Marcos 11
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Haldið inn í Jerúsalem
1Þegar þeir komu til Betfage og Betaníu, sem eru smáþorp við Olíufjallið, skammt frá Jerúsalem, sendi Jesús tvo lærisveina sinna á undan sér.
2„Farið í þorpið þarna á móti,“ sagði hann. „Þegar þið komið þangað, munuð þið finna ösnufola sem enginn hefur komið á bak. Leysið hann og færið mér. 3Ef einhver spyr hvers vegna þið gerið þetta, skuluð þið segja: „Meistari okkar þarf á honum að halda, en hann skilar honum fljótt aftur“.“
4Mennirnir tveir fóru og fundu folann bundinn hjá húsi nokkru við eina götuna. Meðan þeir voru að leysa hann, spurðu menn sem þar voru: „Hvers vegna leysið þið folann?“
6Þeir svöruðu eins og Jesús hafði sagt þeim að gera og þá leyfðu mennirnir þeim að taka hann.
7Síðan fóru þeir með folann til Jesú. Lærisveinarnir lögðu yfirhafnir sínar á hann og Jesús settist á bak. 8Margir í mannþyrpingunni lögðu yfirhafnir sínar á veginn þar sem Jesús fór, en aðrir lögðu laufgaðar greinar og strá sem þeir höfðu skorið af ökrunum.
9Athygli allra beindist að Jesú og fólkið gekk í hópum á undan og eftir og hrópaði: „Blessaður sé konungurinn, sem kemur í nafni Drottins!“
10„Lofaður sé Guð, því hann endurreisir konungdóm Davíðs…“ „Lengi lifi Drottinn himnanna!“
11Þegar Jesús var kominn til Jerúsalem, fór hann inn í musterið, gekk um og virti allt gaumgæfilega fyrir sér. Um kvöldið fór hann út til Betaníu ásamt lærisveinunum tólf og gisti þar.
12Þegar þeir fóru frá Betaníu daginn eftir, fann Jesús til hungurs. 13Þá kom hann auga á laufgað fíkjutré skammt frá. Hann gekk að trénu til að athuga hvort á því væru nokkrar fíkjur. Þar var aðeins lauf að finna, engar fíkjur, því þetta var snemma árs og fíkjurnar enn ekki sprottnar.
14Þá sagði Jesús við tréð, svo lærisveinarnir heyrðu: „Aldrei framar munt þú ávöxt bera!“
15Þegar til Jerúsalem kom, fór hann upp í musterið og rak út kaupmennina og viðskiptavini þeirra. Hann hratt um koll stólum dúfnasalanna og borðum þeirra sem skiptu mynt, 16og stöðvaði þá sem voru að bera inn alls konar söluvarning.
17Hann sagði við þá: „Guðs orð segir: „Musteri mitt á að vera bænastaður fyrir allar þjóðir, en þið hafið breytt því í ræningjabæli“.“
18Þegar æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar fréttu þetta, ræddu þeir hvernig þeir gætu ráðið Jesú af dögum, en þeir óttuðust uppþot meðal fólksins, sem líkaði vel það sem Jesús sagði.
19Þetta kvöld fóru Jesús og lærisveinarnir út úr borginni eins og þeir voru vanir. 20Morguninn eftir, þegar þeir gengu framhjá fíkjutrénu, sáu þeir að það hafði visnað frá rótum. 21Þá minntist Pétur þess sem Jesús hafði sagt við tréð daginn áður og hrópaði: „Sjáðu, meistari! Fíkjutréð, sem þú formæltir, er visnað!“
22„Ég segi ykkur satt,“ sagði Jesús. „Ef þið trúið á Guð, þá getið þið sagt við Olíufjallið: „Upp með þig og steypstu í hafið“ og það mundi hlýða. Skilyrðið er trú sem ekki efast um mátt Guðs. 24Og takið nú eftir! Þið getið beðið um hvað sem er og ef þið trúið, þá fáið þið það! 25En áður en þið biðjið, fyrirgefið þá þeim sem þið hafið gert eitthvað á móti, svo að faðirinn á himnum geti fyrirgefið ykkur syndir ykkar.“
26Þeir komu nú aftur til Jerúsalem. Jesús var á gangi í musterinu þegar æðstu prestarnir og aðrir leiðtogar þjóðarinnar komu til hans og sögðu ákveðnir: „Hvað gengur eiginlega á hér? Hver gaf þér vald til að reka kaupmennina burt héðan?“
29Jesús svaraði: „Það skal ég segja ykkur, ef þið svarið fyrst einni spurningu: 30Var Jóhannes skírari sendiboði Guðs eða ekki? Svarið mér!“
31Þeir báru saman ráð sín og sögðu: „Ef við svörum já, þá mun hann segja: „Jæja, hvers vegna trúðuð þið þá ekki orðum hans?“ 32en ef við segjum nei, þá mun fólkið tryllast.“ (Fólkið trúði því statt og stöðugt að Jóhannes hefði verið spámaður.)
33Þeir svöruðu því: „Við vitum það ekki.“
„Þá svara ég ekki heldur spurningu ykkar,“ sagði Jesús.
Você sabia?
A entrada em Jerusalém
- Este capítulo começa quando Jesus e seus discípulos se aproximam de Jerusalém e chegam a Betfagé e Betânia, no monte das Oliveiras. Betânia era uma aldeia na encosta sudeste, cerca de duas milhas a leste de Jerusalém, no caminho para Jericó, e seu nome vinha da quantidade de palmeiras que ali cresciam; Betfagé, muito perto, era o limite de uma jornada de sábado a partir da cidade, 2.000 côvados. O monte das Oliveiras recebe o nome das oliveiras que revestem suas encostas: uma serra a leste de Jerusalém, separada dela pelo vale do Cedrom.Fontes: o próprio texto bíblico · Bethany · Bethphage · Mount of Olives
- O nome Betfagé significa “casa do figo imaturo”. No dia seguinte, depois de saírem de Betânia, Jesus estava com fome e foi até uma figueira cheia de folhas, mas não encontrou nela nada além de folhas, pois não era tempo de figos; disse que ninguém jamais comeria do seu fruto. Na manhã seguinte, viram a árvore seca desde as raízes, e Pedro a apontou.Fontes: o próprio texto bíblico · Bethphage
- Jesus sentou-se num jumentinho, enquanto muitos da multidão estendiam mantos no caminho e outros espalhavam ramos cortados dos campos. Os que iam adiante e os que seguiam clamavam: “Bendito é o reino que vem, o de nosso pai Davi!” Davi, cujo nome significa “amado”, era o oitavo e mais novo filho de Jessé, cidadão de Belém. O monte das Oliveiras é mencionado pela primeira vez em ligação com a fuga de Davi de Jerusalém durante a rebelião de Absalão.Fontes: o próprio texto bíblico · David · Mount of Olives
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org