Atos 3
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Pétur og Jóhannes lækna lamaðan mann
1Dag nokkurn fóru Pétur og Jóhannes upp í musterið til þess að taka þátt í hinni daglegu bænastund, sem var klukkan þrjú síðdegis. 2Þegar þeir gengu inn, sáu þeir að lamaður maður var borinn þangað og lagður við eitt musterishliðið, sem kallað var Fögrudyr. Þarna var hann vanur að vera á hverjum degi. 3Þegar Pétur og Jóhannes gengu fram hjá honum, bað hann þá um peninga.
4Þeir virtu hann fyrir sér og Pétur sagði: „Horfðu hingað.“
5Lamaði maðurinn einblíndi á þá í von um að fá eitthvað.
6„Peninga á ég ekki,“ sagði Pétur, „en ég skal gefa þér það sem ég hef. Í nafni Jesú Krists frá Nasaret, segi ég: Gakktu!“
7Pétur tók í höndina á lamaða manninum til að reisa hann upp. Um leið urðu fætur hans og ökklar styrkir og hann stökk á fætur. Hann stóð andartak kyrr, en fór síðan að ganga! Hann gekk, hljóp og lofaði Guð og fór svo með þeim inn í musterið. 9Þegar fólkið, sem var inni í musterinu, sá manninn ganga um og lofa Guð, 10áttaði það sig. Þetta var lamaði betlarinn, sem það hafði séð svo oft við Fögrudyr. Allir urðu furðu lostnir. 11Fólk streymdi nú frá sér numið til súlnaganga Salómons, þar sem betlarinn hélt sig nærri Pétri og Jóhannesi.
12Pétur notaði tækifærið og ávarpaði mannfjöldann: „Ísraelsmenn, hvers vegna eruð þið svona undrandi og hví starið þið á okkur? Haldið þið ef til vill að við höfum í eigin krafti og guðdómleika gert þennan mann færan um að ganga? 13Nei, það er Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs – Guð forfeðra okkar, sem hefur gert Jesú, þjón sinn, dýrlegan á þennan hátt. Ég á við Jesú, sem þið höfnuðuð frammi fyrir Pílatusi, þrátt fyrir ásetning Pílatusar um að láta hann lausan. 14Þið vilduð ekki að honum yrði sleppt, hann sem er heilagur og réttlátur. Í hans stað heimtuðuð þið morðingjann lausan, 15og deydduð höfund lífsins, Jesú. En Guð reisti hann upp frá dauðum. Það getum við Jóhannes staðfest, því að eftir að þið líflétuð hann, sáum við hann lifandi!
16Það er Jesús sem læknaði þennan mann, en hann var lamaður, það vitið þið. Trúin á mátt Jesú hefur gert þessa fullkomnu lækningu mögulega.
17Kæru vinir, ég veit að það sem þið gerðuð við Jesú, var gert af vanþekkingu og sama má segja um leiðtoga ykkar. 18En þessa leið fór Guð til að uppfylla spádómana um að Kristur yrði að þjást. 19Breytið nú um hugarfar og gerið iðrun. Snúið ykkur til Guðs, svo að hann geti hreinsað burt syndir ykkar. Hann getur gefið ykkur endurnýjunartíma 20og sent ykkur Jesú á ný, konunginn, sem ykkur hafði verið heitinn. 21Jesús verður að dveljast á himnum uns allt, sem syndin eyðilagði, hefur verið endurnýjað, eins og lofað var í upphafi. Móse sagði til dæmis fyrir löngu: „Drottinn Guð mun vekja upp spámann líkan mér á meðal ykkar. Hlustið með athygli á orð hans, 23því að þeim, sem óhlýðnast honum, verður tortímt.“
24Samúel og allir spámennirnir, sem eftir hann komu, hafa rætt um það sem nú er að gerast. 25Þið eruð afkomendur spámannanna og ykkur er einnig ætlað þetta loforð, sem Guð gaf forfeðrum ykkar. Hann ætlar að nota Gyðinga sem farveg fyrir blessun sína um allan heiminn – um það hljóðaði loforðið sem Guð gaf Abraham. 26Þegar Guð hafði vakið þjón sinn aftur til lífsins, sendi hann hann til ykkar Ísraelsmanna til blessunar og til þess að leiða ykkur burt frá syndinni.“

Você sabia?
Cura e pregação no templo
- A porta do templo chamada Formosa, onde um homem coxo de nascença era colocado todos os dias para mendigar, é nomeada neste capítulo. Supõe-se que fosse a porta que ia do pátio dos gentios ao pátio das mulheres; era maciça e coberta com placas de latão coríntio.Fontes: Beautiful Gate · o próprio texto bíblico
- Depois da cura, a multidão admirada correu até Pedro e João no passeio chamado Pórtico de Salomão. Era uma colunata, ou claustro, provavelmente no lado oriental do templo; não é mencionada em conexão com o primeiro templo, mas Josefo menciona um pórtico com esse nome no templo de Herodes.Fontes: Solomon's Portico · o próprio texto bíblico
- No discurso ali, Pedro disse que o povo entregara Jesus e o rejeitara diante de Pilatos, embora Pilatos houvesse decidido soltá-lo. Um verbete de dicionário identifica Pôncio Pilatos como o sexto procurador romano da Judeia, de 26 a 36 d.C., com sede em Cesareia, embora subisse com frequência a Jerusalém; seu nome ganha destaque especial em conexão com o julgamento de Jesus.Fontes: Pontius Pilate · o próprio texto bíblico
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Beautiful Gate · Hoje: in Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 2, 10
- Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 6
- Solomon’s Portico · Hoje: in Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 11
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org