Nations Bible

John 16

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Framundan eru þjáningar – og gleði

1„Þetta segi ég ykkur, svo að þið hrasið ekki þegar andstaðan mætir ykkur. 2Ykkur mun verða bannað að sækja samkomuhúsin og þess er ekki langt að bíða að þeir lífláti ykkur í þeirri trú að þeir séu að gera Guði greiða. 3Ástæðan er sú, að þeir hafa hvorki þekkt föðurinn né mig. 4Ég segi ykkur þetta núna, svo að þið munið eftir aðvörun minni þegar það kemur fram. Ég hef ekki sagt ykkur þetta fyrr, því að nú fyrst er það tímabært, þar eð ég er á förum.

5Nú er komið að því að ég fari til hans sem sendi mig; en enginn ykkar virðist hafa áhuga á að spyrja hvers vegna ég fari. 6Þess í stað eruð þið sorgmæddir. 7Ég segi ykkur satt, það er ykkur til góðs að ég fari, því að fari ég ekki, þá mun hjálparinn ekki koma. En ef ég fer, þá kemur hann, því að ég mun senda hann til ykkar.

8Þegar hann kemur, mun hann sannfæra heiminn um synd hans, um að Guð réttlæti syndara og um að dómurinn sé staðreynd. 9Hann mun sannfæra heiminn um að syndin felist í því, að þeir trúi ekki á mig. 10Það að ég fer til föðurins, mun sannfæra menn um að réttlæti Guðs standi þeim til boða. 11Hann mun einnig sannfæra menn um að hægt sé að umflýja dóminn, því að höfðingi þessa heims, Satan, hefur þegar verið dæmdur.

12Það er svo margt sem ég vildi segja ykkur, en þið skiljið það ekki enn. 13En þegar heilagur andi, sannleiksandinn, kemur, mun hann leiða ykkur í allan sannleikann. Hann mun ekki tala af sjálfum sér, heldur skýra ykkur frá því sem hann hefur heyrt. Hann mun fræða ykkur um framtíðina. 14Hann mun heiðra mig og vegsama, með því að sýna ykkur dýrð mína. 15Öll dýrð föðurins tilheyrir mér og þess vegna sagði ég að hann heiðri mig og vegsami. 16Eftir skamma stund verð ég farinn og þið munuð ekki sjá mig, en áður en langt um líður munuð þið sjá mig á ný.“

17„Hvað á hann við?“ spurðu lærisveinarnir hver annan. „Hvað táknar það að „fara til föðurins“? Þetta skiljum við ekki.“

19Jesús varð þess var að þeir vildu spyrja hann og sagði því: „Þið spyrjið hver annan við hvað ég eigi. 20Heimurinn mun fagna örlögum mínum, en þið munuð gráta. En hryggð ykkar mun snúast í fögnuð, þegar þið sjáið mig á ný. 21Það verður líkt og hjá konu sem fæðir barn – angist hennar og kvíði hverfur fyrir fögnuði, þegar hún hefur eignast barnið. 22Nú eruð þið harmi slegnir, en ég mun hitta ykkur á ný og þá munuð þið fagna. Þeirri gleði mun enginn geta rænt ykkur! 23Þá munuð þið ekki þurfa að biðja mig neins, heldur getið þið snúið ykkur beint til föðurins og beðið hann. Og hann mun gefa ykkur það sem þið biðjið um, vegna þess að þið biðjið í mínu nafni. 24Þið hafið aldrei reynt þetta áður en nú er komið að því. Biðjið í mínu nafni því að þá munuð þið verða bænheyrðir og fyllast ólýsanlegri gleði!

25Þetta hef ég sagt ykkur í líkingum, en nú nálgast sá tími, er þess gerist ekki lengur þörf. Þá mun ég tala opinskátt við ykkur um föðurinn, 26og þið munuð biðja í mínu nafni. Það er óþarfi fyrir mig að biðja föðurinn um að svara bænum ykkar, 27því sjálfur elskar hann ykkur, af því að þið elskið mig og trúið að hann hafi sent mig. 28Þegar ég kom í þennan heim, þá kom ég frá föðurnum. Ég yfirgef heiminn á ný og fer aftur til föðurins.“

29„Nú talar þú berum orðum en ekki í líkingum,“ sögðu lærisveinar hans. 30„Nú vitum við að þú veist allt og þarft ekki að láta neinn segja þér neitt. Þess vegna trúum við líka að þú sért kominn frá Guði.“

31„Trúið þið því loksins?“ spurði Jesús. 32„Stundin nálgast, hún er reyndar þegar komin, er þið tvístrist og snúið hver til síns heima en skiljið mig einan eftir. Þrátt fyrir það verð ég ekki einn, því að faðirinn verður hjá mér. 33Þetta hef ég sagt ykkur til þess að þið haldið hugarró. Ykkar bíða þrengingar og sorgir í þessum heimi, en verið hughraustir, ég hef sigrað heiminn!“

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Departure, the Advocate, and joy after grief

  • Event notes place this chapter in the Upper Room Discourse, a one-day episode within Holy Week, which those notes list as eight days.Sources: Upper Room Discourse · Holy Week
  • Jesus tells the disciples they will be put out of the synagogues. He adds that a time is coming when anyone who kills them will think he is offering a service to God, because they have not known the Father or him.Sources: the Bible text itself
  • He says it is for their benefit that he is going away, because unless he goes, the Advocate will not come. When the Spirit of truth comes, he will guide them into all truth, not speaking on his own but saying what he hears and declaring what is to come.Sources: the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.