Nations Bible

John 5

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Trúarleiðtogarnir óánægðir með lækningu

1Seinna fór Jesús aftur til Jerúsalem til að vera þar á trúarhátíð. 2Inni í borginni rétt við Sauðahliðið var Betesdalaugin og við hana fimm yfirbyggð súlnagöng. 3Þar lá mikill fjöldi af veiku fólki – lömuðu, blindu eða bækluðu. (Fólk þetta beið eftir vissri hreyfingu vatnsins, 4því að engill Drottins kom af og til og hreyfði við því, og sá læknaðist sem fyrstur komst ofan í eftir það.)

5Þarna lá maður sem verið hafði veikur í þrjátíu og átta ár. 6Þegar Jesús sá hann og vissi hve lengi hann hafði verið veikur, spurði hann: „Viltu verða heilbrigður?“

7„Það er útilokað,“ svaraði maðurinn, „ég hef engan til að hjálpa mér ofan í laugina þegar hreyfing verður á vatninu og þess vegna verður alltaf einhver annar á undan mér.“

8Þá sagði Jesús: „Stattu upp, vefðu saman dýnuna þína og farðu heim til þín!“

9Maðurinn varð heilbrigður á samri stundu! Hann vafði saman dýnuna og gekk.

Þetta gerðist á helgidegi 10og því sögðu leiðtogar fólksins við manninn sem læknast hafði: „Það er óleyfilegt að vinna á helgidögum, líka að bera dýnu!“

11„Sá sem læknaði mig, sagði mér að gera það,“ svaraði maðurinn.

12„Hver sagði þér að gera slíkt?“ spurðu þeir hranalega.

13Það vissi maðurinn ekki, því að Jesús hafði horfið í mannþröngina. 14Seinna hitti Jesús þennan sama mann í musterinu og sagði við hann: „Nú ertu heilbrigður. Syndga ekki framar, svo ekki hendi þig eitthvað enn verra.“

15Maðurinn fór þá til leiðtoga fólksins og sagði þeim að Jesús væri sá sem hefði læknað sig. Það varð til þess að 16þeir ofsóttu Jesú fyrir að brjóta helgidagslöggjöfina. 17Þá sagði hann: „Faðir minn starfar allt til þessa og ég starfa einnig.“

18Eftir þetta svipuðust leiðtogarnir enn frekar eftir tækifæri til að taka hann af lífi, því að auk þess að brjóta helgidagslöggjöf þeirra, talaði hann um Guð sem föður sinn og gerði sig þar með Guði jafnan.

19Um þetta sagði Jesús: „Sonurinn getur ekkert gert á eigin spýtur. Hann gerir það eitt sem hann sér föðurinn gera og fer síðan eins að. 20Faðirinn elskar soninn og sýnir honum allt sem hann gerir. Seinna mun sonurinn vinna enn meiri kraftaverk en það að lækna þennan mann. 21Hann mun meðal annars vekja upp frá dauðum þá sem hann vill, rétt eins og faðirinn. 22Faðirinn lætur soninn um að dæma syndina, 23svo að allir heiðri soninn eins og þeir heiðra föðurinn. Ef þið viljið ekki heiðra son Guðs, sem Guð sendi ykkur, þá heiðrið þið ekki heldur föðurinn.

24Ég segi ykkur satt og legg á það áherslu, að hver sem heyrir orð mín og trúir Guði, sem sendi mig, eignast eilíft líf og mun aldrei hljóta dóm fyrir syndir sínar, heldur hefur hann þá þegar stigið yfir frá dauðanum til lífsins. 25Og það er líka satt að sú stund kemur, hún er reyndar þegar komin, er hinir dauðu heyra rödd mína – rödd Guðssonarins – og þeir sem heyra munu lifa. 26Faðirinn hefur eilíft líf í sjálfum sér og hann hefur einnig veitt syninum sama líf. 27Og hann hefur veitt honum rétt til að dæma syndir allra manna, því að hann er mannssonurinn. 28Látið það ekki koma ykkur á óvart, en sú stund er svo sannarlega skammt undan, er allir hinir dauðu, sem í gröfunum eru, munu heyra rödd Guðssonarins 29og rísa upp. Þeir sem gott hafa gert til eilífs lífs, en þeir til dóms, sem lagt hafa stund á hið illa.

