Mateus 12
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Jesús er herra hvíldardagsins
1Um þetta leyti gekk Jesús á helgidegi yfir kornakur ásamt lærisveinum sínum. Lærisveinarnir voru svangir, svo að þeir týndu nokkur hveitiöx og átu kornið sem í þeim var. 2Farísear sem þar voru og sáu til þeirra, sögðu við Jesú: „Sérðu ekki að lærisveinar þínir eru að brjóta lögin? Þetta er bannað að gera á helgidegi!“ 3En Jesús svaraði þeim: „Hafið þið aldrei lesið hvað Davíð konungur gerði þegar hann og menn hans fundu til hungurs? 4Hann fór inn í guðshús ásamt mönnum sínum og át brauðið sem prestunum einum var heimilt að borða. Það var einnig lagabrot. 5Hafið þið aldrei lesið í lögum Móse að prestarnir, sem gegna þjónustu í musterinu, verða að vinna störf sín á helgidögum jafnt sem aðra daga. 6Ég segi: Hér á í hlut sá sem er meiri en musterið. 7Þið hefðuð ekki dæmt þessa saklausu menn, ef þið skilduð hvað þessi orð þýða: „Miskunnsemi met ég meira en fórn“. 8Ég, Kristur, er herra hvíldardagsins.“
Lækning á hvíldardegi
9Jesús lagði nú leið sína til samkomuhússins. 10Þar var staddur maður með bæklaða hönd. Farísearnir spurðu Jesú: „Er leyfilegt að lækna á hvíldardegi?“ (Þeir vonuðu auðvitað að hann mundi svara „já“ svo að þeir hefðu tilefni til að handtaka hann.) 11Hann svaraði: „Ef einhver ætti aðeins eina kind og hún félli í skurð á helgidegi, mundi hann þá ekki leggja það á sig að bjarga henni þótt helgidagur væri? Auðvitað! 12Og er maður ekki meira virði en sauðkind? Þar af leiðir: Það er leyfilegt að vinna góð verk á helgidegi.“ 13Síðan sagði hann við manninn: „Réttu fram hönd þína.“ Maðurinn gerði það og um leið varð hönd hans heil!
14Farísearnir skutu þegar á fundi og gerðu samsæri um að handtaka Jesú og lífláta hann.
Takið eftir þjóni mínum
15Jesús vissi um áform þeirra og yfirgaf því samkomuhúsið, og fóru margir með honum. Hann læknaði alla sem sjúkir voru meðal þeirra, 16en varaði þá jafnframt við að bera út fréttir um kraftaverk hans. 17Þar með rættist spádómur Jesaja um hann:
18„Takið eftir þjóni mínum, sem ég hef útvalið! Ég elska hann og hef yndi af honum. Ég mun gefa honum anda minn og hann mun dæma þjóðirnar. 19Hann beitir engan ofríki og fer ekki með háreysti. 20Hann brýtur ekki hið veika strá og ógnar ekki hinu ístöðulitla. Sigur hans mun stöðva allt misrétti og ranglæti 21og á hann munu þjóðirnar treysta.“
Sundrað ríki leggst í auðn
22Þá var komið til hans með mann sem var bæði blindur og mállaus og þjáðist af illum anda. Jesús læknaði manninn og hann fékk bæði sjón og mál á ný. 23Þá hrópaði fólkið: „Getur verið að þessi Jesús sé Kristur?!“
24Þegar farísearnir heyrðu um kraftaverkið sögðu þeir: „Hann rekur út illa anda með aðstoð Satans, foringja illu andanna.“
25Jesús skynjaði hugsanir þeirra og sagði: „Ríki sem er sundrað hlýtur að leggjast í auðn. Borg eða heimili, þar sem allt logar í ófriði, fær ekki staðist. 26Ef Satan rekur Satan út, er hann að berjast gegn sjálfum sér og sundra ríki sínu. Ef ég beiti valdi Satans til að reka út illa anda, 27með hvaða krafti rekur þá ykkar fólk þá út? Svari það ásökun ykkar! 28En ef ég rek illa anda út með mætti Guðs, þá er ríki hans komið á meðal ykkar. 29Enginn kemst inn í hús voldugs manns og rænir eigum hans nema binda hann fyrst. Eins er með ríki Satans, sé hann bundinn er hægt að reka illu andana út. 30Sá sem ekki vinnur með mér vinnur gegn mér.
