing,“ svaraði hann, því í manninum voru mjög margir illir andar. 31Síðan báðu illu andarnir hann að senda sig ekki í botnlausa hyldýpið.

32Í fjallshlíðinni þar rétt hjá, var svínahjörð á beit. Nú báðu illu andarnir hann að leyfa sér að fara í svínin og leyfði hann það. 33Þeir fóru út af manninum og í svínin. Við það tók öll hjörðin á rás niður brekkuna og æddi fram af hengifluginu út í vatnið og drukknaði. 34Þegar svínahirðarnir sáu þetta, flýðu þeir í dauðans ofboði til næsta bæjar og sögðu fréttir af atburðinum.

35Menn fóru til að sjá með eigin augum hvað gerst hafði. Þeir sáu manninn, sem haft hafði illu andana, sitja við fætur Jesú, klæddan og alheilan! Og þeir urðu hræddir, 36en hinir sem séð höfðu atburðinn gerast, sögðu frá hvernig maðurinn hafði læknast. 37Fólkið bað Jesú að fara burt og leyfa sér að vera í friði, því mikil skelfing hafði gripið það. Hann steig því aftur í bátinn og fór yfir vatnið. Áður en hann fór, 38bað maðurinn sem illu andarnir höfðu verið í, hann um að leyfa sér að koma með.

39„Nei,“ svaraði Jesús, „farðu heldur heim til þín og segðu frá hve mikla hluti Guð hefur gert fyrir þig.“

Og maðurinn fór um alla borgina og sagði hve mikið Jesús hafði gert fyrir hann.

Frá dauða til lífs

40Hinum megin vatnsins beið mannfjöldinn eftir Jesú og tók honum opnum örmum.

41Þá kom þar að maður, Jaírus að nafni, stjórnandi samkomuhússins. Hann kraup að fótum Jesú og grátbað hann að koma heim með sér. 42Einkadóttir hans, tólf ára gömul, lá fyrir dauðanum. Jesús fór með honum og þeir ruddu sér leið gegnum mannþröngina.

43Á leiðinni gerðist það að kona ein, sem hafði innvortis blæðingar, kom að baki Jesú og snart hann. Hún hafði ekki fengið neina bót á meini sínu fram að þessu, þótt hún hefði eytt nær aleigu sinni í lækna. En jafnskjótt og hún snart faldinn á yfirhöfn Jesú stöðvuðust blæðingarnar.

45„Hver kom við mig?“ spurði Jesús.

Þegar enginn gaf sig fram, sagði Pétur: „Meistari, hér er fullt af fólki sem þrengir að þér á allar hliðar.“

46„Nei, einhver snart mig af ásettu ráði, því ég fann lækningakraft streyma út frá mér.“ sagði Jesús.

47Þegar konan sá að Jesús hafði orðið var við þetta, kom hún skjálfandi og kraup við fætur hans. Síðan útskýrði hún hvernig í öllu lá og sagði að nú væri hún orðin heilbrigð.

48„Dóttir, trú þín hefur læknað þig. Farðu í friði,“ sagði Jesús.

49Meðan hann var að tala við konuna, kom maður heiman frá Jaírusi með þær fréttir að litla stúlkan væri dáin. „Hún er skilin við,“ sagði maðurinn við föður hennar, „það er óþarfi að ónáða meistarann lengur.“

50Þegar Jesús heyrði þetta, sagði hann við föður stúlkunnar: „Vertu ekki hræddur. Trúðu aðeins, og hún verður heilbrigð.“

51Þegar Jesús kom að húsinu, leyfði hann engum að fara inn með sér nema Pétri, Jakobi og Jóhannesi, auk foreldra stúlkunnar. 52Inni í húsinu var margt syrgjandi fólk, sem grét hástöfum. „Hættið að gráta!“ sagði Jesús, „hún er ekki dáin heldur sefur hún.“ 53Þá kváðu við háðsglósur frá fólkinu, því allir vissu að stúlkan var dáin.

54En Jesús tók í hönd stúlkunnar og kallaði: „Stúlka litla, rístu upp!“ 55Á sama andartaki lifnaði hún við og reis upp í rúminu! „Gefðu henni eitthvað að borða,“ sagði Jesús við foreldrana sem voru frá sér numdir af gleði. Hann bað þau að segja engum hvernig þetta hefði gerst.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Buenas nuevas en el camino de Galilea

  • Mientras Jesús iba de pueblo en pueblo, algunas mujeres viajaban con él y con los Doce y los sostenían con sus propios recursos. María es llamada Magdalena por Magdala, su lugar de nacimiento, para distinguirla de las otras Marías; una obra de referencia considera un error identificarla con la mujer descrita como pecadora en el relato anterior. Juana era la esposa de Cuza, administrador de Herodes Antipas, tetrarca de Galilea, y Susana, cuyo nombre significa lirio, es nombrada entre ellas.Fuentes: Mary Magdalene · Joanna · Susanna · el propio texto bíblico
  • Pedro, Santiago y Juan, que aparecen con Jesús en este capítulo, eran pescadores en el mar de Galilea. La ciudad natal de Pedro, Betsaida, estaba en la costa occidental, donde se formó como pescador; Santiago, hijo de Zebedeo y uno de los Doce, trabajaba en sociedad con él, y su hermano Juan seguía el mismo oficio en el lago.Fuentes: Simon Peter · James (Son of Zebedee) · John the Apostle · el propio texto bíblico
  • Jairo, que rogó a Jesús que fuera porque su única hija se estaba muriendo, es identificado como jefe de la sinagoga en Capernaúm. En la casa, solo Pedro, Santiago y Juan pudieron entrar con el padre y la madre de la niña; después de que ella se levantó, Jesús mandó que le dieran algo de comer.Fuentes: Jairus · el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 26
  • Gerasa · Hoy: Jerash · 32.272, 35.891 · versículos 26, 37

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.