Nations Bible

Mateus 13

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Dæmisaga um sáðmann

1Síðar sama dag fór Jesús að heiman og settist við vatnið, 2þar safnaðist að honum mikill mannfjöldi. Hann steig út í bát og kenndi þaðan, en fólkið stóð á ströndinni og hlustaði. Hann sagði margar dæmisögur, þar á meðal þessa:

„Bóndi sáði korni í akur sinn. 4Meðan hann var að sá féll sumt af sáðkorninu við götuna og fuglar komu og átu það upp. 5Sumt féll í grýtta jörð þar sem gróðurmold var lítil. Það óx fljótt, 6en þegar brennheit sólin skein, skrælnaði það og dó, því ræturnar voru litlar. 7Sumt lenti meðal þyrna sem uxu upp og kæfðu það. 8En sumt féll í góða jörð og bar þrítugfalda, sextugfalda og jafnvel hundraðfalda uppskeru. 9Þetta skuluð þið muna!“

Tilgangur dæmisagna

10Lærisveinar Jesú komu til hans og spurðu: „Hvers vegna notar þú þessar flóknu dæmisögur þegar þú talar til fólks?“ 11Þá sagði hann, að lærisveinunum einum væri ætlað að öðlast skilning á ríki himnanna, öðrum ekki.

12„Þeim sem hefur“ sagði hann, „mun verða gefið enn meira, en frá þeim sem ekkert á, mun jafnvel verða tekið það litla sem hann hefur. Ég nota þessar líkingar til að fólkið heyri og sjái, en skilji ekki. 14Þannig rætast þessi orð Jesaja:

„Þeir heyra, en skilja ekki, þeir horfa, en sjá ekki. 15Hugurinn er sljór og heyrnin dauf. Þeir sofa og sjá því hvorki né heyra það sem gæti veitt þeim skilning og leitt þá aftur til Guðs svo þeir hlytu lækningu.“

16En ykkar augu eru blessuð, því þau sjá, og eyru ykkar eru líka blessuð, því þau hlusta. 17Margir spámenn og trúað fólk þráði að sjá það sem þið sjáið og heyra það sem þið heyrið, en fengu það ekki.“

Útskýring dæmisögu um sáðmann

18„Merking sögunnar, sem ég sagði ykkur áðan um bóndann sem var að sá, er þessi: 19Gatan, þar sem sumt af sáðkorninu féll, táknar hjarta manns sem heyrir gleðitíðindin um guðsríki, en skilur þau ekki. Þá kemur Satan og rænir því, sem sáð var í hjarta hans. 20Grunni, grýtti jarðvegurinn táknar hjarta þess sem heyrir boðskapinn og tekur strax við honum með miklum fögnuði. 21Honum er þó ekki mikil alvara og fræið nær ekki að skjóta djúpum rótum. Síðar þegar erfiðleikar eða trúarofsóknir herja, missir hann allan áhuga. 22Jarðvegurinn þar sem þyrnarnir uxu, táknar mann sem heyrir boðskapinn, en lætur áhyggjur lífsgæðakapphlaupsins kæfa orð Guðs, og fjarlægist Guð smátt og smátt. 23Frjósami jarðvegurinn táknar þann mann sem hlustar á boðskapinn, skilur hann, fer af stað og leiðir þrjátíu, sextíu eða jafnvel hundrað aðra inn í ríki Guðs.“

Dæmisaga um hveiti og illgresi

24Hann sagði þeim einnig þessa dæmisögu: „Himnaríki er líkt bónda sem sáði góðu sæði í akur sinn. 25Nótt eina, meðan hann svaf, kom óvinur hans og sáði illgresi meðal hveitisins. 26Þegar hveitið kom upp, kom illgresið einnig upp.

27Vinnumenn bóndans komu til hans og sögðu: „Húsbóndi! Akurinn, sem þú sáðir góða hveitinu í, er fullur af illgresi.“ 28„Því hefur einhver óvinur sáð,“ svaraði bóndinn. „Eigum við að reyta illgresið?“ spurðu þeir. 29„Nei,“ svaraði hann, „því þá gætuð þið einnig slitið hveitið upp. 30Látið hvort tveggja vaxa til uppskerutímans, og þá mun ég segja kornskurðarmönnunum að skilja illgresið frá og brenna það, en setja hveitið í hlöðuna“.“

Dæmisagan um sinnepsfræið

31„Hér er enn ein líking. Ríki himnanna er líkt örsmáu sinnepsfræi sem sáð var í akur. Það er allra sáðkorna minnst, en plantan verður þó hæst allra kryddjurta og verður að tré, þar sem fuglar leita sér skjóls.“

Dæmisagan um gerið

33Jesús sagði þeim einnig þessa dæmisögu: „Himnaríki er líkt konu sem bakaði brauð. Fyrst mældi hún mjöl, síðan bætti hún geri í og hnoðaði uns gerið hafði gegnsýrt deigið.“

Spádómar og dæmisögur

34Jesús notaði ávallt slíkar dæmisögur þegar hann talaði við fólkið og það gerði hann í ákveðnum tilgangi. Spámennirnir höfðu reyndar sagt fyrir að hann myndi nota líkingar. Spádómur þeirra var á þessa leið:

