Lucas 10
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Jesús sendir lærisveina sína
1Drottinn valdi nú aðra sjötíu lærisveina og sendi þá tvo og tvo saman til þorpanna, sem hann ætlaði síðar að heimsækja.
2Hann sagði: „Uppskeran er mikil, en verkamennirnir fáir, biðjið því uppskerustjórann að senda fleiri verkamenn til uppskeru sinnar. 3Farið nú og munið að ég sendi ykkur eins og lömb í úlfahóp. 4Takið hvorki peninga með ykkur né nesti og heldur ekki skó til skiptanna, og munið svo að slóra ekki á leiðinni.
5Blessið hvert það heimili sem þið komið á. 6Sé það blessunarvert, mun blessunin koma yfir það, annars mun hún snúa aftur til ykkar.
7Þegar þið komið inn í þorp, gistið þá ekki á mörgum heimilum, dveljið heldur á sama stað. Borðið og drekkið það sem fyrir ykkur er sett. Verið ófeimnir við að njóta góðgerðanna, því að verður er verkamaður launa sinna. 8Taki þorpsbúar ykkur vel, farið þá eftir þessum tveimur reglum: Borðið það sem fyrir ykkur er sett og læknið þá sem sjúkir eru og segið um leið: „Nú standið þið nálægt guðsríkinu.“
10Ef þið komið í þorp sem ekki vill taka við ykkur, farið þá út á göturnar og segið: 11„Við þurrkum rykið, úr þorpi ykkar, af fótum okkar sem tákn um dóminn, sem yfir ykkur vofir. En vitið samt að guðsríki er í nánd.“ 12Jafnvel Sódóma, borg spillingarinnar, mun fá skárri útreið á dómsdegi en það þorp!
13Þið Kórasín og Betsaída, miklar eru þrengingarnar sem ykkar bíða! Ef kraftaverkin, sem ég gerði í ykkur, hefðu gerst í Týrus og Sídon, þá hefðu íbúar þeirra borga gert iðrun fyrir löngu. Þeir hefðu klæðst tötrum og ausið sig ösku sem tákn um iðrun sína. 14Týrus og Sídon munu hljóta vægari hegningu á dómsdegi en þið. 15Og hvað um ykkur, íbúar Kapernaum? Verðið þið hafnir til himins? Nei, ykkur verður varpað niður til heljar.“
16Síðan sagði Jesús við lærisveina sína: „Þeir sem taka á móti ykkur, taka á móti mér, en þeir sem hafna ykkur, hafna mér. Þeir sem hafna mér, hafna Guði sjálfum sem sendi mig.“
17Lærisveinarnir sjötíu komu aftur og sögðu sigri hrósandi: „Jafnvel illu andarnir hlýða okkur, þegar við notum nafn þitt.“
18„Já,“ sagði hann, „ég sá Satan falla af himni eins og eldingu! 19Ég hef gefið ykkur vald yfir öllu óvinarins veldi. Þið getið stigið ofan á höggorma og sporðdreka og marið þá undir fótum ykkar – ekkert mun geta gert ykkur mein. 20En gleðjist samt ekki yfir því að andarnir hlýða ykkur, heldur því að nöfn ykkar eru innrituð á himnum.“
21Um leið varð hann glaður í heilögum anda og sagði: „Ég lofa þig faðir, herra himins og jarðar. Að það sem hulið var fyrir spekingum og vitringum veraldar, hefur þú birt þeim sem treysta þér og trúa eins og lítil börn. Já, faðir, þannig vildir þú hafa það. 22Faðir minn hefur lagt allt í mínar hendur. Soninn þekkir enginn nema faðirinn og föðurinn þekkir enginn nema sonurinn, og þeir sem sonurinn vill að sjái hann.“
23Síðan sneri hann sér að lærisveinunum og sagði lágt: „Þið eigið gott að hafa fengið að sjá það sem þið sjáið. 24Margir spámenn og konungar fyrri alda þráðu að sjá og heyra það sem þið hafið séð og heyrt.“
Sagan um miskunnsama Samverjann
25Dag nokkurn kom fræðimaður í lögum Móse til Jesú og vildi prófa rétttrúnað hans. „Meistari,“ sagði hann, „hvað þarf maður að gera til að eignast eilíft líf?“
26„Hvað segja lög Móse um það?“ svaraði Jesús.
27„Þar stendur: Þú skalt elska Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni, öllum mætti þínum og af öllum huga þínum, og meðbróður þinn eins og sjálfan þig,“ sagði fræðimaðurinn.
