Atos 2
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
Hvítasunnudagurinn
1Nú voru liðnar sjö vikur frá dauða og upprisu Jesú og kominn hvítasunnudagur. Þegar hinir trúuðu höfðu safnast saman þennan dag, 2heyrðist skyndilega þytur, líkt og stormgnýr, uppi yfir þeim og fyllti húsið sem þeir voru í. 3Síðan birtist eitthvað sem líktist eldtungum og settist á höfuð þeirra. 4Þá fylltust þeir allir heilögum anda og fóru að tala tungumál, sem þeir höfðu aldrei lært, en heilagur andi gerði þeim kleift að tala.
5Margir guðræknir Gyðingar voru í Jerúsalem þennan dag. Þeir höfðu komið frá ýmsum löndum, til að taka þátt í hátíðinni. 6Þegar þeir heyrðu stormgnýinn fara um loftið komu þeir hlaupandi til að sjá hvað væri á seyði. Þegar fólkið heyrði lærisveinana tala á sínum þjóðtungum varð það forviða.
7„Hvernig má þetta vera?“ hrópaði það. „Eru þetta ekki allt saman Galíleumenn? 8Samt heyrum við þá tala okkar eigin tungumál! 9Við, sem erum Partar, Medar og Elamítar, og komum frá Mesapótamíu, Júdeu, Kappadókíu, Pontus og Asíu. 10Við frá Frýgíu, Pamfýlíu, Egyptalandi, og við sem tölum Kýrene-mállýskuna í Líbýu, og við sem komum frá Róm – bæði Gyðingar og þeir sem tekið hafa Gyðingatrú – 11Krítverjar og Arabar… við heyrum þá tala á okkar máli um máttarverk Guðs!“
12Þarna stóð fólkið og vissi ekki sitt rjúkandi ráð. „Hvað er nú þetta?“ spurði það hvert annað.
13Aðrir gerðu grín að öllu saman og sögðu: „Þeir eru drukknir, það er allt og sumt!“
14Þá gekk Pétur fram, ásamt postulunum ellefu og kallaði til mannfjöldans: „Hlustið nú öll, hvort sem þið eruð gestir eða íbúar í Jerúsalem. 15Sumir ykkar segja að þessir menn séu drukknir. Það er ekki rétt. Það er ekki orðið nógu áliðið dags til að svo geti verið. Menn drekka sig ekki fulla klukkan 9 að morgni. 16Þetta sem þið hafið séð í morgun, var sagt fyrir af Jóel spámanni fyrir mörgum öldum: 17„Á hinum síðustu dögum,“ segir Guð, „mun ég úthella anda mínum yfir alla menn. Og þá munu synir ykkar og dætur spá, æskumenn ykkar sjá sýnir og aldrað fólk mun dreyma merkilega drauma. 18Heilagur andi mun koma yfir alla þjóna mína, konur og karla, og þau munu spá. 19Ég mun láta undur gerast á himni og jörðu – blóð, eld og reykjarmökk. 20Sólin skal verða svört og tunglið rautt eins og blóð, áður en hinn mikli og dýrlegi dagur Drottins kemur. 21En hver sem ákallar Drottin mun frelsast.“
22Ísraelsmenn, takið eftir! Guð sýndi berlega hver Jesús frá Nasaret var, með því að láta hann vinna mikil kraftaverk, sem ykkur eru kunn. 23Guð, sem var að framkvæma fyrirætlun sína, leyfði ykkur með aðstoð rómverskra yfirvalda að negla Jesú á krossinn og taka hann af lífi. 24Eftir það leysti Guð hann úr greipum dauðans og lét hann vakna aftur til lífsins, því dauðinn gat ekki haldið honum.
25Davíð konungur segir um hann:
„Ég veit að Drottinn er alltaf með mér. Hann hjálpar mér. Hann styður mig með mætti sínum.
26Því gleðst hjarta mitt og tunga mín vegsamar hann. Ég veit að líkami minn þarf ekki að óttast dauðann, 27því að hvorki munt þú skilja sál mína eftir meðal hinna dánu, né láta líkama sonar þíns rotna.
28Þú gefur mér lífið á ný og fyllir mig dýrlegri gleði í nálægð þinni.“
29Kæru vinir, hugleiðið þetta. Davíð var ekki að tala um sjálfan sig, þegar hann sagði þessi orð, því að hann dó og var grafinn og gröf hans er enn hér á meðal okkar. 30En hann var spámaður og vissi að Guð hafði lofað því með órjúfanlegum eiði, að einn af afkomendum hans skyldi verða Kristur og sitja í hásæti hans. 31Davíð sá langt fram í tímann og sagði fyrir um upprisu Krists, að sál hans yrði ekki skilin eftir meðal hinna dánu og líkami hans myndi ekki heldur rotna. 32Þarna var hann að tala um Jesú og við erum öll vitni að því að Jesús reis upp frá dauðum.
