Nations Bible

Hechos 4

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.

Pétur og Jóhannes teknir höndum

1Á meðan Pétur og Jóhannes voru að tala til fólksins komu æðstu prestarnir, foringi musterislögreglunnar og nokkrir saddúkear til þeirra. 2Þeim gramdist mjög að Pétur og Jóhannes skyldu boða það að Jesús hefði risið upp frá dauðum, 3og tóku þá því fasta. En nú var komið kvöld og þess vegna settu þeir þá í gæsluvarðhald yfir nóttina. 4Margir þeirra, sem höfðu hlustað, tóku trú, svo að tala hinna trúuðu óx enn; karlmennirnir einir voru um fimm þúsund!

5Morguninn eftir komu allir helstu ráðamenn og fræðimenn Gyðinga – Æðstaráðið – saman í Jerúsalem. 6Í ráðinu áttu sæti meðal annarra: Annas æðsti prestur, Kaífas, Jóhannes, Alexander og mörg önnur skyldmenni æðsta prestsins. 7Lærisveinarnir tveir voru leiddir fyrir ráðið.

„Með hvaða mætti og í umboði hvers hafið þið gert þetta?“ spurðu ráðamennirnir.

8Pétur svaraði, fylltur heilögum anda: „Heiðruðu leiðtogar og öldungar þjóðar okkar. 9Ef þið eigið við góðverkið á bæklaða manninum og hvernig hann hafi læknast, 10þá sé ykkur öllum ljóst, og um leið allri þjóðinni, að þetta var gert í nafni Jesú Krists frá Nasaret, þess sem þið krossfestuð og Guð reisti upp frá dauðum. Það er fyrir hans kraft að þessi maður er orðinn heilbrigður. 11Jesús Kristur er sá sem í Biblíunni er nefndur „steinninn sem húsameistararnir fleygðu, en nú er orðinn að hornsteini byggingarinnar“. 12Hann er sá eini sem getur frelsað okkur frá syndinni og annað nafn er ekki til, sem menn geta ákallað sér til hjálpræðis.“

13Þegar meðlimir ráðsins sáu djörfung Péturs og Jóhannesar og komust að því að þeir voru ólærðir almúgamenn, undruðust þeir. Þeir könnuðust reyndar við þá, því að þeir höfðu séð þá með Jesú. 14Maðurinn, sem læknast hafði, stóð sjálfur við hlið Péturs og Jóhannesar, og því var erfitt fyrir ráðið að mótmæla lækningunni. 15Þeir sögðu þeim að fara úr salnum og héldu síðan áfram fundinum.

16„Hvað eigum við að gera við þessa menn?“ spurðu þeir hver annan. „Því er ekki að neita að þeir hafa gert stórkostlegt kraftaverk, það vita allir hér í Jerúsalem. 17Kannski getum við hindrað þá í að breiða út þennan áróður. Við hótum þeim refsingu ef þeir gera þetta aftur.“ 18Síðan kölluðu þeir þá aftur inn og bönnuðu þeim stranglega að tala um Jesú framar.

19„Ætlið þið að ákveða hvorum við hlýðum – Guði eða ykkur?“ spurðu Pétur og Jóhannes og bættu síðan við: 20„Við getum ekki annað en sagt frá öllu því sem við fengum að reyna hjá Jesú.“

21Þá hótaði ráðið þeim aftur öllu illu, en sleppti þeim svo. Þeir vissu hreint ekki hvernig ætti að refsa þeim, án þess að til óeirða kæmi, því að allir lofuðu Guð fyrir þetta mikla kraftaverk. 22Maðurinn, sem læknaðist, hafði verið lamaður í fjörutíu ár!

23Eftir að þeir voru látnir lausir, fóru þeir að hitta hina lærisveinana og sögðu þeim niðurstöðu ráðsins.

