Nations Bible

John 14

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

1„Látið ekki óttann ná tökum á ykkur. Treystið Guði og treystið mér. 2Heima hjá föður mínum eru margar vistarverur og ég ætla að búa þær undir komu ykkar. Þegar allt er reiðubúið, kem ég aftur og sæki ykkur, svo að þið getið verið hjá mér alla tíð. Ef þessu væri öðruvísi varið, hefði ég sagt ykkur það. 4En nú vitið þið hvert ég fer og hvernig á að komast þangað.“

5„Nei, það vitum við ekki,“ sagði Tómas. „Við höfum ekki hugmynd um hvert þú ætlar, og hvernig ættum við þá að rata þangað?“

6Jesús svaraði: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemst til föðurins nema hann trúi á mig. 7Ef þið hafið þekkt mig, þá þekkið þið einnig föður minn. Héðan í frá þekkið þið hann og hafið þegar séð hann.“

8„Herra,“ sagði Filippus, „sýndu okkur föðurinn og það nægir okkur.“

9„Filippus,“ svaraði Jesús, „þekkir þú mig ekki enn, eftir allan þennan tíma sem við höfum verið saman? Sá sem hefur séð mig, hefur séð föðurinn. Hvers vegna biður þú þá um að fá að sjá hann? 10Trúir þú ekki að ég sé í föðurnum og faðirinn í mér? Það sem ég segi, er ekki frá eigin brjósti, heldur frá föðurnum sem í mér er og vinnur verk sitt í gegnum mig. 11Trúið þessu: Ég er í föðurnum og faðirinn í mér. Ef þið eigið erfitt með að trúa því, þá minnist allra kraftaverkanna sem þið hafið séð mig gera.

12Ég segi ykkur satt: Sá sem á mig trúir, mun gera sömu kraftaverk og þau sem ég gerði, og jafnvel enn meiri, því að ég fer til föðurins. Hvað sem þið biðjið föðurinn um, mun ég gera ef þið biðjið hann um það í mínu nafni. Allt það sem ég, sonurinn, geri fyrir ykkur, verður föður mínum til vegsemdar. 14Biðjið um hvað sem þið viljið og notið nafn mitt, og þá mun ég svara bæn ykkar.

Fyrirheitið um heilagan anda

15Ef þið elskið mig, hlýðið þá orðum mínum. Ég mun biðja föðurinn og hann mun gefa ykkur annan hjálpara, sem aldrei yfirgefur ykkur. 17Þessi hjálpari er heilagur andi. Andinn sem leiðir menn í allan sannleikann. Heimurinn getur ekki tekið á móti honum, því heimurinn leitar hans ekki og þekkir hann ekki heldur. En þið þekkið hann, því að hann lifir í ykkur og er með ykkur. 18Ég mun ekki sleppa af ykkur hendinni né skilja ykkur eina eftir; ég kem til ykkar. 19Innan skamms yfirgef ég þennan heim en ég verð samt með ykkur, því að ég lifi og þið munuð lifa. 20Þegar ég er risinn upp frá dauðum, munuð þið skilja að ég er í föður mínum, þið í mér, og ég í ykkur. 21Sá sem hlýðir mér, elskar mig og vegna þess að hann elskar mig, mun faðir minn elska hann, og ég mun elska hann og sjálfur birtast honum.“

22Júdas (ekki Júdas Ískaríot, heldur nafni hans) sagði þá við hann: „Herra, hvers vegna vilt þú einungis opinbera þig fyrir okkur, lærisveinunum, en ekki fyrir heiminum?“

23„Vegna þess að ég vil aðeins opinbera mig þeim sem elska mig og hlýða mér,“ svaraði Jesús. Síðan bætti hann við: „Faðirinn mun einnig elska þá og við munum koma til þeirra og búa hjá þeim. 24Sá sem óhlýðnast mér, sýnir þar með að hann elskar mig ekki. Takið eftir, að þetta svar við spurningu ykkar er ekki mitt svar, heldur föðurins sem sendi mig. 25Þetta segi ég ykkur nú meðan ég er hjá ykkur. 26En þegar faðirinn sendir ykkur hjálparann í minn stað – og þegar ég tala um hjálparann, þá á ég við heilagan anda – þá mun hann, andinn, fræða ykkur um margt og minna ykkur á allt sem ég hef sagt ykkur.

27Frið skil ég eftir hjá ykkur, minn frið gef ég ykkur. Minn friður er ekki hverfull eins og sá friður sem heimurinn gefur, verið því hvorki kvíðafullir né hræddir. 28Minnist orða minna: Ég fer burt, en ég kem aftur til ykkar. Ef þið elskið mig í raun og veru, þá samgleðjist þið mér, því nú fæ ég að fara til föðurins, hans sem mér er æðri. 29Þetta segi ég ykkur fyrir fram, svo að þið trúið, þegar það gerist.

30Tíminn sem ég hef til að ræða þetta við ykkur styttist óðum, því að hinn illi höfðingi þessa heims er á næsta leiti. Hann hefur ekki vald yfir mér, 31en ég vil gera vilja föðurins, svo að heimurinn fái að vita að ég elska föðurinn. Standið upp, við skulum fara.“

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Jesus, the Way to the Father

  • Thomas, one of the twelve, tells Jesus that the disciples do not know where he is going, so they cannot know the way. He was also called Didymus, the Greek equivalent of his Hebrew name, which means "twin." Easton's Bible Dictionary (1897) notes that what is known of him is recorded in the fourth Gospel, including this exchange.Sources: the Bible text itself · Thomas
  • Philip, also one of the twelve and a native of Bethsaida, the city of Andrew and Peter, asks Jesus to show them the Father. Jesus replies that he has been with them all this time and that anyone who has seen him has seen the Father. Easton's Bible Dictionary (1897) cites this exchange among the passages suggesting that Philip held a prominent place among the apostles.Sources: the Bible text itself · Phillip the Apostle
  • The disciple who asks why Jesus will reveal himself to the disciples and not to the world is called Judas, not Iscariot, to distinguish him from Judas Iscariot, son of Simon, a man of Kerioth, who betrayed Jesus. Easton's Bible Dictionary (1897) says John is probably referring to the same apostle called Lebbaeus in Matthew, Thaddaeus in Mark, and Judas the brother of James in Luke, and it identifies him as Jude, the author of the epistle.Sources: the Bible text itself · Lebbaeus Thaddaeus · Judas Iscariot

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.