Nations Bible

1 Coríntios 11

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Staða konunnar

1Fylgið því fordæmi mínu eins og ég fylgi fordæmi Jesú Krists. 2Það gleður mig mjög, kæru vinir, að þið hafið munað og iðkað allt sem ég kenndi ykkur. 3En ég vil að þið vitið að eiginkona ber ábyrgð gagnvart manni sínum, eiginmaðurinn er ábyrgur gagnvart Kristi, og Kristur gagnvart Guði. 4Ef karlmaður ber höfuðfat, meðan hann biður eða predikar, vanvirðir hann því Krist. 5Af sömu ástæðu mun sú kona, er biður opinberlega eða spáir, það er, flytur boðskap frá Guði, án þess að hafa á höfðinu, vanvirða eiginmann sinn, því að höfuðbúnaður hennar er tákn undirgefni hennar. 6Ef hún neitar að hafa á höfðinu, gæti hún eins vel rakað af sér hárið. Og fyrst það er niðurlægjandi fyrir konu að vera sköllótt, þá ætti hún að hylja höfuð sitt. 7Karlmaður ætti hins vegar ekkert að hafa á höfðinu er hann biðst fyrir, því að hlutverk hans sem yfirvalds er að vera ímynd vegsemdar Guðs. Konan er hins vegar vegsemd mannsins. 8Fyrsti karlmaðurinn kom ekki af konu, heldur kom konan af karlinum. 9Adam – karlmaðurinn – var ekki skapaður vegna Evu, heldur Eva handa Adam. 10Konan ætti því að bera höfuðbúnað, sem tákn þess að hún lýtur yfirráðum manns sín á sama hátt og englarnir lúta vilja og valdi Guðs.

11En minnist þess að samkvæmt vilja Drottins, þarfnast maður og kona hvers annars, 12því að þótt fyrsta konan hafi komið frá manninum, eru allir karlmenn síðan fæddir af konum og bæði konur og karlmenn koma frá Guði, skaparanum.

13Hvað finnst ykkur sjálfum? Er rétt að kona biðjist opinberlega fyrir berhöfðuð? 14Höfum við það ekki á tilfinningunni að höfuð kvenna eigi að vera hulin? Konur eru nefnilega stoltar af síðu hári sínu en síðhærður karlmaður er langt frá því að vera karlmannlegur. 16En vilji einhver gera þetta að deilumáli, þá vil ég segja eitt, að við höfum ekki þann sið, né kirkja Guðs yfirleitt, að setja þess konar mál á oddinn.

Spurningar um heilaga kvöldmáltíð

17Næst vil ég taka fyrir annað atriði sem ég felli mig ekki við hjá ykkur. Það virðist vera frekar til tjóns en gagns er þið komið saman til heilagrar kvöldmáltíðar. 18Mér er sagt að við slíkar guðsþjónustur séu flokkadrættir og deilur á meðal ykkar og því trúi ég vel. 19Ég geri ráð fyrir að ykkur finnist slíkt nauðsynlegt, svo að þið, sem alltaf hafið rétt fyrir ykkur, fáið athygli annarra og viðurkenningu.

20Þegar þið hegðið ykkur á þennan hátt, þá er það ekki kvöldmáltíð Drottins sem þið neytið, 21heldur ykkar eigin máltíð. Mér hefur nefnilega verið sagt að hver og einn hrifsi til sín það sem hann getur, án þess að bíða eftir hinum. Þannig fær einn ekki nóg meðan annar fær of mikið. 22Er þetta ekki satt? Getið þið ekki borðað og drukkið að vild heima hjá ykkur, til að forðast það að vanvirða söfnuðinn og valda þeim blygðun sem fátækir eru og ekkert geta tekið með sér að heiman? Hvað á ég að segja við þessu? Á ég að hrósa ykkur? Nei, það get ég ekki.

