Hechos 12
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toca un versículo para ver sus referencias cruzadas.
Pétur handtekinn – og honum bjargað
1Um þetta leyti tók Heródes konungur að ofsækja söfnuðinn í Jerúsalem 2og lét hann taka Jakob postula (bróður Jóhannesar) af lífi. 3Þegar Heródes sá að leiðtogum Gyðinga líkaði þetta vel, lét hann handtaka Pétur, meðan á páskahátíðinni stóð, 4og varpa honum í fangelsi. Þar var Péturs gætt af sextán hermönnum. Ætlun Heródesar var að koma Pétri í hendur Gyðingunum og láta taka hann af lífi þegar páskarnir væru liðnir. 5Meðan Pétur var í fangelsinu var söfnuðurinn stöðugt í bæn til Guðs fyrir honum.
6Kvöldið áður en aftakan átti að fara fram svaf Pétur þar sem hann lá hlekkjaður milli tveggja hermanna. Aðrir verðir voru úti fyrir fangelsisdyrunum. 7Skyndilega birti í klefanum. Engill frá Drottni var kominn og stóð hjá Pétri. Engillinn ýtti við honum, vakti hann og sagði: „Fljótur! Á fætur með þig!“ Þá féllu handjárnin af Pétri. 8„Klæddu þig, farðu í skóna og yfirhöfnina og eltu mig!“ sagði hann. Pétur hlýddi.
9Pétur yfirgaf klefann og fylgdi englinum. Hann hélt að annað hvort væri þetta draumur eða vitrun – hann trúði ekki að þetta væri raunveruleiki. 10Þeir gengu nú fram hjá fyrstu og síðan annarri varðsveit fangelsisins og komu að járnhliðinu við götuna, sem opnaðist af sjálfu sér! Þeir gengu út á götuna og fram með húsaröðinni, en þá hvarf engillinn.
11Skyndilega áttaði Pétur sig á hvað gerst hafði. „Þetta er þá raunveruleiki!“ sagði hann við sjálfan sig. „Drottinn hefur sent engil og bjargað mér úr höndum Heródesar og frá áformum Gyðinganna.“ 12Eftir stutta umhugsun ákvað hann að fara heim til Maríu, móður Jóhannesar Markúsar, en þar voru margir samankomnir til að biðja,
13Hann barði að dyrum og fór þá stúlka, Róde að nafni, fram til að opna. 14Þegar hún heyrði að þetta var Pétur varð hún afar glöð og hljóp aftur inn til að segja öllum að Pétur stæði fyrir utan. 15En þau trúðu henni ekki og sögðu: „Þú ert ekki með öllum mjalla!“ En hún sat föst við sinn keip. Þá sagði einhver: „Þetta hlýtur þá að vera engill hans.“
16Meðan á þessum samræðum stóð hélt Pétur áfram að berja og þegar þau fóru fram og opnuðu, urðu þau orðlaus af undrun. 17Hann gaf þeim merki um að hafa ekki hátt og sagði frá hvað gerst hafði, hvernig Drottinn hefði leyst hann úr fangelsinu og bætti svo við: „Segið Jakobi og hinum frá þessu.“ Því næst fór hann burt á öruggari stað.
18Þegar birti komst allt í uppnám í fangelsinu. Hvað var orðið af Pétri? 19Heródes hafði sent menn til að sækja hann, en þegar hann fannst ekki lét hann handtaka verðina sextán, dró þá fyrir rétt og lét lífláta þá. Eftir það fór hann til Sesareu og dvaldist þar um hríð.
20Meðan Heródes var í Sesareu kom þangað sendinefnd frá Týrus og Sídon til fundar við hann. Honum var meinilla við íbúa þessara borga og því komu þeir sér í mjúkinn hjá Blastusi, ritara hans, og fóru fram á friðsamleg samskipti, því að borgir þeirra áttu mikið undir verslun við land Heródesar. 21Sendinefndin fékk loforð um fund með Heródesi og þegar stundin nálgaðist, klæddist hann konungsskrúða sínum, settist í hásætið og ávarpaði þá. 22Að ræðunni lokinni hrópaði fólkið af fögnuði: „Þetta var ekki rödd manns – heldur Guðs!“
23Samstundis lagði engill frá Drottni sjúkdóm á Heródes, svo hann fylltist af ormum og lést. Ástæðan var sú að hann leyfði fólkinu að tilbiðja sig, en gaf Guði ekki dýrðina.
Barnabas og Páll í Antíokkíu
24Fagnaðarerindi Guðs breiddist nú hratt út og margir snerust til trúar.
25Strax og Barnabas og Páll höfðu lokið erindi sínu í Jerúsalem, sneru þeir aftur til Antíokkíu og tóku Jóhannes Markús með sér þangað.

¿Sabías que…?
La huida de Pedro y la muerte de Herodes
- El rey Herodes de este capítulo es Herodes Agripa I, nieto de Herodes el Grande, que con el tiempo llegó a poseer todo el reino de su abuelo y el título de rey. Hizo matar a Santiago y encarceló a Pedro. El Diccionario Bíblico de Easton (1897) dice que, en el segundo día de una fiesta en honor del emperador Claudio, Agripa apareció en el gran teatro de Cesarea con magníficas vestiduras de plata; era temprano, y los rayos del sol deslumbraban a quienes lo veían.Fuentes: Herod Agrippa I · el propio texto bíblico
- El Santiago muerto a espada era Santiago, hijo de Zebedeo, hermano del apóstolo Juan, un pescador que había trabajado como socio de Pedro. El Diccionario Bíblico de Easton (1897) lo presenta como el primero de los apóstoles en ser muerto y dice que Herodes Agripa lo hizo decapitar. El Santiago a quien Pedro pide que se avise a los creyentes es otro hombre: el mismo diccionario lo identifica como el Santiago que encabezaba la iglesia en Jerusalén.Fuentes: James (Son of Zebedee) · James (Brother of Jesus) · el propio texto bíblico
- Cuando comprendió que estaba libre, Pedro fue a la casa de María, madre de Juan Marcos, en Jerusalén, que el Diccionario Bíblico de Easton (1897) llama lugar habitual de reunión de los discípulos; mucha gente estaba reunida allí orando. La sirvienta que acudió a la puerta exterior se llamaba Rode, nombre que significa una rosa; llena de alegría al oír su voz, corrió adentro para anunciarlo y olvidó abrir la puerta. Juan, llamado también Marcos, era hijo de María —Marcos, su nombre romano, poco a poco reemplazó al nombre judío Juan— y más tarde salió de Jerusalén con Bernabé y Saulo.Fuentes: Mary (Mother of John Mark) · Rhoda · John Mark · el propio texto bíblico
Notas escritas con ayuda de IA a partir de fuentes abiertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, dominio público) y revisadas antes de publicarse.
Lugares de este capítulo
- Caesarea · Hoy: Caesarea Maritima · 32.500, 34.892 · versículo 19
- Judea · Hoy: Judea 1 · 31.777, 35.234 · versículo 19
- Sidon · Hoy: Sandikli archaeological site in Sidon · 33.561, 35.372 · versículo 20
- Tyre · 33.271, 35.196 · versículo 20
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 25
Solo aparecen lugares identificados con alta confianza (90 % o más según las fuentes académicas reunidas por OpenBible). Mapa de la época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa actual: © colaboradores de OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos y licencia de esta traducción
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fuente: http://ebible.org/isl/ · eBible.org