Hechos 13
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
1Meðal predikara og kennara í söfnuðinum í Antíokkíu voru þessir: Barnabas, Símeon (einnig kallaður Niger eða „svarti maðurinn“), Lúkíus (frá Kýrene), Manaen (uppeldisbróðir Heródesar konungs) og Páll. 2Dag einn, þegar menn þessir tilbáðu Guð og föstuðu, sagði heilagur andi: „Takið Barnabas og Pál frá til þess verkefnis sem ég hef ætlað þeim.“ 3Eftir enn frekari föstu og bæn lögðu þeir hendur yfir þá og sendu þá af stað.
4Samkvæmt ábendingu heilags anda fóru þeir til Selevkíu og sigldu þaðan til Kýpur. 5Í borginni Salamis predikuðu þeir í samkomuhúsi Gyðinganna. Jóhannes Markús var aðstoðarmaður þeirra í þessari ferð. 6Síðan fóru þeir um alla eyjuna og predikuðu í hverjum bænum á fætur öðrum þar til þeir komu loks til Pafos. Þar hittu þeir Gyðing, falsspámann, sem fékkst við galdra. Hét hann Barjesús. Hann hafði komið sér vel við landstjórann, Sergíus Pál, sem var greindur maður og hafði skilning á ýmsu. Landstjórinn bauð Barnabasi og Páli til sín, því að hann langaði til að heyra boðskapinn frá Guði. 8Töframaðurinn Elýmas (en það var hið gríska nafn hans) reyndi að trufla fundinn. Hann hvatti landstjórann til að taka ekki mark á orðum Páls og Barnabasar og reyndi þannig að koma í veg fyrir að hann tæki trú á Drottin,
9Þá hvessti Páll augun á töframanninn og sagði fylltur heilögum anda: 10„Þú sonur Satans, þú ert fullur af svikum og óþokkaskap, óvinur alls sem gott er. Hvenær ætlar þú að hætta andstöðu þinni gegn Drottni? 11Nú mun Drottinn refsa þér og þú verður blindur um tíma.“
Þegar í stað tók sjón töframannsins að dvína og eftir stutta stund var hann orðinn algjörlega blindur. Hann ráfaði um og sárbað viðstadda að leiða sig. 12Þegar landstjórinn sá hvað gerðist, tók hann trú og undraðist kraftinn sem fylgdi boðskap Guðs.
Páll fer til Litlu-Asíu
13Eftir þetta fóru Páll og félagar hans með skipi frá Pafos yfir til hafnarborgarinnar Perge í Litlu-Asíu. Þar yfirgaf Jóhannes þá og fór heim til Jerúsalem, 14en Barnabas og Páll héldu áfram til Antíokkíu, sem var borg í héraðinu Pisidíu.
Á helgideginum fóru þeir í samkomuhús Gyðinga til að vera við guðsþjónustu. 15Þegar lokið var venjulegum lestri úr ritum Móse og spámannanna, lét sá sem annaðist guðsþjónustuna senda þeim þessi skilaboð: „Bræður, ef þið hafið eitthvað að segja til uppbyggingar, leyfið okkur þá að heyra.“
16Páll stóð upp, heilsaði og sagði: „Ísraelsmenn og þið aðrir sem tignið Guð. Fyrst langar mig að rifja upp smákafla úr sögu þjóðar okkar.
17Guð Ísraelsþjóðarinnar útvaldi forfeður okkar og hóf þá til virðingar í Egyptalandi með því að losa þá úr ánauðinni þar, á undursamlegan hátt. 18Síðan annaðist hann þá þau fjörutíu ár sem þeir voru á ferli um eyðimörkina, 19útrýmdi sjö þjóðum í Kanaanslandi og gaf Ísraelsmönnum land þeirra til ævinlegrar eignar. Eftir það ríktu dómararnir í um 450 ár en svo kom Samúel spámaður.
