Nations Bible

Mark 6

316-biblían · Tap a verse to see its cross-references.

1Síðan lagði hann af stað aftur til síns heimasvæðis, og lærisveinarnir með honum. 2Á hvíldardeginum kenndi hann í samkomuhúsinu. Margir þeirra sem hlustuðu á hann voru steinhissa. „Hvaðan fær hann eiginlega alla þessa visku,“ spurðu þeir, „og máttinn sem hann notar til þess að vinna öll þessi kraftaverk? 3Er þetta ekki trésmiðurinn, sonur Maríu og bróðir Jakobs, Jóses, Júdasar og Símonar? Og svo eru systur hans hérna.“ Og þeir hneyksluðust á honum. 4„Spámenn njóta engrar virðingar í heimalandi sínu og meðal ættingja sinna,“ sagði Jesús. 5Og hann gat ekki gert nein kraftaverk þarna nema að snerta og lækna nokkra veika einstaklinga, 6vegna þess að fólkið hafði svo litla trú á honum, en hann ferðaðist um þorpin á svæðinu og kenndi.

7Jesús byrjaði að senda lærisveinana tólf út tvo og tvo saman með vald sem hann gaf þeim yfir óhreinum öndum. 8Hann sagði þeim að taka ekkert með sér í ferðalagið nema göngustaf – enga tösku, engan mat og enga peninga – 9þeir skyldu vera í skóm en ekki taka með sér föt til skiptanna. 10„Þegar einhver býður ykkur velkomna inn á heimili sitt,“ sagði hann við þá, „skuluð þið gista þar hjá þeim á sama stað þar til þið farið. 11En á þeim stöðum þar sem fólk tekur ekki við ykkur og vill ekki hlusta á ykkur skuluð þið láta það fólk eiga sig. Á dómsdeginum verða Sódóma og Gómorra í betri stöðu en þessir staðir.“ 12Og lærisveinarnir fóru af stað og kölluðu fólk til þess að iðrast. 13Þeir köstuðu út mörgum djöflum og smurðu fólk með olíu svo það læknaðist.

14Heródes konungur heyrði sögurnar af Jesú sem voru byrjaðar að breiðast út. „Þetta hlýtur að vera Jóhannes skírari,“ sagði hann, „risinn upp frá dauðum til þess að gera þessi kraftaverk.“ 15„Þetta hlýtur að vera Elía,“ sögðu sumir, meðan aðrir sögðu að þetta hlyti að vera spámaður, eða einhver sem líktist spámönnunum sjálfum. 16En Heródes var viss um að þetta hlyti að vera Jóhannes, sem hann hafði látið taka af lífi, risinn upp frá dauðum. 17Heródes hafði nefnilega látið handtaka Jóhannes og henda honum í fangelsi vegna Heródíösu, eiginkonu Filippusar, bróður hans, sem Heródes hafði gifst. 18Jóhannes hafði sagt við Heródes að hann mætti ekki giftast eiginkonu bróður síns, 19sem gerði Heródíösu reiða. Hún hefði viljað drepa hann en gat það ekki, 20því Heródes óttaðist Jóhannes, sem hann vissi að væri réttlátur og heilagur maður. Hann hlustaði á það sem Jóhannes hafði að segja þó hann skildi það ekki allt. 21Heródíasa fékk tækifæri til að hefna sín á Jóhannesi á afmælisdegi Heródesar, þegar Heródes bauð æðstu leiðtogum sínum, hershöfðingjum og valdhöfum í Galíleu til veislu. 22Dóttir Heródíösu dansaði svo listilega fyrir veislugestina að Heródes bauð henni að fá hvað sem hún vildi að launum fyrir dansinn. 23„Nefndu bara það sem þú vilt fá,“ sagði Heródes við hana, „og ég sver að þú færð það, þó það væri hálft konungsríki mitt!“ 24„Hvað ætti ég að biðja hann um?“ spurði hún móður sína. „Biddu um höfuð Jóhannesar skírara,“ svaraði hún. 25Dóttirin flýtti sér aftur til konungsins. „Það sem ég vil,“ sagði hún, „er höfuð Jóhannesar skírara á fati.“ 26Konunginum brá mjög að heyra þetta, en vegna þess að hann hafði svarið fyrir framan gestina að hún fengi hvað sem hún vildi gat hann ekki sagt nei. 27Hann sendi þess vegna varðmanninn sinn að sækja höfuð Jóhannesar, og varðmaðurinn afhöfðaði Jóhannes í fangelsinu 28og kom aftur með höfuð hans á fati til stúlkunnar, sem gaf móður sinni það. 29Lærisveinar Jóhannesar fréttu þetta og komu og sóttu lík Jóhannesar og lögðu það í gröf.

