Nations Bible

1 Coríntios 12

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Um gjafir heilags anda

1Vinir, nú langar mig að minnast á þá sérstöku hæfileika – náðargjafir – sem heilagur andi gefur hverju og einu ykkar, því að ég vil ekki að neinn misskilningur sé um þau efni. 2Þið munið að áður en þið urðuð kristin, eltust þið við hvern hjáguðinn á fætur öðrum og enginn þeirra gat sagt eitt einasta orð. 3Nú kynnist þið hins vegar fólki sem telur sig flytja boð frá anda Guðs. Hvernig getið þið þekkt hvort boðin eru frá heilögum anda eða fölsuð? Það getið þið á þessu: Enginn, sem bölvar Jesú eða lítilsvirðir hann, getur talað af innblæstri heilags anda og enginn getur sagt:

„Jesús er konungurinn, hann er Drottinn,“ og meint það, án hjálpar heilags anda.

4Guð gefur okkur margvíslegar náðargjafir og þær eru allar komnar frá einum og sama andanum – heilögum anda. 5Hægt er að þjóna Guði á marga vegu. 6Guð starfar á ýmsan hátt í lífi okkar, en samt er það hinn eini sanni Guð, sem vinnur verkið. 7Heilagur andi opinberar kraft Guðs í hverjum og einum, með þeim hætti sem helst verður kirkju hans til eflingar.

8Einum gefur andi Guðs hæfileika til að veita góð ráð – tala vísdómsorð. Öðrum er gefið að geta talað af þekkingu og það kemur frá sama anda. 9Öðrum gefur hann mikla trú og enn öðrum kraft til að lækna sjúka. 10Sumum gefur hann hæfileika til að gera kraftaverk, öðrum að geta spáð og predikað af innblæstri. Aðrir fá hæfileika til að skynja hvort illir andar tali í gegnum þá um það sem þeir ekki vita. Enn aðrir geta talað tungumál, sem þeir hafa aldrei lært – talað tungum – og öðrum sem ekki kunna viðkomandi tungumál, er gefið að skilja hvað hinn segir. 11Hinn sami heilagi andi gefur allar þessar gjafir og hann ákveður hvað hver og einn okkar skuli hljóta. 12Margir líkamshlutar mynda saman einn líkama. Þannig er einnig með líkama Krists – kirkjuna. 13Hvert og eitt okkar er hluti af líkama Krists. Sumir eru Gyðingar, aðrir Grikkir, sumir eru þrælar, aðrir frjálsir, en heilagur andi hefur í skírninni tengt okkur öll saman í líkama Krists og öll höfum við fengið hlutdeild í sama heilaga anda.

14Líkaminn hefur marga líkamshluta, ekki aðeins einn. 15Ef fóturinn segði: „Ég er ekki hönd, og mig varðar því ekkert um líkamann“ þá yrði hann samt ekki líkamanum óviðkomandi. 16Og hvað fyndist þér ef þú heyrðir eyrað segja: „Ég tilheyri ekki þessum líkama, því að ég er aðeins eyra en ekki auga!“ Væri það þá laust við líkamann? 17Ef líkaminn væri allur eitt auga, hvernig gæti hann þá heyrt? Eða væri hann aðeins eitt stórt eyra, gæti hann þá fundið lykt?

18Nei, þannig skapaði Guð okkur ekki. Hann skapaði okkur með marga líkamshluta og hver hluti er á réttum stað. 19Það væri furðulegur líkami, sem væri aðeins einn limur! 20Guð gerði því marga líkamshluta – marga limi – sem saman mynda einn líkama. 21Augað getur aldrei sagt við höndina: „Ég þarf ekkert á þér að halda!“ Og höfuðið getur ekki sagt við fótinn: „Ég hef enga þörf fyrir þig!“

22Sumir þeir líkamshlutar sem virðast veikbyggðastir, eru jafnvel nauðsynlegastir. 23Já, við erum ánægð yfir að hafa vissa hluta sem skrýtnir eru. Og þá sem við viljum ekki að aðrir sjái og sem við blygðumst okkar fyrir, hyljum við vandlega, 24meðan þeir líkamshlutar, sem allir mega sjá, krefjast ekki slíkrar umhyggju. Guð kom því þannig fyrir að meiri umhyggja og virðing er sýnd þeim sem gætu virst minni háttar. 25Þetta hefur það í för með sér að allir líkamshlutarnir eru ánægðir og bera sömu umhyggju hver fyrir öðrum og þeir bera fyrir sjálfum sér. 26Ef einn limur þjáist, finna allir til með honum og veitist einhverjum sæmd, samgleðjast allir hinir.

27Jæja, ég er að reyna að segja þetta: Þið eruð öll sameiginlega líkami Krists og hver um sig sérstakur og nauðsynlegur hluti hans.

28Í kirkju sinni, sem er líkami hans, hefur hann í fyrsta lagi postula, í öðru lagi spámenn – þá sem af innblæstri heilags anda flytja boðskap frá Guði – og í þriðja lagi kennara. Sumir gera kraftaverk, aðrir hafa hæfileika til að lækna, enn aðrir helga sig líknarstörfum. Sumir hafa skipulagsgáfu, – eiga gott með að láta menn vinna saman, – og tala tungum – tala tungumál sem þeir hafa ekki lært. 29Eru allir postular? Auðvitað ekki! Eru allir postular og spámenn? Nei. Eru allir kennarar? Gera allir kraftaverk? 30Fást allir við lækningar? Vitaskuld ekki! Tala allir tungum? Útlista allir tungutal? 31Nei, en keppist öll eftir því að eignast þá af þessum hæfileikum sem mikilvægastir eru.

Hið mikilvægasta af öllu

Leyfið mér nú að segja ykkur frá öðru sem er betra en allir þessir hæfileikar.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Dons espirituais e um só corpo

  • O capítulo começa lembrando que os leitores, quando eram pagãos, eram levados a ídolos mudos. Em seguida, estabelece um critério para o que se diz de Jesus: ninguém que fala pelo Espírito de Deus amaldiçoa Jesus, e ninguém pode confessar que Jesus é Senhor senão pelo Espírito Santo.Fontes: o próprio texto bíblico
  • Os dons, os ministérios e os modos de agir são diferentes, mas vêm do mesmo Espírito, do mesmo Senhor e do mesmo Deus, que realiza todas as coisas em todas as pessoas. A manifestação do Espírito é dada a cada um para o bem comum, e o único Espírito as distribui — entre elas sabedoria, conhecimento, fé, curas, milagres, profecia, discernimento de espíritos, variedade de línguas e interpretação — como ele determina. As perguntas do final dizem o mesmo: nem todos são apóstolos, profetas ou mestres, e nem todos falam em línguas ou as interpretam.Fontes: o próprio texto bíblico
  • Os muitos membros são comparados a um só corpo, e o mesmo se diz de Cristo. Em um só Espírito todos foram batizados nesse único corpo, judeus ou gregos, escravos ou livres, e a todos foi dado beber de um só Espírito. As partes que parecem mais fracas são chamadas indispensáveis, e às consideradas menos honrosas é dada maior honra, para que não haja divisão e os membros sofram e se alegrem juntos.Fontes: o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.