Söfnuðurinn biður og lofar Guð

24Þegar lærisveinarnir tveir höfðu sagt félögum sínum allt, sameinuðust allir viðstaddir í þessari bæn: „Drottinn, þú ert skapari himins og jarðar, hafsins og alls sem í því er. 25Fyrr á öldum lagðir þú forföður okkar og þjóni þínum, Davíð konungi þessi orð í munn fyrir heilagan anda: „Hvers vegna æða heiðingjarnir gegn Drottni og hvers vegna gera þjóðirnar heimskuleg samsæri gegn hinum almáttuga Guði? Konungar jarðarinnar risu upp gegn honum og Kristi konungi, syni hans.“ 27Þetta hefur einmitt verið að gerast hér í borginni. Heródes konungur, Pontíus Pílatus landstjóri og allir Rómverjarnir auk Ísraelsþjóðarinnar hafa sameinast gegn Jesú, þínum heilaga syni og þjóni. 28Þeir munu ekki hætta fyrr en þeir hafa gert allt það sem vísdómur þinn og kraftur vill að verði. 29Drottinn, þú heyrir hótanir þeirra. Gefðu okkur, þjónum þínum, mikla djörfung þegar við predikum. 30Sendu okkur mátt þinn til að lækna og láttu mörg undur og kraftaverk gerast í nafni Jesú, þíns heilaga þjóns.“

31Þegar þeir höfðu lokið bæninni, hrærðist staðurinn þar sem þeir voru, og þeir fylltust allir heilögum anda og tóku að predika Guðs orð með djörfung.

Tvenns konar viðhorf til peninga

32Hinir trúuðu voru samhuga í öllu og enginn leit á eigur sínar sem einkaeign, heldur áttu þeir allt sameiginlegt. 33Postularnir fluttu kröftugar ræður um upprisu Drottins Jesú og samfélag hinna trúuðu var mjög innilegt. 34Enginn leið skort, því að allir sem áttu land eða húseignir, seldu og afhentu postulunum andvirðið, til þess að hægt væri að hjálpa hinum fátæku.

36Það gerði Jósef frá Kýpur, sem postularnir kölluðu huggunarsoninn. Hann var af ætti Leví. 37Hann seldi akur og færði postulunum andvirði peninganna, svo að þeir gætu skipt því meðal þeirra sem þurfandi voru.

Ilustración artística: una interpretación, no un registro histórico.

¿Sabías que…?

Pedro y Juan ante el Sanedrín

  • Los sacerdotes, el capitán de la guardia del templo y los saduceos prendieron a Pedro y a Juan porque enseñaban al pueblo y proclamaban en Jesús la resurrección de los muertos. Caifás, que participó en la asamblea al día siguiente, pertenecía a los saduceos.Fuentes: el propio texto bíblico · Caiaphas
  • Anás, llamado aquí sumo sacerdote, ocupó ese cargo del año 7 al 14 d.C., hasta que un procurador romano lo depuso. Caifás, que se había casado con la hija de Anás, fue elevado al cargo en el año 25 d.C.; aun así, algunos judíos podían seguir considerando a Anás el sumo sacerdote legal, pues la ley mosaica trataba el oficio como vitalicio, y Anás probablemente era presidente o auxiliar del Sanedrín. Juan y Alejandro, parientes del sumo sacerdote y por lo demás desconocidos, estaban sentados con ellos.Fuentes: el propio texto bíblico · Annas · John (Relative of the High Priest) · Alexander (Son of Simon)
  • Pedro, pescador de Betsaida, y Juan, también pescador e hijo de Zebedeo, fueron llevados ante los gobernantes, los ancianos y los escribas. El concilio se maravilló de su valentía al darse cuenta de que eran hombres sin estudios y comunes, y notó que habían estado con Jesús.Fuentes: el propio texto bíblico · Simon Peter · John the Apostle

Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.

Lugares de este capítulo

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 5, 16
  • Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 10
  • Cyprus · 35.000, 33.000 · versículo 36

Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Habla con nosotros

Cuéntanos desde dónde lees, cómo te ha ayudado la Biblia o qué podemos mejorar. Leemos todos los mensajes.