30Ég dæmi engan án þess að ráðfæra mig fyrst við föður minn. Dómur minn er í fullu samræmi við hans vilja, réttvís og sanngjarn, því að hann er ekki aðeins samkvæmt mínum vilja heldur einnig samkvæmt vilja Guðs sem sendi mig.

31Þegar ég fullyrði eitthvað um sjálfan mig, trúið þið mér ekki, 32en einn maður talar þó mínu máli og það er Jóhannes skírari. Þið fóruð að hlusta á hann og ég undirstrika að allt sem hann sagði um mig er satt! 34Hvers vegna minni ég ykkur á vitnisburð Jóhannesar? Jú, til að auðvelda ykkur að trúa mér og frelsast, en þó er besti vitnisburðurinn um mig ekki frá manni. 35Ljós Jóhannesar skein skært um stund og þið nutuð þess og glöddust, 36en þegar ég segi að ég hafi betra vitni en Jóhannes, þá á ég við kraftaverkin sem ég geri. Faðir minn hefur falið mér að vinna þau og þau sanna að faðirinn hefur sent mig. 37Hann hefur sjálfur vitnað um mig, þó ekki þannig að þið sæjuð hann eða heyrðuð rödd hans. 38Þið vitið ekki heldur hvað hann segir því að þið viljið ekki trúa mér, en boðskapur minn er frá honum.

39Þið rannsakið Gamla testamentið, því að þið álítið að það gefi ykkur eilíft líf, en svo vitið þið ekki að það vitnar um mig! 40Hvers vegna viljið þið ekki koma til mín, svo að ég geti gefið ykkur eilíft líf?

41Ég sækist ekki eftir vinsældum ykkar, því ég veit vel að þið berið ekki kærleika til Guðs. 43Ég veit hvað ég er að segja, því að ég kom til að kynna ykkur föður minn. Samt viljið þið ekkert með mig hafa. Þið takið hins vegar vel á móti þeim sem koma á eigin vegum, en þá hef ég ekki sent. 44Það er ekkert undarlegt þótt þið trúið ekki! Þið þiggið heiður hver af öðrum en leitið ekki þess heiðurs sem Guð einn getur veitt!

45En ég mun samt ekki ákæra ykkur frammi fyrir föðurnum, heldur Móse. Von ykkar um guðsríki hvílir á lögum Móse, 46en samt hafið þið ekki viljað trúa honum. Hann ritaði um mig, en þið viljið ekki trúa honum og þess vegna viljið þið ekki heldur trúa mér. 47Fyrst þið trúið ekki orðum hans, þá er ekki að undra þótt þið trúið ekki orðum mínum.“

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

A Sabbath healing at Bethesda

  • Near the Sheep Gate, in the eastern wall of Jerusalem, there was a pool with five covered colonnades, called Bethesda in Hebrew, a name meaning 'house of mercy.' The Greek word for the pool means a swimming bath or reservoir, and a great number of the sick, the blind, the lame, and the paralyzed lay under its colonnades, waiting for the water to be stirred. It is also called Bethsaida and Beth-zatha; the historian Eusebius, writing in A.D. 330, calls it the sheep-pool, and Easton's Bible Dictionary (1897) identifies it with the so-called Fountain of the Virgin in the Kidron valley, near the Pool of Siloam.Sources: Bethesda · Sheep Gate · the Bible text itself
  • A chronology of the event places the healing at Bethesda in A.D. 28, and the Gospel says it took place on the Sabbath. Those whom the account calls the Jews told the healed man that it was unlawful to carry his mat that day. When Jesus answered that his Father was still working and that he himself was working, they sought all the more to kill him, because they heard him calling God his own Father and making himself equal with God.Sources: Bethesda pool healing · the Bible text itself
  • In the discourse that follows, Jesus appeals to the testimony of John the Baptist, whom Easton's Bible Dictionary (1897) calls the forerunner of the Lord and whose mission, the dictionary says, was the subject of prophecy. Jesus describes him as a lamp that burned and gave light, in which the people were willing for a time to rejoice, though he says he has a greater testimony than John's: the works the Father has given him to do.Sources: John the Baptist · the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · verses 1, 2
  • Bethesda · Today: Pool of Bethesda · 31.781, 35.236 · verse 2
  • Sheep Gate · Today: in Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 2

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.