30Þegar lærisveinar Jesú sneru aftur úr ferðum sínum sögðu þeir honum frá öllu því sem þeir höfðu gert og öllu sem þeir höfðu kennt fólkinu. 31„Förum einir út í óbyggðirnar og hvílum okkur,“ sagði hann við þá – það var alltaf margt fólk í kringum þá og svo mikið að gera að þeir höfðu varla tíma til að borða. 32Þeir sigldu því einir út á afskekktan stað. 33En mannfjöldinn kom auga á Jesú þegar hann var að leggja af stað, og fólk streymdi út úr borgunum fótgangandi á eftir honum. 34Jesús sá hvernig það ráfaði um eins og kindur án fjárhirðis, fann til með því, og talaði lengi til þess. 35Dagurinn leið og að lokum komu lærisveinar Jesú til hans. „Það er orðið áliðið,“ sögðu þeir, „og hér erum við ennþá úti í óbyggðunum. 36Sendu fólkið af stað til næstu þorpa svo það geti keypt sér eitthvað að borða, því það kom ekki með mat með sér.““ 37„Nú,“ svaraði Jesús. „Viljið þið ekki bara gefa því að borða?“ Lærisveinarnir litu á hann. „Viltu að við förum og kaupum ógrynnin öll af brauði handa því?“ spurðu þeir. 38„Hversu mikinn mat eruð þið með?“ spurði Jesús þá á móti. Þeir fóru og athuguðu það. „Fimm brauð og tvo fiska,“ var svarið. 39Jesús sagði þeim þá að láta alla setjast saman í hópum í grasið, 40og fólkið fékk sér sæti í fimmtíu og hundrað manna hópum. 41Jesús tók þá brauðin fimm og fiskana tvo, leit upp til himins, blessaði matinn, og byrjaði að rífa niður brauðið og fiskana svo lærisveinarnir gætu dreift matnum til fólksins. 42Fólkið borðaði þar til allir voru orðnir saddir. 43Svo söfnuðu lærisveinarnir saman tólf körfum fullum af leifunum af brauðinu og fiskunum, 44eftir að um fimm þúsund manns höfðu fengið að borða.

45Jesús sagði lærisveinunum síðan að stíga um borð í bátinn og sigla af stað yfir vatnið á undan sér til Betsaídu, meðan hann kvaddi fólkið. 46Eftir að allt fólkið var farið af stað fór hann upp á fjall að biðja. 47Þegar Jesús kom aftur niður á ströndina var orðið dimmt og bátur lærisveinanna var kominn út á mitt vatnið. 48Jesús sá hvað þeir þurftu að berjast við að róa, vegna þess að vindurinn var á móti þeim. Uppúr miðnætti kom hann gangandi yfir vatnið í áttina til þeirra. 49Þegar lærisveinarnir sáu hann koma gangandi yfir vatnið héldu þeir að þetta væri draugur og hrópuðu upp yfir sig af hræðslu. 50En Jesús kallaði til þeirra: „Veriði ekki hræddir! Þetta er ég.“ 51Hann steig um borð í bátinn til þeirra og um leið lægði vindinn. Lærisveinarnir trúðu varla sínum eigin augum. 52Þeir skildu ekki kraftaverkið sem hann hafði framkvæmt með brauðið, vegna þess að hjörtu þeirra voru lokuð fyrir því. 53Þeir sigldu áfram yfir vatnið og komu að landi við Genesaret. 54Um leið og þeir stigu frá borði könnuðust einhverjir strax við Jesú 55og fólk byrjaði að streyma þangað sem það hafði heyrt að hann væri, berandi veikt fólk til hans á börum. 56Hvar sem hann kom, hvort sem það var í borg, þorpi eða sveit, báru íbúarnir veikt fólk til hans, kölluðu á hann og reyndu að snerta hann, þó ekki væri nema faldinn á fötunum hans. Og allir þeir sem snertu hann urðu heilbrigðir.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Ministry, Opposition, and Miracles

  • When Jesus taught in his hometown synagogue, the local people took offense at him, identifying him by his trade as a carpenter and naming his mother Mary and his brothers James, Joses, Judas, and Simon.Sources: the Bible text itself · Mary (Mother of Jesus) · James (Brother of Jesus) · Simon
  • John the Baptist was imprisoned and executed by Herod Antipas after declaring that Herod's marriage to Herodias, the former wife of his brother Philip, was unlawful.Sources: the Bible text itself · Herod Antipas · Herodias · Philip
  • When Jesus sent out the Twelve disciples two by two across Galilee, he instructed them to carry only a staff and sandals, depending entirely on the hospitality of the households that received them.Sources: the Bible text itself · Galilee

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Nazareth · 32.702, 35.298 · verse 1
  • Galilee · 32.760, 35.527 · verse 21
  • Gennesaret · Today: El Ghuweir · 32.861, 35.507 · verse 53

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Source: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.