Nations Bible

John 4

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Konan sem hafði átt fimm menn

1Þegar Drottni varð ljóst að farísearnir hefðu frétt að hann fengi fleiri lærisveina og skírði fleiri en Jóhannes 2(Jesús skírði þó ekki sjálfur heldur lærisveinar hans), 3þá yfirgaf hann Júdeu og hélt aftur til Galíleu.

4Á leiðinni þurfti hann að fara um Samaríu. 5Um hádegi kom hann í Samverjaþorp sem Síkar heitir, nálægt landi því sem Jakob gaf Jósef syni sínum, en þar er Jakobsbrunnur. Jesús var orðinn þreyttur eftir langa göngu og settist því við brunninn.

7Í sama bili kom þar að samversk kona til þess að sækja vatn. Jesús bað hana að gefa sér að drekka. 8Hann var einn þessa stundina, því að lærisveinar hans höfðu farið inn í þorpið til að kaupa mat. 9Konan varð undrandi á að Gyðingur skyldi biðja hana – konu og Samverja – um nokkuð, því að Gyðingar virtu þá ekki viðlits. Hún hafði orð á þessu við Jesú.

10Hann svaraði: „Ef þú þekktir gjöf Guðs og vissir, hver sá er sem biður þig um vatn að drekka, mundir þú biðja mig að gefa þér lifandi vatn.“

11„Þú hefur hvorki reipi né fötu og þessi brunnur er mjög djúpur,“ sagði hún, „hvar ætlar þú að ná í þetta lifandi vatn? 12Ertu kannski meiri en Jakob forfaðir okkar, sem gaf okkur þennan brunn? Og hvernig ætlar þú að bjóða betra vatn en það sem hann sjálfur drakk og synir hans og kvikfé?“

13Jesús svaraði henni og sagði að fólk þyrsti fljótlega aftur, þótt það drykki þetta vatn. 14„En,“ bætti hann við, „vatnið sem ég gef, verður að lind hið innra með þeim og veitir eilífa svölun.“

15„Herra,“ sagði konan, „gefðu mér þetta vatn svo að ég verði aldrei þyrst og þurfi ekki að fara hingað daglega eftir vatni.“

16„Farðu og náðu í manninn þinn,“ sagði Jesús.

17„Ég er ekki gift,“ svaraði konan.

„Satt er það,“ svaraði Jesús, „þú hefur átt fimm menn og þú ert ekki einu sinni gift þeim sem þú býrð með núna.“

19„Herra,“ sagði konan, „þú hlýtur að vera spámaður, 20en segðu mér, af hverju segið þið, Gyðingar, að Jerúsalem sé eini staðurinn þar sem eigi að tilbiðja Guð? Við Samverjar höldum því fram að rétti staðurinn sé hér á Gerasímfjalli, þar sem forfeður okkar tilbáðu.“

21„Kona,“ svaraði Jesús, „sá tími kemur, þegar ekki skiptir máli hvort við tilbiðjum föðurinn hér eða í Jerúsalem. Spurningin er ekki hvar við tilbiðjum, heldur hvernig. Hverjum manni er nauðsynlegt að fá hjálp heilags anda til að geta tilbeðið Guð á réttan hátt og eftir hans vilja. Þið Samverjar biðjið í blindni, af því að þið þekkið hann ekki nema að litlu leyti, en við Gyðingar þekkjum hann því að heimurinn fær hjálpræðið frá okkur.“

25„Ja-á,“ svaraði konan, „ég veit að Kristur kemur – Messías, eins og þið kallið hann – og þegar hann kemur mun hann útskýra þetta allt fyrir okkur.“

26Þá sagði Jesús: „Ég er hann sem við þig tala.“

27Rétt í þessu komu lærisveinar hans þar að. Þeir urðu undrandi að sjá hann á tali við konu, en enginn þeirra spurði hann þó hvers vegna eða um hvað þau hefðu verið að tala.

28Konan lagði vatnskrúsina frá sér við brunninn, fór inn í þorpið og sagði við alla: „Komið! Sjáið manninn sem sagði mér allt, sem ég hef aðhafst! Ef til vill er hann Kristur!“ 30Og fólkið streymdi út úr þorpinu til að hitta Jesú.

31Meðan á þessu stóð hvöttu lærisveinarnir Jesú til að fá sér að borða, 32en hann svaraði: „Nei, ég hef mat sem þið vitið ekki um.“

33„Hver gaf honum mat?“ spurðu lærisveinarnir hver annan.

