Nations Bible

Hechos 5

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

1Annar maður, Ananías, og kona hans, Saffíra, seldu jörð. 2Hann afhenti postulunum hluta andvirðisins og sagði að það væri heildarsöluverðið.

3„Ananías,“ sagði Pétur. „Satan hefur blekkt þig. Það er ósatt sem þú sagðir, að þetta væri allt söluverðið. Þú hefur logið að heilögum anda. 4Þér var í sjálfsvald sett hvort þú seldir eignina eða ekki. Og þegar þú hafðir selt, var það þitt að ákveða hve mikið þú gæfir. Hvernig gat þér dottið í hug að fara svona að? Þú hefur logið að Guði, en ekki okkur.“

5Þegar Ananías heyrði þetta, datt hann dauður niður! Fólk varð skelfingu lostið. 6Ungu mennirnir komu og bjuggu um hann, og fóru með hann til greftrunar.

7Þrem stundum síðar kom kona Ananíasar inn, en hún vissi ekki hvað gerst hafði. 8Pétur gekk til hennar og spurði: „Er þetta allt sem þið fenguð fyrir landið sem þið selduð?“

„Já,“ svaraði hún, „þetta var verðið.“

9Þá sagði Pétur: „Hvernig gat ykkur hjónunum dottið í hug að gera slíkt – prófa hvort heilagur andi kæmist að svikunum? Ungu mennirnir, sem jörðuðu manninn þinn, eru hérna rétt fyrir utan og þeir munu líka bera þig út.“

10Pétur hafði vart sleppt orðinu er hún féll örend til jarðar!

Þegar ungu mennirnir komu inn og sáu að hún var líka dáin, báru þeir hana út og grófu við hlið manns hennar. 11Þessi atburður vakti ótta meðal allra í söfnuðinum og annarra sem um hann fréttu.

12Postularnir voru vanir að koma saman í þeim hluta musterisins sem kallast súlnagöng Salómons, og þar unnu þeir mörg athyglisverð kraftaverk meðal fólksins. 13Aðrir áræddu ekki að vera þar með þeim og almennt var borin mikil virðing fyrir þeim. 14Sífellt snerust fleiri til trúar á Drottin, mikill fjöldi karla og kvenna. 15Sjúklingar voru bornir á börum og dýnum út á göturnar, í þeirri von að skugginn af Pétri félli á þá, þegar hann ætti leið hjá! 16Mikill mannfjöldi kom frá úthverfum Jerúsalem og tók fólkið með sér sjúklinga og þá sem höfðu illa anda. Þeir læknuðust allir.

Postularnir handteknir á ný

17Æðsti presturinn og ættingjar hans og vinir meðal saddúkeanna, brugðust við þessu af mikilli hörku. 18Létu þeir handtaka postulana og setja þá í gæsluvarðhald.

19Um nóttina kom engill Drottins, opnaði fangelsishliðin og leiddi þá út. Síðan sagði hann við þá: 20„Farið upp í musterið og predikið boðskap lífsins!“

21Þeir komu til musterisins um sólarupprás og fóru strax að predika. Seinna um morguninn kom æðsti presturinn, og fylgdarlið hans, til musterisins og lét hann kalla saman allt ráðið. Því næst sendi hann þjóna til fangelsisins, með boð um að postularnir skyldu leiddir fyrir ráðið. 22Þegar þjónarnir komu til fangelsisins, gripu þeir í tómt – postularnir voru á bak og burt! Þeir sneru því aftur til ráðsins og sögðu: 23„Fangelsisdyrnar voru læstar og verðirnir stóðu fyrir utan, en þegar við opnuðum hliðin, var enginn maður þar inni!“

24Þegar lögreglustjórinn og æðstu prestarnir heyrðu þetta, vissu þeir ekki sitt rjúkandi ráð og veltu fyrir sér hvernig þetta myndi fara. 25Rétt í því kom einhver með þær fréttir, að mennirnir, sem þeir hefðu sett í varðhald, væru að predika í musterinu.

26Lögregluforinginn fór þegar í stað ásamt undirmönnum sínum og tók þá fasta, án ofbeldis því að þeir óttuðust að fólkið réðist á þá, ef þeir færu illa með postulana. Síðan leiddu þeir þá fram fyrir ráðið.

