Nations Bible

John 3

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Leynilegur gestur

1Kvöld eitt, eftir að dimmt var orðið, 2kom einn af ráðherrum Gyðinga, farísei að nafni Nikódemus, til Jesú að ræða við hann. „Herra,“ sagði hann, „við vitum allir að Guð hefur sent þig til að fræða okkur, það sanna kraftaverk þín svo að ekki verður um villst.“

3„Ég segi þér satt, Nikódemus,“ sagði Jesús, „ef þú endurfæðist ekki muntu aldrei komast inn í guðsríki.“

4„Endurfæðist?“ spurði Nikódemus, „hvað er nú það? Hvernig getur gamall maður komist aftur inn í kvið móður sinnar og fæðst að nýju?“

5„Það sem ég á við,“ svaraði Jesús, „er þetta: Ef maðurinn fæðist ekki af vatni og anda, getur hann ekki komist inn í guðsríki. 6Maður getur aðeins fætt af sér aðra mannveru, en heilagur andi gefur nýtt líf frá himnum. 7Vertu því ekki hissa þótt ég segi að þú verðir að fæðast að nýju! 8Þetta er eins og með vindinn. Þú heyrir í honum en veist samt ekki hvaðan hann kemur eða hvert hann fer. Þannig er það einnig með anda Guðs. Við vitum ekki hverjum hann gefur næst líf frá himni.“ 9„Þetta get ég ekki skilið!“ svaraði Nikódemus.

10„Þú ert mikils metinn kennari hér í Jerúsalem en samt skilur þú þetta ekki!“ sagði Jesús. „Ég er að segja þér það sem ég veit og hef séð, en samt trúir þú mér ekki. 12Ef þú trúir mér ekki þegar ég segi þér frá hlutum sem gerast meðal manna, hvernig geturðu þá trúað ef ég segi þér frá himneskum hlutum? 13Ég, Kristur, er sá eini sem komið hefur niður til jarðarinnar og mun fara aftur til himins.

14Móse reisti eirorminn upp á stöng í eyðimörkinni og þannig mun mér einnig verða lyft upp, 15svo að allir sem á mig trúa, eignist eilíft líf. 16Því að svo elskaði Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem trúir á hann glatist ekki, heldur eignist eilíft líf. 17Guð sendi ekki son sinn til jarðarinnar til að dæma heiminn, heldur til að frelsa hann.

18Sá sem trúir á hann verður ekki dæmdur. En sá sem ekki trúir, hefur sjálfur kallað yfir sig dóm og er þegar dæmdur fyrir að vilja ekki trúa syni Guðs.

19Ástæður dómsins eru þessar: Ljósið frá himnum kom í heiminn, en mennirnir elskuðu myrkrið meir en ljósið, því verk þeirra voru vond. 20Þeim var illa við þetta himneska ljós, því þá langaði til að syndga í myrkrinu. Þeir héldu sig í skugganum af ótta við að flett yrði ofan af syndum þeirra og þeim refsað. 21En þeir sem í öllu leitast við að gera rétt, koma fúslega fram í ljósið, svo að allir geti séð að þeir geri Guðs vilja.“

22Eftir þetta fór Jesús, ásamt lærisveinum sínum, frá Jerúsalem og dvöldust þeir um tíma í Júdeu og skírðu þar.

Jóhannes og Jesús

23Þegar þetta var, hafði Jóhannesi skírara enn ekki verið varpað í fangelsi og var hann að skíra við Aínon, nálægt Salím, því þar var mikið vatn. 25Dag einn fór einhver að deila við lærisveina Jóhannesar og sagði að betra væri að skírast hjá Jesú. 26Þeir fóru því til Jóhannesar og sögðu: „Meistari, maðurinn sem þú hittir hinum megin við ána – sá sem þú sagðir að væri Kristur – hann skírir líka og allir fara til hans.“

27„Enginn getur tekið neitt, nema Guð leyfi honum það,“ svaraði Jóhannes. 28„Mitt hlutverk er að ryðja veginn fyrir Krist, svo að allir fari til hans. Þið vitið sjálfir að ég sagði ykkur að ég væri ekki Kristur. Ég er hér aðeins til að undirbúa komu hans – það er allt og sumt. 29Fólkið fer auðvitað til hans sem hefur mesta aðdráttaraflið – brúðurin fer þangað sem brúðguminn er – og vinur brúðgumans samgleðst honum. Ég er vinur brúðgumans. Ég gleðst innilega yfir árangri hans. 30Hann á að vaxa en ég að minnka.

31Hann kom frá himni og er öllum æðri. Ég er af jörðu og skilningur minn bundinn hinu jarðneska. 32Kristur segir frá því sem hann hefur séð og heyrt, samt trúa honum fáir. 33En þeir sem það gera komast að raun um að Guð er uppspretta sannleikans. Því að Kristur er sendur af Guði og talar Guðs orð og andi Guðs starfar í honum, hindrunarlaust. 35Faðirinn elskar þennan mann, því að hann er sonur hans og hann hefur gefið honum allt. 36Allir sem treysta honum – Guðssyninum – eignast eilíft líf, en þeir sem hvorki trúa honum né hlýða, munu aldrei sjá guðsríki heldur mun reiði Guðs hvíla yfir þeim.“

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

New birth and John's witness

  • Nicodemus, whose name means "the people is victor," was a Pharisee and a member of the Sanhedrin. He came to Jesus at night to learn more of his teaching, and the Gospel calls him a leader of the Jews; Jesus addresses him as Israel's teacher.Sources: Nicodemus · the Bible text itself
  • After this conversation, Jesus and his disciples went into the Judean countryside, under the Romans the southernmost of the three divisions of Palestine. John was also baptizing at Aenon near Salim, because water was plentiful there; Salim, whose name means "peaceful," lay west of the Jordan. Aenon means "springs," and Easton's Bible Dictionary (1897) places it probably near the upper source of the Wady Far'ah, an open valley full of springs running from Mount Ebal to the Jordan.Sources: the Bible text itself · Judea · Aenon · Salim
  • In this chapter John tells his disciples that he is not the Christ but was sent ahead of him, and the narrative notes that he had not yet been thrown into prison. Easton's Bible Dictionary (1897) describes him as the forerunner of Jesus, of priestly descent, and says that his mission was the subject of prophecy.Sources: the Bible text itself · John the Baptist

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 22
  • Judea · Today: Judea 1 · 31.777, 35.234 · verse 22
  • Jordan · Today: Jordan River · 31.761, 35.558 · verse 26

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.