34Jesús útskýrði þetta og sagði: „Minn matur er að gera vilja Guðs, sem sendi mig, og fullkomna hans verk. 35Haldið þið að uppskeran hefjist ekki fyrr en í lok sumars, eða eftir fjóra mánuði? Lítið í kring um ykkur! Hvert sem litið er eru víðáttumiklir akrar, tilbúnir til uppskeru. 36Sá sem uppsker fær laun og safnar ávöxtum til eilífs lífs, til þess að bæði sá sem sáir og sá sem uppsker geti glaðst saman. 37Einn sáir en annar uppsker. 38Ég sendi ykkur til að uppskera þar sem þið hafið ekki sáð, aðrir hafa erfiðað, en þið fáið að bjarga uppskerunni.“

39Margir úr þessu samverska þorpi trúðu nú að Jesús væri Kristur vegna orða konunnar sem vitnaði: „Hann sagði mér allt sem ég hef aðhafst!“ 40Fólkið kom út að brunninum til hans og bað hann að staldra við hjá sér. Hann dvaldist því þar í tvo daga, og miklu fleiri tóku trú eftir að hafa hlustað á hann. 42Og við konuna sagði fólkið: „Það er ekki framar fyrir þín orð að við trúum, því að við höfum sjálf heyrt og vitum að þessi maður er í sannleika frelsari heimsins.“

43Eftir tvo daga hélt Jesús áfram til Galíleu. Hann hafði áður sagt: „Spámaður er alls staðar mikils metinn nema í sínum heimahögum.“ 45En fólkið í Galíleu tók honum samt vel, enda hafði það verið á páskahátíðinni í Jerúsalem og séð sum kraftaverka hans.

Sonur embættismanns hlýtur lækningu

46Á leið sinni um Galíleu kom Jesús til Kana, bæjarins þar sem hann hafði áður breytt vatninu í vín. Meðan hann var þar frétti embættismaður nokkur, sem bjó í Kapernaum, að Jesús væri kominn frá Júdeu. Sonur þessa manns var veikur og því fór faðirinn til Kana til að finna Jesú. Hann sárbað Jesú að koma með sér til Kapernaum og lækna son sinn, sem var nær dauða en lífi.

48Jesús spurði hann: „Hvers vegna er það, getið þið ekki trúað nema þið fáið stöðugt að sjá ný kraftaverk?“

49En embættismaðurinn bað hann og sagði: „Herra, komdu áður en barnið mitt deyr!“

50Þá sagði Jesús: „Farðu heim til þín, sonur þinn lifir:“ Maðurinn trúði honum og lagði af stað heim. 51Á leiðinni mætti hann einum þjóna sinna, sem sagði honum þær gleðifréttir að syni hans væri batnað. 52Þá spurði maðurinn hvenær honum hefði farið að batna og svarið var: „Um eittleytið í gær fór hitinn skyndilega úr honum!“ 53Þá mundi faðirinn að það var einmitt á þeirri stundu sem Jesús hafði sagt við hann: „Sonur þinn lifir.“ Þetta varð til þess að embættismaðurinn og allt hans heimafólk tók trú á Jesú.

54Þetta var annað kraftaverkið sem Jesús vann í Galíleu, en það gerði hann við heimkomuna frá Júdeu.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Living Water in Samaria

  • Jesus left Judea to return to Galilee, and the Gospel says he had to pass through Samaria. Under the Romans in Jesus' time, Judea was the southernmost of Palestine's three divisions, distinguished from Samaria and Galilee, and the narrative notes that Jews did not associate with Samaritans.Sources: the Bible text itself · Judea
  • He came to Sychar, near the plot of ground that Jacob had given his son Joseph, and, weary from the journey, sat down by Jacob's well. Easton's Bible Dictionary (1897) records that from the time of the Crusaders Sychar was usually identified with Shechem, but that explorations had identified it with 'Askar, a small Samaritan town on the southern base of Ebal, about a mile north of the well.Sources: the Bible text itself · Sychar
  • The woman contrasted worship on this mountain with the Jewish claim that one must worship in Jerusalem, and she spoke of a coming Messiah, called Christ. When the disciples returned from buying food in the town, they were surprised that Jesus was speaking with a woman.Sources: the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Galilee · 32.760, 35.527 · verses 3, 43, 45, 46, 47, 54
  • Judea · Today: Judea 1 · 31.777, 35.234 · verses 3, 47, 54
  • Samaria · Today: Samaria 2 · 32.276, 35.195 · verses 4, 5, 7, 9
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · verses 20, 21, 45
  • Mount Gerizim · 32.199, 35.273 · verse 20

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.