21Þá bað þjóðin Guð um konung og hann gaf þeim Sál Kísson, mann af Benjamínsætt, og hann ríkti í fjörutíu ár. 22En Guð setti hann af og gerði Davíð að konungi í hans stað. Guð sagði um Davíð: „Davíð Ísaíson er maður mér að skapi, því að hann mun hlýða mér.“ 23Einn af afkomendum Davíðs er Jesús, og hann er frelsarinn, sem Guð hafði lofað að gefa Ísrael.
24En áður en Jesús kom, boðaði Jóhannes skírari að allir í Ísrael þyrftu að snúa sér frá syndum sínum og til Guðs. 25Um líkt leyti og Jóhannes var að ljúka köllunarverki sínu, spurði hann: „Haldið þið að ég sé Kristur? Nei! En hann kemur fyrr en varir og ég er lítils virði samanborið við hann.“
26Bræður! – synir Abrahams og þið aðrir sem tignið Guð – þetta hjálpræði er fyrir okkur öll! 27Gyðingarnir í Jerúsalem og leiðtogar þeirra þekktu hann ekki og skildu ekki að hann væri sá, sem spámennirnir höfðu ritað um, enda þótt þeir heyrðu lesið úr ritum spámannanna á hverjum helgidegi. Þeir tóku hann af lífi og uppfylltu þar með spádómana. 28Þeir höfðu enga ástæðu til að lífláta hann en samt sem áður heimtuðu þeir að hann yrði deyddur. 29Þegar þeir höfðu uppfyllt alla spádómana um dauða hans, var hann tekinn af krossinum og lagður í gröf.
30En Guð reisti hann upp frá dauðum! 31Mennirnir, sem höfðu orðið honum samferða frá Galíleu til Jerúsalem, sáu hann oftsinnis næstu daga á eftir og nú eru þessir menn vottar hans meðal þjóðarinnar.
32Við Barnabas erum hingað komnir til að flytja ykkur þær gleðifréttir, að fyrirheit Guðs, sem hann gaf forfeðrum okkar, hafa ræst á okkar dögum, er hann reisti Jesú upp frá dauðum. Um þetta fjallar annar sálmurinn en þar stendur svo um Jesú: „Þú ert sonur minn, ég gat þig í dag.“
34Guð hafði einmitt heitið því að reisa hann frá dauðum, svo hann þyrfti aldrei að deyja upp frá því. Þannig stendur um þetta í Biblíunni: „Ég mun láta hin heilögu og órjúfanlegu loforð, sem ég gaf Davíð, rætast á meðal ykkar.“ 35Í enn öðrum sálmi skýrir hann þetta nánar og segir: „Guð mun ekki láta sinn heilaga verða rotnun að bráð.“ 36Þessi orð áttu ekki við Davíð, því að hann dó, var lagður í gröf og líkami hans rotnaði, þegar hann hafði þjónað kynslóð sinni eins lengi og Guð vildi.
37Nei, þessi orð áttu við annan – þann sem Guð vakti upp frá dauðum og ekki rotnaði líkami hans.
38Vinir, takið eftir! Hjá þessum manni, Jesú, getið þið fengið fyrirgefningu synda ykkar. 39Hver sá, sem trúir á hann, fær fyrirgefningu allra synda sinna og verður réttlátur – saklaus – í augum Guðs – nokkuð sem lög Gyðinga gátu aldrei komið til leiðar. 40Gætið ykkar! Látið ekki orð spámannanna rætast á ykkur er þeir sögðu: 41„Þið sem hallmælið sannleikanum, takið eftir: Það er úti um ykkur, því að á ykkar dögum mun ég vinna verk, sem þið munduð alls ekki trúa, þótt einhver segði ykkur frá því.“ “
42Þegar fólkið yfirgaf samkomuhúsið þennan dag, bað það Pál að koma þangað aftur eftir viku. 43Margir Gyðingar og guðræknir heiðingjar, sem sóttu guðsþjónustur í samkomuhúsinu, fylgdu Páli og Barnabasi niður götuna og hlustuðu á hvatningu þeirra að taka á móti miskunn Guðs, sem þeim stæði til boða. 44Að viku liðinni kom nær allur bærinn saman til að hlusta á þá predika Guðs orð.