Ófyrirgefanleg synd
31Háð gegn mér er unnt að fyrirgefa og einnig allar aðrar syndir, nema eina: Lastmæli gegn heilögum anda verður aldrei fyrirgefið, hvorki í þessum heimi né hinum komandi.
Tré þekkist af ávextinum
33Tré þekkist af ávexti sínum. Tré af valinni tegund ber góðan ávöxt, en léleg tegund vondan ávöxt. 34Þið höggormsafkvæmi! Hvernig ættu vondir menn eins og þið að geta talað máli góðsemi og réttlætis?
Hugarfar mannsins ákveður orð hans. 35Góður maður ber vitni um gott innræti með orðum sínum, en vondur maður tjáir illt innræti með tali sínu. 36Eitt er víst: Á degi dómsins verðið þið að gera grein fyrir hverju ónytjuorði sem þið hafið sagt. 37Orð þau, sem þið mælið nú, ákveða örlög ykkar þá. Annað hvort munu þau sýkna ykkur eða sakfella.“
Sannaðu mál þitt
38Þá svöruðu nokkrir fræðimenn og farísear honum og sögðu: „Sýndu okkur kraftaverk.“ Með kraftaverkinu átti Jesús að sanna að hann væri Kristur. 39Jesús svaraði: „Aðeins vont og vantrúað fólk heimtar slíkar sannanir. Reynsla Jónasar spámanns á að vera ykkur nægileg sönnun. Jónas var þrjá sólarhringa í stórfiskinum, og ég, Kristur, mun sömuleiðis verða þrjá daga í skauti jarðarinnar. 41Á degi dómsins munu íbúar Niníve rísa upp gegn þessari þjóð og dæma hana. Þegar Jónas áminnti þá, iðruðust þeir og sneru sér frá syndum sínum til Guðs. Hér stendur sá sem æðri er Jónasi, en samt viljið þið ekki trúa honum!
42Drottningin af Saba mun rísa upp í dóminum, tala gegn þessari þjóð og dæma hana seka. Hún kom frá fjarlægu landi til að hlýða á speki Salómons, en hér stendur sá sem er æðri en Salómon, og þið neitið að trúa honum.“
Illur andi snýr aftur
43„Þessi þjóð er líkt og haldin illum anda! Þegar illur andi er farinn úr manni, fer hann út í eyðimörkina um stund og leitar hvíldar, en án árangurs og því segir hann: „Ég vil fara aftur í manninn sem ég var í.“ Þá fer hann og finnur sjö aðra anda, sér verri. Þeir fara síðan og búa um sig í manninum, og ástand hans verður verra en áður.“
Móðir Jesú og bræður
46Meðan Jesús var að tala, kom móðir hans og bræður að útidyrunum og vildu fá að hitta hann (en þau komust ekki inn vegna þrengsla).
48Þegar honum var sagt frá þessu spurði hann: „Hver er móðir mín? Hverjir eru bræður mínir?“ 49Því næst benti hann á lærisveina sína og sagði: „Sjáið! Þarna er móðir mín og bræður.“ 50Síðan bætti hann við: „Hver sá sem hlýðir föður mínum á himnum er bróðir minn, systir og móðir.“

Você sabia?
Senhor do sábado e os sinais do Reino
- Quando questionado pelos fariseus por colher espigas no sábado, Jesus citou o relato do Antigo Testamento sobre Davi comendo os pães da proposição quando teve fome. Ele argumentou que a necessidade humana e o fazer o bem têm prioridade sobre as regras rituais, declarando-se o Senhor do sábado.Fontes: o próprio texto bíblico · David
- Depois de expulsar um demônio de um homem cego e mudo, Jesus foi acusado de agir por meio de Belzebu, o príncipe dos demônios. Jesus rejeitou a acusação, explicando que um reino ou casa dividida contra si mesma não subsiste e que expulsar demônios pelo Espírito de Deus demonstra a chegada do reino de Deus.Fontes: o próprio texto bíblico · Satan
- Em resposta aos pedidos por um sinal milagroso, Jesus apontou para o profeta Jonas, comparando os três dias de Jonas no ventre do peixe à sua própria morte e sepultamento futuros. Ele advertiu que os habitantes de Nínive e a Rainha do Sul julgariam aquela geração porque responderam a Jonas e a Salomão, enquanto alguém maior estava agora presente.Fontes: o próprio texto bíblico · Jonah · Nineveh · Solomon
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org