33Nú situr hann í æðsta heiðurssæti á himnum við hlið Guðs. Faðirinn hafði lofað að gefa honum vald til að senda heilagan anda – og í dag hafið þið séð þetta loforð efnt.
34Davíð var aldrei hafinn til himins. En hann sagði einnig: „Guð sagði við minn Drottin, það er að segja Krist: „Set þig hér í heiðurssætið við hlið mér, 35þar til ég hef gjörsigrað óvini þína.“ “ 36Ég lýsi því hér með yfir við alla í Ísrael að Guð hefur gert þennan Jesú, sem þið krossfestuð, bæði að Drottni og Kristi.“
37Orð Péturs höfðu djúp áhrif á fólkið og það sagði við hann og hina postulana: „Hvað eigum við þá að gera, bræður?“
38Pétur svaraði: „Sérhvert ykkar verður að snúa sér frá syndinni og láta skírast í nafni Jesú Krists til fyrirgefningar syndanna, og þá fáið þið einnig þessa gjöf, heilagan anda. 39Kristur hét því að allir skyldu fá gjöf heilags anda, allir sem Drottinn Guð okkar kallar til sín, einnig börnin ykkar og þeir sem búa í fjarlægum löndum.“
40Pétur hélt langa ræðu, skoraði á fólkið og sagði: „Látið frelsast frá syndum þessarar þjóðar!“ 41Þeir sem trúðu orðum Péturs tóku skírn, alls um 3.000 manns. 42Þau héldu fast við kenningu postulanna og ræktu samfélagið, brotningu brauðsins og bænirnar. 43Öll ræktu þau trú sína vel og postularnir gerðu mörg kraftaverk.
44Allir sem trúðu héldu hópinn og höfðu allt sameiginlegt. 45Þeir seldu eigur sínar og skiptu síðan milli allra eftir þörfum hvers og eins. 46Þeir komu daglega saman í musterinu, til að lofa Guð og tilbiðja. Einnig hittist fólkið í smáhópum, í heimahúsum, þar sem brauðið var brotið. Þau neyttu fæðunnar með gleði og þakklæti, 47og vegsömuðu Guð. Þau voru vinsæl meðal allra og Drottinn bætti daglega í hópinn nýju fólki sem lét frelsast.

Você sabia?
O Espírito vem no Pentecostes
- Judeus tementes a Deus, de todas as nações debaixo do céu, já moravam em Jerusalém quando um som como o de um vento forte e impetuoso veio do céu e encheu a casa, e os que falavam começaram a anunciar as maravilhas de Deus em outras línguas. Neste capítulo, “Ásia” é a província romana da Ásia Proconsular, na parte ocidental da Ásia Menor, cuja capital era Éfeso — e não o continente com esse nome. O Ponto, ao longo da costa sul do mar Euxino, era uma província romana no tempo dos apóstolos e um lugar frequentado por muitos judeus da Dispersão; a Capadócia era a província mais oriental e a maior da Ásia Menor.Fontes: o próprio texto bíblico · Asia · Pontus · Cappadocia
- A multidão ficou espantada de que os que falavam fossem galileus. Quem se levantou com os Onze e lhes falou foi Simão Pedro, chamado antes Simão — isto é, Simeão, que significa “ouvir” —, um pescador de Betsaida, na costa ocidental do mar da Galileia, a quem seu irmão mais novo, André, levou primeiro a Jesus.Fontes: o próprio texto bíblico · Simon Peter
- Pedro disse que aquilo era o que havia falado o profeta Joel. Joel, o segundo dos doze profetas menores, era filho de Petuel, e sua história pessoal só é conhecida pelo seu livro. Pedro também citou Davi, o oitavo e o mais novo dos filhos de Jessé, de Belém, e disse à multidão que esse patriarca havia morrido e fora sepultado, e que seu túmulo ainda estava com eles em Jerusalém.Fontes: o próprio texto bíblico · Joel · David
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 5, 14
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 7
- Asia · 38.400, 28.300 · versículo 9
- Cappadocia · 38.671, 34.839 · versículo 9
- Judea · Hoje: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículos 9, 14
- Mesopotamia · Hoje: Aram-naharaim · 36.864, 39.033 · versículo 9
- Pontus · 40.680, 37.830 · versículo 9
- Cyrene · 32.821, 21.851 · versículo 10
- Egypt · 30.129, 31.308 · versículo 10
- Libya · 32.821, 21.851 · versículo 10
- Pamphylia · 37.000, 31.000 · versículo 10
- Phrygia · 39.000, 31.000 · versículo 10
- Rome · 41.892, 12.485 · versículo 10
- Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 22
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org