Lucas 11
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Jesús talar um bænina
1Eitt sinn er Jesús hafði verið í einrúmi á bæn, kom einn lærisveinanna til hans og sagði: „Drottinn, kenndu okkur að biðja eins og Jóhannes kenndi sínum lærisveinum. 2Þá kenndi hann þeim þessa bæn: „Faðir, helgist þitt nafn, komi þitt ríki. 3Gefðu okkur það sem við þörfnumst frá degi til dags. 4Fyrirgefðu okkur syndir okkar, eins og við fyrirgefum þeim sem syndga gegn okkur, og lát okkur ekki verða fyrir freistingu.“
5Hann hélt áfram að fræða þá um bænina og sagði: „Gerum ráð fyrir að einhver ykkar fari til vinar síns um miðja nótt, veki hann og segi: „Lánaðu mér þrjú brauð, því að vinur minn var að koma í heimsókn og ég á ekki nokkurn matarbita handa honum.“ 7Þá mundi hinn kalla á móti úr rúminu: „Æ, vertu nú ekki að ónáða mig. Það er búið að læsa húsinu og allir eru löngu háttaðir. Ég nenni ekki að fara á fætur um miðja nótt vegna þessara smámuna.“
8Ég segi: Ef haldið er áfram að nauða nógu lengi, þá fer hann að lokum fram úr og lánar vini sínum allt sem hann þarf; ekki af greiðasemi, heldur vegna þess að hinn gefst ekki upp. 9Þannig er það með bænina. Biðjið og þið munuð öðlast. Leitið og þið munuð finna. Knýið á og þá mun verða lokið upp. 10Hver sá sem biður, mun öðlast, sá finnur er leitar og fyrir þeim mun opnað, sem á knýr.
11Þið feður, gefið þið drengnum ykkar stein ef hann biður um fisk? 12Og biðji hann um egg, gefið þið honum þá sporðdreka? Nei, auðvitað ekki!
13Fyrst þið syndugir menn gefið börnum ykkar góðar gjafir, þá er víst að faðirinn á himnum gefur þeim heilagan anda sem biðja um hann.“
14Jesús rak illan anda út af mállausum manni og fékk hann þá málið. Mannfjöldinn varð undrandi, 15en sumir sögðu: „Það er ekkert skrýtið þótt hann geti rekið út illa anda, því hann fær kraft sinn frá Satan, konungi illu andanna.“
16Aðrir báðu hann um tákn á himni, til að sanna að hann væri Kristur.
17Jesús vissi hvað þeir hugsuðu og sagði: „Það ríki sem logar í borgarastyrjöld fær ekki staðist, og sama er að segja um heimili þar sem hver höndin er upp á móti annarri. 18Sé það satt sem þið segið að Satan berjist gegn sjálfum sér, með því að gefa mér vald til að reka út hans eigin illu anda, hvernig fær þá ríki hans staðist? 19Og hvað um fylgjendur ykkar, ef ég starfa í krafti Satans? Þeir reka út illa anda! Er það þá sönnun þess að Satan sé í þeim? Spyrjið þessa menn hvort þið hafið á réttu að standa! 20En ef ég rek út illa anda með krafti Guðs, þá er það staðfesting þess að guðsríki sé komið.
21Þegar sterkur maður ver hús sitt alvopnaður, þá er það ekki í hættu 22– ekki fyrr en einhver sterkari gerir árás, yfirbugar hann og afvopnar, og tekur eigur hans.
23Sá sem ekki er með mér, er á móti mér. Sá sem ekki vinnur mér gagn, veldur mér tjóni.
24Þegar illur andi er rekinn út úr manni, fer hann út í eyðimörkina og leitar þar hvíldar. Finni hann enga hvíld, leitar hann að manninum sem hann var í 25og finnur hann opinn og andvaralausan. 26Þá fer hann og sækir sjö aðra anda ennþá verri og þeir fara allir í manninn, sem verður því mun verr settur en áður.“
27Meðan Jesús var að tala, hrópaði kona ein í mannfjöldanum: „Guð blessi móður þína, sem bar þig og nærði.“
28„Já,“ svaraði hann, „en enn meiri blessun hljóta þeir sem heyra orð Guðs og fara eftir því.“
29Fólkið hélt áfram að streyma að honum og þá sagði hann því þessa líkingu. „Við lifum á vondum tímum og fólkið er vont. Það biður stöðugt um tákn á himnum (til sönnunar því að ég sé Kristur) en eina táknið sem það fær er Jónasartáknið. Fólkið í Niníve áleit reynslu Jónasar sönnun þess að Guð hefði sent hann. Á sama hátt verður það sem gerist með mig, tákn þess að Guð hafi sent mig til ykkar.
31Drottningin af Saba mun rísa upp á dómsdegi, benda á þessa kynslóð og dæma hana seka. Hún lagði á sig langt og erfitt ferðalag til að hlusta á visku Salómons og hér er sá sem er æðri Salómon.
32Íbúar Niníve munu einnig rísa upp og fordæma þessa þjóð, því þeir gerðu iðrun við predikun Jónasar, og þótt hér sé sá sem er miklu æðri Jónasi, vill þessi þjóð ekki hlusta.