23Drottinn sjálfur sagði þetta um heilaga kvöldmáltíð, og ég hef reyndar sagt ykkur það áður: Á þeirri nótt, sem hann var svikinn, tók hann brauð, 24og er hann hafði þakkað Guði, braut hann það og gaf lærisveinum sínum og sagði: „Takið og etið. Þetta er líkami minn sem fyrir ykkur er gefinn. Gerið þetta í mína minningu.“ 25Á sama hátt tók hann eftir kvöldverðinn bikarinn með víninu og sagði: „Þessi bikar er hinn nýi sáttmáli milli Guðs og ykkar, sem gerður hefur verið og staðfestur með dauða mínum – blóði mínu. Gerið þetta ætíð er þið drekkið í mína minningu.“ 26Því að hvert sinn sem þið etið þetta brauð og drekkið af þessum bikar, þá boðið þið dauða Drottins og allt það sem hann hefur gert, allt til þess er hann kemur aftur.

27Hver sem borðar því þetta brauð og drekkur af þessum bikar á óverðugan hátt, verður sekur um synd gegn líkama og blóði Drottins. 28Þess vegna ætti sérhver að skoða hug sinn rækilega, sem hyggst neyta brauðsins og drekka af bikarnum. 29Hver sá sem etur brauðið og drekkur af bikarnum án þess að minnast líkama Krists og hvað hann merkir, hann etur og drekkur dóm Guðs yfir sig, því að hann óvirðir dauða Krists. 30Þetta er ástæða þess hve margir eru veikir og lasburða á meðal ykkar og að margir hafa dáið.

31Ef þið hins vegar gætið vel að sjálfum ykkur áður en þið neytið kvöldmáltíðarinnar, þá er ekki þörf á að ykkur sé refsað. 32Þó er það svo að þegar Drottinn dæmir okkur, þá er hann að aga okkur til þess að við verðum ekki fordæmd ásamt heiminum. 33Þess vegna skuluð þið bíða hvert eftir öðru, kæru vinir, þegar þið komið saman til kvöldmáltíðar Drottins. 34Sé einhver sársvangur, þá borði hann heima hjá sér, svo hann leiði ekki yfir sig refsingu er þið komið saman.

Önnur mál mun ég ræða nánar þegar ég kem til ykkar.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

A cabeça coberta e a Ceia do Senhor

  • O capítulo apresenta uma ordem de cabeça: a cabeça de todo homem é Cristo, a cabeça da mulher é o homem, e a cabeça de Cristo é Deus. Diz também que, no Senhor, nem a mulher é independente do homem nem o homem da mulher, pois a mulher veio do homem e o homem nasce da mulher, e tudo vem de Deus. Quando oram ou profetizam, o homem que cobre a cabeça desonra a sua cabeça, e a mulher que a deixa descoberta desonra a sua, como se estivesse rapada; ela deve ter sobre a cabeça um sinal de autoridade por causa dos anjos, e se afirma que as igrejas de Deus não têm outro costume.Fontes: o próprio texto bíblico
  • O escritor não tem elogio para as reuniões deles, que, segundo ele, fazem mais mal do que bem. Ele ouviu que há divisões quando se reúnem como igreja e, em parte, acredita nisso; cada um come à frente sem compartilhar, de modo que um fica com fome enquanto outro se embriaga, e por isso não é a Ceia do Senhor que eles comem. Manda que esperem uns pelos outros e que, se alguém tiver fome, coma em casa, para que a reunião não resulte em juízo.Fontes: o próprio texto bíblico
  • Ele diz que recebeu do Senhor o que também transmitiu: na noite em que foi traído, o Senhor Jesus tomou o pão, deu graças, partiu-o e disse que era o seu corpo, por eles; depois da ceia, tomou o cálice e chamou-o de nova aliança no seu sangue, a ser celebrada em sua memória. Sempre que comem esse pão e bebem desse cálice, anunciam a morte do Senhor até que ele venha. Quem come ou bebe de modo indigno torna-se culpado de pecar contra o corpo e o sangue do Senhor; por isso cada um deve examinar-se a si mesmo, pois comer e beber sem discernir o corpo traz juízo.Fontes: o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.