28„Rétt,“ svaraði Jesús, „gerðu þetta og þá muntu lifa.“
29En maðurinn vildi afsaka sig og spurði því: „Hver er þá meðbróðir minn?“
30Jesús svaraði með þessari sögu: „Maður var á leið frá Jerúsalem til Jeríkó og lenti í höndum ræningja. Þeir rændu fötum hans og peningum, og börðu hann. Síðan skildu þeir hann eftir hálfdauðan við vegarbrúnina.
31Af tilviljun fór prestur þarna um. Þegar hann sá manninn, leit hann undan og hélt áfram. 32Skömmu síðar kom musterisþjónn þar að og er hann sá hinn slasaða, flýtti hann sér fram hjá.
33Síðan kom þar að lítilsmetinn útlendingur – Samverji. Hann sá manninn og kenndi í brjósti um hann. 34Hann gekk til hans, hreinsaði sárin og batt um þau. Að því loknu setti hann særða manninn upp á asnann sinn og studdi hann að næsta gistihúsi, þar sem hann veitti honum aðhlynningu um nóttina. 35Morguninn eftir rétti hann gestgjafanum ríflega upphæð og bað hann að annast manninn. „Ef reikningurinn verður hærri,“ sagði hann, „þá borga ég mismuninn næst þegar ég kem.“
36Hver finnst þér nú hafa verið sannur meðbróðir mannsins sem lenti í höndum ræningjanna?“
37„Sá sem hjálpaði honum,“ svaraði maðurinn. „Já,“ sagði Jesús, „farðu og gerðu slíkt hið sama.“
Marta og María
38Á leið sinni til Jerúsalem, komu Jesús og lærisveinar hans við hjá konu sem Marta hét. Tók hún vel á móti þeim. 39María systir hennar sat á gólfinu og hlustaði á Jesú, 40en Marta var önnum kafin við matreiðslu.
Hún gekk þá til Jesú og sagði: „Herra, finnst þér ekki ranglátt af systur minni að sitja hér, en láta mig eina um alla vinnuna? Segðu henni að koma og hjálpa mér.“
41„Marta mín,“ sagði Drottinn við hana, „Þú ert önnum kafin og áhyggjufull! 42Eitt er nauðsynlegt og það hefur María komið auga á, ég mun ekki taka það frá henni.“

¿Sabías que…?
La misión, las ciudades y Marta y María
- El Diccionario Bíblico de Easton (1897) identifica Corazín, nombrada en los ayes de este capítulo junto con Betsaida y Capernaúm, con Kerazeh, a unas dos millas y media remontando el Wady Kerazeh desde Capernaúm. Dice que, después de que Jesús fue expulsado de Nazaret, Capernaúm pasó a ser su propia ciudad. El capítulo compara esas ciudades con Tiro y Sidón; el diccionario llama a Sidón el primer hogar de los fenicios en la costa de Palestina y la ciudad madre de Tiro, a unas veinticinco millas al norte de Tiro.Fuentes: el propio texto bíblico · Chorazin · Capernaum · Sidon
- El Diccionario Bíblico de Easton (1897) da al nombre Marta el sentido de amargura y dice que ella, su hermana María y su hermano Lázaro vivían en Betania, y que Marta era probablemente la mayor. Como este pasaje llama a la casa su casa, el diccionario señala que algunos han supuesto que era viuda y que su hermano y su hermana se alojaban con ella. La describe como ansiosa y ajetreada en el cuidado del huésped, a diferencia de María, que se sentó a los pies de Jesús y escuchó.Fuentes: el propio texto bíblico · Martha · Mary (sister of Lazarus)
- El Señor designa a otros setenta y dos y los envía de dos en dos delante de él, y una cronología de acontecimientos sitúa ese envío en el año 29 d.C. Cuando regresan, alegres de que hasta los demonios se someten en su nombre, él dice que vio a Satanás caer del cielo como un rayo. El Diccionario Bíblico de Easton (1897) explica el nombre Satanás como adversario o acusador, y señala que el Nuevo Testamento lo usa de manera intercambiable con el diablo más de treinta veces.Fuentes: el propio texto bíblico · 70 Sent Out · Satan
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Sidon · Hoy: Sandikli archaeological site in Sidon · 33.561, 35.372 · versículos 13, 14
- Tyre · 33.271, 35.196 · versículos 13, 14
- Jericho · Hoy: Tell el Alayiq · 31.852, 35.436 · versículo 30
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 30, 38
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org