28„Sögðum við ykkur ekki að hætta að tala um þennan Jesú?“ spurði æðsti presturinn hvasst. „Nú hafið þið fyllt Jerúsalem með boðskap ykkar og reynið í þokkabót að kenna okkur um dauða þessa manns!“

29Þá svaraði Pétur og hinir postularnir: „Framar ber að hlýða Guði en mönnum. 30Guð forfeðra okkar vakti Jesú upp frá dauðum, eftir að þið höfðuð líflátið hann með því að hengja hann á kross. 31Fyrir mátt sinn, hóf Guð hann til þeirrar virðingar að vera bæði konungur og frelsari, svo að Ísraelsþjóðin gæti snúið baki við syndum sínum og fengið fyrirgefningu. 32Um þetta vitnum við ásamt heilögum anda, sem Guð gefur öllum sem honum hlýða.“

33Þegar hér var komið, voru meðlimir ráðsins orðnir viti sínu fjær af reiði og ákveðnir í að lífláta postulana. 34En þá stóð upp Gamalíel, meðlimur ráðsins og farísei, sérfræðingur í lögum og vinsæll meðal fólksins. Hann bað um að þeir yrðu látnir fara út úr ráðinu meðan hann talaði.

35Síðan ávarpaði hann ráðið og sagði:

„Ísraelsmenn, íhugið vandlega það sem þið ætlið að gera við þessa menn. 36Fyrir nokkru taldi Þevdas sig mikinn mann. Um 400 menn sóru honum trúnaðareið, en skömmu síðar var hann drepinn og þá lognaðist allt út af.

37Seinna, þegar manntalið var tekið, kom fram Júdas frá Galíleu. Hann safnaði að sér nokkrum lærisveinum, en síðan dó hann og fylgjendur hans tvístruðust.

38Ég ráðlegg ykkur að láta þessa menn eiga sig. Ef boðskapur þeirra er eigin hugarsmíð, þá mun þetta fljótlega verða að engu. 39En sé hann frá Guði, þá megnið þið ekki að stöðva þá, það væri að berjast gegn sjálfum Guði.“

40Ráðið samþykkti þetta, kallaði postulana fyrir sig, lét húðstrýkja þá og bannaði þeim harðlega að tala í Jesú nafni. Síðan var þeim sleppt.

41Postularnir yfirgáfu ráðið og lofuðu Guð fyrir að hann skyldi álíta þá verða þess að þola smán hans vegna. 42Og þeir komu daglega saman í musterinu, höfðu Biblíulestra í heimahúsum og boðuðu að Jesús væri Kristur.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Engaño, prodigios y el Sanedrín

  • Ananías, miembro de la iglesia de Jerusalén, y su esposa Safira, cuyo nombre significa hermosa, vendieron un terreno y, con conocimiento de ella, se quedaron con parte del precio mientras llevaban el resto a los apóstoles. Él podría haber conservado la propiedad; Pedro le recordó que seguía a su disposición tanto antes como después de la venta. La falta fue la mentira: él afirmó haberlo entregado todo, Safira confirmó el precio falso, y ambos murieron; ella compartió su culpa y su castigo.Fuentes: Ananias (Husband of Sapphira) · Sapphira · el propio texto bíblico
  • Los creyentes se reunían de común acuerdo en el Pórtico de Salomón, donde los apóstoles realizaban muchas señales y prodigios. Esa columnata estaba probablemente en el lado oriental del templo. No se menciona en relación con el primer templo, aunque Josefo se refiere a un pórtico de ese nombre en el templo de Herodes.Fuentes: Solomon's Portico · el propio texto bíblico
  • Cuando el sumo sacerdote y sus compañeros, que pertenecían al partido de los saduceos, hicieron arrestar a los apóstoles, un fariseo llamado Gamaliel se levantó en el Sanedrín. Es descrito como maestro de la ley, honrado por todo el pueblo, hijo del rabino Simeón y nieto del famoso rabino Hilel, y como adversario de los saduceos; instó al consejo a dejar en paz a esos hombres. Señaló a Teudas, que había encabezado una insurrección contra la autoridad romana y, según el relato de Gamaliel, reunió a unos cuatrocientos hombres antes de que el levantamiento quedara en nada —fuera de eso, no se sabe nada más de Teudas— y a Judas el galileo, que pereció en los días del censo.Fuentes: Gamaliel · Theudas · el propio texto bíblico

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Solomon’s Portico · Hoy: in Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 12
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 16, 28
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 37

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.