John 15
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Hinn sanni vínviður
1„Ég er hinn sanni vínviður og faðir minn er vínyrkinn. 2Sérhverja grein sem ekki ber ávöxt, sker hann af, en hinar sem bera ávöxt, hreinsar hann, svo að þær beri enn meiri ávöxt. 3Þið eruð þegar hreinir, vegna þess að þið hafið trúað orðum mínum. 4Verið í mér, og þá lifi ég í ykkur. Því að eins og greinin getur ekki borið ávöxt, nema hún sé á vínviðinum, þannig getið þið ekki borið ávöxt án mín.
5Ég er vínviðurinn, þið eruð greinarnar. Sá sem lifir í mér og ég í honum, hann ber mikinn ávöxt, en án mín getið þið alls ekkert gert. 6Þeim sem hefur yfirgefið mig, verður kastað burt eins og ónýtum greinum. Þeim er síðan safnað saman og brennt. 7Ef þið eruð í mér og hlýðið boðum mínum, þá biðjið um hvað sem þið viljið og það mun veitast ykkur! 8Þeir sem eru sannir lærisveinar mínir, bera mikinn ávöxt og verða föður mínum til dýrðar.
9Eins og faðirinn hefur elskað mig, hef ég elskað ykkur, verið því stöðugir í elsku minni. 10Ef þið hlýðið mér, verðið þið stöðugir í elsku minni, eins og ég hlýði föður mínum og lifi í elsku hans. 11Þetta segi ég ykkur, svo að fögnuður minn fylli ykkur – svo að gleði ykkar verði fullkomin. 12Ég krefst þess af ykkur að þið elskið hver annan jafn innilega og ég elska ykkur. 13Og nú skal ég segja ykkur hvernig við getum prófað kærleikann: Sá elskar mest, sem fórnar lífi sínu fyrir vini sína. 14Þið eruð vinir mínir, ef þið gerið eins og ég segi. 15Ég kalla ykkur ekki framar þjóna, því að húsbóndinn getur ekki treyst þjónum sínum. Þið eruð vinir mínir og því til staðfestingar hef ég sagt ykkur allt sem faðirinn sagði mér.
16Ekki hafið þið valið mig, heldur hef ég valið ykkur. Ég valdi ykkur til að fara og bera eilífan ávöxt kærleikans, svo að faðirinn veiti ykkur hvað sem þið biðjið hann um í mínu nafni. 17Þetta býð ég ykkur: Elskið hver annan. 18Heimurinn mun hata ykkur, en vitið, að hann hataði mig áður en hann hataði ykkur. 19Ef þið tilheyrðuð heiminum, mundi heimurinn elska ykkur, en vegna þess að ég hef valið ykkur úr heiminum, þá hatar hann ykkur. 20Munið hvað ég sagði ykkur: Ekki er þjónninn æðri húsbónda sínum – og fyrst þeir hafa ofsótt mig, munu þeir vissulega ofsækja ykkur líka. Hafi þeir hins vegar hlustað á mig, þá munu þeir einnig hlusta á ykkur. 21Heimurinn þekkir ekki Guð, sem sendi mig, og þar sem þið tilheyrið mér, þá munu þeir ofsækja ykkur.
22Mennirnir væru án saka, ef ég hefði ekki komið og sagt þeim sannleikann, en nú þekkja þeir hann og hafa því enga afsökun fyrir syndum sínum. 23Sá sem hatar mig, hatar þar með föður minn. 24Ef ég hefði ekki gert þessi kraftaverk, hefði heimurinn afsökun, en nú hefur hann séð þau og þó hatar hann bæði mig og föður minn. 25Þetta er uppfylling orða spámannsins um Krist: „Þeir hötuðu mig án saka.“
26En ég mun senda ykkur hjálparann, heilagan anda, uppsprettu sannleikans. Hann mun koma til ykkar frá föðurnum og fræða ykkur um mig. 27En þið verðið einnig að bera mér vitni, því að þið hafið verið með mér frá byrjun.“

Did you know?
The True Vine, Friendship, and the World
- In this chapter Jesus calls himself the true vine and his Father the keeper of the vineyard. Branches that bear no fruit are cut off, while branches that do bear fruit are pruned so they become even more fruitful. He says no branch can bear fruit unless it remains in the vine, and that apart from him his hearers can do nothing.Sources: the Bible text itself
- Jesus tells his hearers that he no longer calls them servants, because a servant does not understand what his master is doing. He calls them friends, because he has made known to them everything he learned from the Father. He also says they did not choose him; he chose them and appointed them to bear fruit that will remain.Sources: the Bible text itself
- Jesus says the world hates those he has chosen out of the world, and that it hated him first. He recalls a word he had already spoken, “No servant is greater than his master,” and says this hatred fulfills what is written in their Law: “They hated Me without reason.” He also promises the Advocate, the Spirit of truth who proceeds from the Father, who will testify about him.Sources: the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org