Marcos 12
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Sagan um víngarðseigandann
1Hér eru nokkrar af dæmisögunum sem Jesús sagði fólkinu þessa daga: „Maður nokkur gerði sér víngarð. Hann hlóð vegg umhverfis garðinn, bjó til þró til að pressa í vínberin og reisti eftirlitsturn. Að því búnu leigði hann vínyrkjubændum garðinn og fluttist sjálfur í annað land. 2Þegar uppskerutíminn kom, sendi hann einn af mönnum sínum til að ná í sinn hluta uppskerunnar. 3En bændurnir börðu manninn og sendu hann heim tómhentan.
4Eigandinn sendi þá annan mann, en sá fékk jafnvel enn verri útreið, því að þeir börðu hann í höfuðið og særðu hann. 5Sá þriðji sem hann sendi, var drepinn, og seinna voru fleiri ýmist barðir eða drepnir. 6Nú átti víngarðseigandinn aðeins einkason sinn eftir. Hann ákvað að senda hann, því hann taldi að þeir myndu áreiðanlega sýna honum virðingu. 7En þegar bændurnir sáu hann koma, sögðu þeir hver við annan: „Þessi er sonur víngarðseigandans og hann mun erfa víngarðinn þegar faðir hans deyr. Komið, við skulum drepa hann – og þá eigum við garðinn.“ 8Og þeir gripu hann og myrtu og fleygðu líkinu út fyrir vegginn.
9Hvað haldið þið að eigandinn geri þegar hann fær fréttirnar? Hann kemur og drepur þá alla og leigir öðrum víngarðinn. 10Munið þið eftir þessu versi í Biblíunni: „Steinninn, sem smiðirnir höfnuðu, var gerður að hornsteini og hlaut þar með mesta heiður allra steina í byggingunni.“ 11Þetta gerði Drottinn og það er stórkostlegt að vita.“
Óvinirnir reyna að leiða hann í gildru
12Leiðtogar þjóðarinnar vildu nú ólmir handtaka Jesú, því þeir skildu að dæmisagan var um þá – þeir voru bændaófétin í sögunni. Þeir þorðu samt ekki að taka hann, af ótta við uppþot. Þeir fóru því burt, 13en sendu aðra í staðinn – menn úr hópi faríseanna og flokki Heródesarsinna. Þessir reyndu nú að fá hann til að segja eitthvað sem hægt væri að handtaka hann fyrir.
14„Meistari, við vitum að þú segir sannleikann, hver sem í hlut á!“ sögðu þeir. „Þú lætur þig engu varða skoðanir eða viðhorf annarra, þú kennir veg Guðs í sannleika. Segðu okkur eitt: Er rétt af okkur að greiða Rómverjum skatta?“
15Jesús sá slægð þeirra og sagði: „Sýnið mér peninginn sem þið borgið skattinn með og þá skal ég segja ykkur það.“
16Þeir réttu honum myntina og hann spurði: „Hvaða mynd og nafn er á henni?“ „Keisarans,“ svöruðu þeir.
17„Nú, já“ svaraði hann, „gjaldið þá keisaranum það sem keisarinn á og Guði það sem Guð á.“ Þeir urðu undrandi. Á slíku svari áttu þeir síst von. 18Þá gengu saddúkearnir fram. Þeir álíta að upprisa dauðra sé ekki til. Spurning þeirra var á þessa leið:
19„Meistari! Móse setti lög sem segja að deyi maður barnlaus, skuli bróðir hans kvænast ekkjunni og eignast börn sem beri nafn látna bróðurins. 20Einu sinni voru sjö bræður. Sá elsti kvæntist og dó barnlaus. Annar bróðirinn kvæntist ekkjunni, en dó líka barnlaus stuttu síðar. Þriðji bróðirinn gekk einnig að eiga ekkjuna, en hann dó einnig barnlaus, og þannig gekk það koll af kolli þar til allir bræðurnir voru dánir, en enginn hafði látið eftir sig barn. Að lokum dó konan líka.