35„Ég mun tala í dæmisögum. Ég mun útskýra leyndardóma sem legið hafa í þagnargildi frá örófi alda.“

Dæmisagan um illgresið og hveitið útskýrð

36Jesús yfirgaf nú fólkið og gekk inn í hús. Lærisveinar hans báðu hann þá að útskýra líkinguna um illgresið og hveitið. 37„Það skal ég gera,“ sagði hann. „Ég er bóndinn sem sáir góða sæðinu. 38Akurinn er allur heimurinn. Góða sæðið eru börn guðsríkisins. Illgresið er fólk sem fylgir óvininum. 39Óvinurinn, sem sáði illgresinu meðal hveitisins, er Satan. Uppskerutíminn er dómsdagur. Kornskurðarmennirnir eru englar. 40Eins og illgresi er brennt, eins mun fara við endi veraldar. 41Ég mun senda engla mína til að skilja frá alla vonda menn og allt sem veldur synd, 42varpa á bál og brenna. Þar mun verða grátið og kveinað. 43En börn Guðs munu ljóma eins og sólin í ríki föðurins. Takið vel eftir þessu!“

Dæmisagan um fundinn fjársjóð

44„Ríki himnanna er líkt fjársjóði sem maður fann í akri einum. Í ákafa sínum seldi hann allt sem hann átti, til að geta keypt akurinn – og náð fjársjóðnum!“

Dæmisagan um dýru perluna

45„Himnaríki er einnig líkt perlukaupmanni, sem leitaði að dýrum perlum. 46Hann gerði góð kaup þegar hann fann afar verðmæta perlu, seldi allar eigur sínar og keypti hana.“

Dæmisagan um netið

47„Guðsríki má enn líkja við fiskimann. Hann kastar neti út í vatnið og veiðir í það fisk af ýmsum tegundum, bæði verðmætum og verðlausum. Þegar netið er orðið fullt dregur hann það á land og safnar ætu fiskunum saman, en fleygir hinum. 49Þannig fer líka á dómsdegi. Englar munu koma, skilja hina óguðlegu frá hinum trúuðu og 50kasta hinum óguðlegu á bálið. Þar verður grátið og kveinað. 51Skiljið þið þetta?“ spurði Jesús. „Já,“ svöruðu þeir. 52Þá bætti hann við og sagði: „Þeir sem vel eru að sér í Guðs orði og hafa gjörst lærisveinar mínir, eiga fjársjóð sem geymir bæði gamla og nýja þekkingu.“

Jesú hafnað í Nasaret

53Þegar Jesús hafði sagt þessar dæmisögur, sneri hann aftur til Nasaret í Galíleu (þar sem hann hafði átt heima.) Hann kenndi í samkomuhúsinu og fólk undraðist visku hans og máttarverk. „Hvernig stendur á þessu?!“ hrópaði það. 55„Er þetta ekki sonur smiðsins? Við þekkjum móður hans, Maríu, bræður hans, Jakob, Jósef, Símon og Júdas, 56og systur hans eru hér allar. Hvaðan hefur hann þetta vald?“ 57Þeir hneyksluðust á honum. Þá sagði Jesús við þá: „Hvergi er spámaður minna metinn en á heimili sínu og meðal eigin fólks!“ Hann gerði fá kraftaverk þar vegna vantrúar þeirra.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Parábolas do Reino dos Céus

  • No dia que este capítulo descreve, Jesus saiu de casa e sentou-se à beira do mar. A multidão ficou tão grande que ele entrou num barco e ensinou dali, enquanto o povo permanecia em pé na praia, e não lhes falou nada senão em parábolas. Uma cronologia data essas parábolas à beira-mar em 28 d.C.Fontes: o próprio texto bíblico · Seaside Parables and Miracle
  • Quando os discípulos perguntaram por que ele falava ao povo em parábolas, Jesus respondeu que o conhecimento dos mistérios do reino dos céus lhes tinha sido dado, mas não às multidões. Disse que a profecia de Isaías se cumpria nas multidões: continuariam ouvindo e vendo, mas jamais entenderiam ou perceberiam, porque o coração delas se havia endurecido. O Easton’s Bible Dictionary (1897) descreve Isaías como filho de Amoz, que profetizou durante os reinados de Uzias, Jotão, Acaz e Ezequias.Fontes: o próprio texto bíblico · Isaiah
  • Mais tarde, Jesus chegou à sua cidade natal, ensinou na sinagoga, e o povo se ofendeu com ele. Perguntaram se ele era o filho do carpinteiro, nomearam sua mãe Maria e seus irmãos Tiago, José, Simão e Judas, e observaram que suas irmãs viviam entre eles; por causa da incredulidade deles, ele não fez muitos milagres ali. Maria é identificada como esposa de José e mãe de Jesus, Simão como um dos irmãos do Senhor, e uma cronologia data essa segunda rejeição em Nazaré no ano 29 d.C.Fontes: o próprio texto bíblico · Mary (Mother of Jesus) · Simon · 2nd Rejection at Nazareth

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 54

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.