33Hver kveikir á lampa og felur hann síðan niðri í kjallara? Enginn! Lampinn er settur á lampastæðið, svo að hann lýsi öllum sem inn koma. 34Augu þín lýsa upp þinn innri mann. Sé auga þitt heilbrigt, þá hleypir það birtu inn í sál þína. Auga sem brennur af fýsn, lokar ljósið úti og steypir þér í myrkur. 35Gættu þess að ljósið sé ekki lokað úti. 36Ef þinn innri maður er baðaður ljósi og hvergi ber skugga á, þá ljómar andlit þitt.“
Jesús gagnrýnir hræsnara
37Þegar Jesús hafði lokið máli sínu, bauð einn af faríseunum honum heim til sín í mat. Þegar Jesús var kominn inn til hans, settist hann strax að matnum, án þess að þvo sér fyrst eins og venja var hjá Gyðingum. Faríseinn varð undrandi.
39Jesús sagði þá við hann: „Þið farísear þvoið það sem út snýr, en að innan eruð þið enn óhreinir – fullir illsku og girndar! 40Þið farið heimskulega að ráði ykkar! Var hið innra ekki eins vel af Guði gert og hið ytra eða hvað? 41Göfuglyndi er besta sönnun þess að inni fyrir búi hreint hugarfar.
42Ég ávíta ykkur, farísear! Þið gætið þess að gjalda tíund og það jafnvel af hverju smáatriði, en gleymið svo öllu réttlæti og kærleika til Guðs. Það er rétt að gjalda tíund en hitt skuluð þið ekki vanrækja.
43Vei ykkur, farísear! Þið sækist eftir heiðurssætum í samkomuhúsum og virðingu fólksins á götunum. 44Ykkar bíður hræðilegur dómur. Þið eruð eins og grónar grafir sem fólk gengur yfir, grunlaust um alla rotnunina fyrir neðan.
45„Herra,“ sagði lögfræðingur sem sat rétt hjá honum, „þú lítilsvirðir einnig starf mitt með þessum orðum.“
46„Já,“ sagði Jesús, „ekki eruð þið betri! Þið leggið óbærilegar byrðar á fólk með trúar- og siðferðiskröfum ykkar – kröfum sem ykkur sjálfum dytti aldrei í hug að hlýða. 47Vei ykkur! Þið eruð ekki betri en forfeður ykkar, sem drápu spámennina. 48Þið leggið blessun yfir verk forfeðra ykkar með því að prýða legstaði spámannanna, sem þeir myrtu. 49Guð segir um ykkur: „Ég mun senda til ykkar spámenn og postula, suma þeirra munuð þið drepa en ofsækja hina.“
50Þið sem nú lifið, berið ábyrgðina á morðunum sem framin hafa verið á þjónum Guðs frá upphafi. 51Frá morðinu á Abel til morðsins á Sakaría, sem drepinn var milli altarisins og musterisins. Já, ákærunni verður áreiðanlega beint gegn ykkur.
52Vei ykkur, lögvitringar! Þið felið sannleikann fyrir fólkinu. Sjálfir viljið þið ekki beygja ykkur fyrir honum og síðan hindrið þið aðra í að treysta Guði.“ 53Þegar Jesús hafði lokið máli sínu gekk hann út, en eftir stóðu farísearnir og lögvitringarnir, æfir af reiði. Upp frá þessu voru þeir sífellt að leggja fyrir hann spurningar í þeim tilgangi að fá hann til að segja eitthvað, sem hægt væri að handtaka hann fyrir.

¿Sabías que…?
Oración, señales y ayes
- Jesús habla de la sangre de todos los profetas, desde la sangre de Abel hasta la sangre de Zacarías, muerto entre el altar y el santuario. Abel era el segundo hijo de Adán y Eva y fue muerto por su hermano Caín. El Diccionario Bíblico de Easton (1897) identifica a este Zacarías como hijo o nieto del sumo sacerdote Joiada, apedreado por orden del rey en el atrio de la casa del Señor después de condenar al rey y al pueblo, y señala que Jesús alude a ese asesinato en este capítulo.Fuentes: el propio texto bíblico · Abel · Zacharias
- Jesús dice que a esta generación no se le dará ninguna señal, excepto la señal de Jonás: así como Jonás fue una señal para los ninivitas, el Hijo del Hombre será una señal para esta generación, y los hombres de Nínive, que se arrepintieron ante su predicación, la condenarán en el juicio, porque aquí está alguien mayor que Jonás. El Diccionario Bíblico de Easton (1897) describe a Jonás, hijo de Amitai, de Gat-hefer, como profeta de Israel y misionero en Nínive, y lo llama tipo del Hijo del Hombre. Describe a Nínive como una ciudad grande y populosa, la floreciente capital del imperio asirio.Fuentes: el propio texto bíblico · Jonah · Nineveh
- Después de que Jesús expulsa un demonio que era mudo, algunos dicen que lo hace por Beelzebú, príncipe de los demonios. El Diccionario Bíblico de Easton (1897) explica el nombre Satanás como adversario o acusador, dice que el Nuevo Testamento lo usa de manera intercambiable con el diablo y enumera a Beelzebub entre sus títulos. Jesús responde que todo reino dividido contra sí mismo quedará asolado y pregunta cómo puede permanecer el reino de Satanás si Satanás está dividido contra sí mismo.Fuentes: el propio texto bíblico · Satan
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org