45Þegar leiðtogar Gyðinga sáu allt fólkið, sem flest var heiðingjar, urðu þeir mjög gramir og formæltu Páli og öllu því sem hann hafði að segja.
46Þá sögðu Páll og Barnabas ákveðnir: „Rétt var að þið Gyðingarnir fengjuð fyrst að heyra þennan fagnaðarboðskap, en fyrst þið hafnið honum og sýnið þar með að þið séuð ekki verðir eilífs lífs, þá munum við snúa okkur til heiðingjanna. 47Það var einmitt skipun Drottins, þegar hann sagði: „Ég hef sett þig til að vera ljós heiðinna þjóða og flytja hjálpræðið til ystu endimarka jarðarinnar.“ “
48Þegar heiðingjarnir heyrðu þetta urðu þeir mjög glaðir og tóku fegins hendi við boðskap Páls. Allir þeir, sem vildu eignast eilíft líf, tóku trú, 49og eftir það breiddist orð Guðs um allt héraðið.
50En leiðtogar Gyðinga æstu upp guðræknar konur og fyrirmenn bæjarins, vöktu þannig múgæsingu gegn Páli og Barnabasi og hröktu þá út fyrir bæinn. 51Þá hristu Páll og Barnabas rykið af fótum sér – til vitnis gegn borginni og lögðu af stað til bæjarins Íkóníum, 52en þeir sem trú höfðu tekið, fylltust gleði og heilögum anda.

¿Sabías que…?
La misión enviada desde Antioquía
- El Diccionario Bíblico de Easton (1897) describe a Antioquía de Siria como la tercera ciudad en importancia del Imperio romano, después de Roma y Alejandría; fue la iglesia de allí la que apartó a Bernabé y a Saulo. Entre sus profetas y maestros estaban Simeón, llamado Níger, un sobrenombre que significa negro, quizá por su tez oscura, y Lucio de Cirene, en el norte de África.Fuentes: Antioch (Syria) · el propio texto bíblico · Simeon · Lucius
- En Pafos, capital de Chipre y residencia del gobernador romano, un hechicero judío llamado Barjesús, también conocido como Elimas, un nombre árabe que significa mago o hechicero, intentó apartar de la fe al procónsul Sergio Paulo. Es aquí donde Saulo también es llamado Pablo; el Diccionario Bíblico de Easton (1897) dice que el nombre Pablo probablemente le fue dado en la infancia para usarlo en el mundo gentil, mientras que Saulo era su nombre hebreo de casa.Fuentes: Paphos · Elymas · Paul · el propio texto bíblico
- Enviados desde Antioquía, bajaron a Seleucia, el puerto de la ciudad cerca de la desembocadura del Orontes, y navegaron hasta Chipre; después desembarcaron en Perge, capital de Panfilia, a orillas del río Cestro. Allí Juan los dejó y regresó a Jerusalén; su nombre romano, Marcos, poco a poco llegó a reemplazar su nombre judío, y era primo de Bernabé.Fuentes: Seleucia · Perga · John Mark · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Antioch · Hoy: Antioch on the Orontes · 36.227, 36.172 · versículo 1
- Cyrene · 32.821, 21.851 · versículo 1
- Cyprus · 35.000, 33.000 · versículo 4
- Seleucia · Hoy: Seleucia Pieria · 36.124, 35.922 · versículo 4
- Salamis · 35.185, 33.902 · versículo 5
- Paphos · Hoy: New Paphos · 34.756, 32.404 · versículos 6, 13
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 13, 27, 31
- Pamphylia · 37.000, 31.000 · versículo 13
- Perga · 36.960, 30.854 · versículos 13, 14
- Antioch · Hoy: Antioch in Pisidia · 38.306, 31.189 · versículo 14
- Pisidia · 38.306, 31.189 · versículo 14
- Egypt · 30.129, 31.308 · versículo 17
- Canaan · 32.767, 35.333 · versículo 19
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 31
- Iconium · Hoy: Konya · 37.872, 32.492 · versículo 51
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org