Nations Bible

Mark 7

316-biblían · Tap a verse to see its cross-references.

1Skömmu síðar komu til hans farísear og nokkrir lögmálskennarar frá Jerúsalem. 2Þeim mislíkaði mjög að sjá að nokkrir lærisveina hans borðuðu brauð án þess að þvo sér um hendurnar, 3vegna þess að í samræmi við lög forfeðra sinna borðuðu farísearnir og allir gyðingarnir ekki nema þeir hefðu fyrst þvegið sér um hendurnar. 4Þeir borðuðu heldur ekki eftir að þeir komu heim af markaðinum án þess að þvo sér um hendurnar, og höfðu það líka fyrir reglu að þvo vel bolla, ílát og borð. 5„Af hverju fylgja lærisveinar þínir ekki lögum forfeðra okkar?“ spurðu farísearnir og lögmálskennararnir Jesú. „Þeir borða án þess að þvo sér um hendurnar!“ 6„Jesaja spáði rétt fyrir um ykkur, hræsnararnir ykkar,“ svaraði Jesús. „Hann skrifaði: Mennirnir segjast heiðra mig en hjörtu þeirra eru langt frá mér. 7Lof þeirra er innantómt og þeir kenna það eitt sem frá mönnunum er komið. 8Þið hafið snúið ykkur frá fyrirmælum Guðs og skipt þeim út fyrir mannlegar hefðir eins og bollaþvott, og annað í þeim dúr.

9Þið hafnið fyrirmælum Guðs og fylgið í staðinn ykkar eigin hefðum. 10Móse sagði „Þú skalt heiðra föður þinn og móður þína“ og „Sá sem bölvar föður sínum eða móður á skilið að deyja“.

11En þið segið „Ef maður segir við föður sinn eða móður að eitthvað sé „korban“ (þ.e.a.s. gjöf helguð Guði) sem faðir hans eða móðir hefðu annars átt að fá, 12er hann leystur undan þeirri skyldu sinni að gera neitt fyrir þau.“ 13Þið ógildið orð Guðs með hefðum ykkar, þessu dæmi og mörgum öðrum.“

14Hann kallaði fólkið í kringum sig og sagði: „Hlustið öll vel! 15Maður verður ekki óhreinn af því sem kemur að utan og inn, heldur af því sem kemur að innan og út. 16Hugsið vel um það sem þið hafið heyrt.“ 17Þegar þeir voru komnir einir inn í hús saman spurðu lærisveinarnir Jesú út í dæmisöguna. 18„Skiljið þið þetta ekki heldur?“ svaraði hann. „Skiljið þið ekki að það sem maðurinn tekur inn utan frá getur ekki óhreinkað hann? 19Hann tekur það nefnilega ekki inn í hjartað, heldur magann, og þaðan fer það síðan út úr honum aftur eins og allur úrgangur. 20En það er það sem kemur innan frá sem óhreinkar manninn. 21Allar verstu hugsanirnar – framhjáhald, kynferðislegar syndir, morð, 22þjófnaður, græðgi, svik, stjórnleysi, öfund, guðlast, hroki og öll óskynsemi – 23þessi illska byrjar öll í hjarta mannsins. Þetta kemur allt saman innan frá, og það er það sem óhreinkar manninn.“

24Stuttu seinna fór Jesús af stað til Týrusar og Sídon. Hann reyndi að leyna því að hann væri kominn til svæðisins, en það spurðist út. 25Kona á svæðinu átti unga dóttur sem var haldin óhreinum anda. Þegar hún frétti að Jesús væri kominn fór hún til hans og féll á kné fyrir framan hann. 26Konan, sem var Grikki frá sýrlensku Fönikíu, bað hann að reka óhreina andann út úr dóttur sinni. 27„Það er eðlilegast að börnin fái fyrst að borða,“ sagði hann við hana, „og að hundarnir fái síðan leifarnar þeirra, en ekki öfugt.“ 28„Jú,“ svaraði konan, „en hundarnir fá að sitja undir borðinu og éta það sem börnin missa niður.“ 29„Vel svarað,“ sagði Jesús. „Farðu heim, því djöfullinn er farinn út úr dóttur þinni.“ 30Og þegar hún kom heim lá dóttir hennar þar sofandi, og djöfullinn var farinn úr henni.

31Jesús hélt síðan af stað frá Týrus og Sídon í átt að Galíleuvatni eftir ströndum Dekapólissvæðisins. 32Þar kom fólk til hans með mann sem glímdi við heyrnarleysi og málörðugleika, og bað Jesú um að snerta hann. 33Jesús fór með manninn afsíðis. Þar setti hann fingurna í eyru mannsins, hrækti og snerti svo tungu mannsins. 34Hann horfði upp til himins, andvarpaði og sagði svo við manninn „Effata!“ (sem þýðir „opnastu“). 35Við það opnuðust eyru mannsins, og tunga hans losnaði, og hann gat talað eðlilega. 36Jesús brýndi fyrir þeim að segja engum frá þessu. En því meira sem hann brýndi þetta fyrir þeim, því minna gátu þau þagað yfir því sem þau höfðu séð hann gera. 37„Hann gerir ótrúlegustu hluti!“ sögðu þau, furðu lostin. „Hjá honum fá heyrnarlausir heyrn og mállausir mál.“

Did you know?

Purity, tradition, and the road beyond Galilee

  • Pharisees and scribes who had come from Jerusalem questioned Jesus because some of his disciples were eating with unwashed hands. Mark explains that, in holding to the tradition of the elders, the Pharisees and all the Jews did not eat until they washed ceremonially, and that they also washed after the market and washed cups, pitchers, kettles, and couches for dining. A chronology dates this discourse on commandments and tradition to AD 29.Sources: the Bible text itself · Commandments and Tradition Discourse
  • Jesus answered by quoting Isaiah, the son of Amoz, about people who honor God with their lips while their hearts are far from him, and who teach human precepts as doctrine. He set against the tradition of the elders a command he attributes to Moses—to honor father and mother—and the practice of Corban, which the text explains as a gift devoted to God and by which, he said, a person was no longer permitted to do anything for his parents.Sources: the Bible text itself · Isaiah
  • In the region of Tyre, a Greek woman of Syrophoenician origin begged Jesus to drive an unclean spirit out of her daughter. He later went through Sidon to the Sea of Galilee and into the Decapolis: Sidon, on the Mediterranean north of Tyre, was the older Phoenician city and Tyre’s mother city, while the Decapolis—a name meaning ten cities—lay east and southeast of the lake and was chiefly inhabited by Greeks. There a man who was deaf and hardly able to speak was brought to him, and Jesus said, “Ephphatha,” which the narrative explains as “Be opened.”Sources: the Bible text itself · Sidon · Tyre · Decapolis

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 1
  • Galilee · 32.760, 35.527 · verse 24
  • Sidon · Today: Sandikli archaeological site in Sidon · 33.561, 35.372 · verses 24, 31
  • Tyre · 33.271, 35.196 · verses 24, 31
  • Phoenicia · 33.271, 35.196 · verse 26
  • Decapolis · 32.717, 35.800 · verse 31
  • Sea of Galilee · 32.819, 35.590 · verse 31

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Source: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.