23Nú langar okkur að vita hver þeirra muni fá hana fyrir eiginkonu í upprisunni, fyrst hún var gift þeim öllum!“
24Jesús svaraði: „Vandi ykkar er sá að þið þekkið ekki Biblíuna og skiljið því ekki mátt Guðs. 25Konan og bræðurnir sjö munu ekki ganga í hjónaband, þegar þau rísa upp frá dauðum, heldur munu þau verða eins og englarnir. 26En varðandi það hvort um upprisu verði að ræða, vil ég spyrja: Hafið þið aldrei lesið um logandi þyrnirunnann í annarri Mósebók? Guð sagði við Móse: „Ég er Guð Abrahams, ég er Guð Ísaks, og ég er Guð Jakobs.“
27Guð var að undirstrika fyrir Móse að þessir menn væru lifandi, enda þótt þeir hefðu dáið mörgum öldum áður, því væru þeir ekki á lífi, hefði hann ekki sagt: „Ég er Guð þeirra.“ Þið hafið misskilið þetta hrapallega.“
28Lögfræðingi nokkrum, sem þar stóð og hlustað hafði á samræðurnar, fannst Jesús hafa svarað vel. Hann spurði því Jesú: „Hvaða boðorð er mikilvægast?“ 29„Þetta,“ svaraði Jesús: „ „Heyr Ísrael! Drottinn, Guð þinn, er hinn eini og sanni Guð, 30þú skalt elska hann af öllu hjarta þínu og allri sálu þinni, huga þínum og mætti.“
31Því næst er þetta: „Þú skalt elska meðbræður þína eins og sjálfan þig.“ Þetta eru æðstu boðorðin.“
32„Þetta var gott svar, herra,“ sagði fræðimaðurinn. „Og satt er það að aðeins er til einn Guð og enginn annar. 33Ég veit, að það að elska hann af öllu hjarta, huga og mætti og elska aðra eins og sjálfan sig, er langtum mikilvægara en færa allar þessar fórnir á altari musterisins.“
34Þegar Jesús sá hve skilningsríkur maðurinn var, sagði hann: „Þú ert ekki fjarri guðsríkinu.“ Eftir þetta þorði enginn að spyrja hann neins.
35Seinna, þegar Jesús var að kenna fólkinu á musterissvæðinu, sagði hann: „Segið mér eitt. Hvers vegna segja fræðimenn ykkar að Kristur verði að vera afkomandi Davíðs konungs? 36Davíð sagði fyrir áhrif heilags anda: „Guð sagði við minn Drottin, sittu mér til hægri handar, uns ég legg alla óvini þína að fótum þér.“ 37Fyrst Davíð kallar hann „sinn Drottin“ hvernig getur hann þá verið sonur hans?“
Mannfjöldanum líkaði vel að heyra slíkar röksemdir og hlustaði á Jesú af miklum áhuga.
38Jesús hélt áfram að fræða fólkið og sagði: „Gætið ykkar á fræðimönnunum! Þeir hafa unun af að klæðast skikkjum að hætti ríkra menntamanna, og þegar þeir ganga um bæinn, vilja þeir að allir hneigi sig fyrir þeim. 39Þeir sækjast eftir að sitja í heiðurssætum samkomuhúsanna og við háborðið í veislunum. 40Þeir flæma ekkjur út af heimilum þeirra og þykjast guðræknir með því að biðja langar bænir á almannafæri. Þess vegna munu þeir fá enn þyngri dóm.“
41Að því búnu fékk Jesús sér sæti hjá söfnunarbaukunum í musterinu og virti fyrir sér fólkið sem var að leggja í þá gjafir sínar. Sumir auðmenn gáfu mikið. 42Þá kom fátæk ekkja og gaf tvo smápeninga í samskotin.
43Jesús kallaði þá á lærisveina sína og sagði: „Þessi fátæka ekkja gaf meira en allir auðmennirnir samanlagt! Þeir gáfu aðeins lítið brot af eigum sínum, en hún gaf aleiguna.“

Você sabia?
Debates no templo
- Os saduceus, que dizem não haver ressurreição, interrogam Jesus sobre sete irmãos e uma viúva, apelando ao que Moisés escreveu. Ele os remete à sarça ardente no Livro de Moisés, onde Deus diz: “Eu sou o Deus de Abraão, o Deus de Isaque e o Deus de Jacó”. Abraão, “pai de uma multidão”, era filho de Terá; Isaque era o único filho de Abraão com Sara; e Jacó era o segundo dos filhos gêmeos de Isaque e Rebeca.Fontes: o próprio texto bíblico · Abraham · Isaac · Jacob (Israel)
- Quando lhe perguntam qual é o mandamento mais importante, Jesus começa: “Ouve, ó Israel, o Senhor, nosso Deus, o Senhor é um”, e acrescenta: “Ama o teu próximo como a ti mesmo”. Israel é outro nome de Jacó, o segundo dos gêmeos de Isaque e Rebeca; o nome Jacó é explicado como aquele que segue nos calcanhares de outro, ou suplantador.Fontes: o próprio texto bíblico · Jacob (Israel)
- Ensinando nos pátios do templo, Jesus pergunta como os escribas podem dizer que o Cristo é o Filho de Davi, se o próprio Davi o chama de “Senhor”. Davi, cujo nome significa “Amado”, era o oitavo e mais novo filho de Jessé, cidadão de Belém, e sua primeira ocupação foi cuidar das ovelhas do pai nas terras altas de Judá.Fontes: o próprio texto bíblico · David
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org