Nations Bible

Mark 8

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

1Dag einn um þessar mundir safnaðist mikill mannfjöldi að honum og nú varð fólkið matarlaust á ný. Jesús kallaði þá saman lærisveinana til að ræða málið.

2„Ég finn til með fólkinu,“ sagði hann. „Nú hefur það verið hér í þrjá daga og allur matur er upp urinn. 3Ef ég sendi það heim matarlaust mun það örmagnast á leiðinni, því margir eiga langt heim.“

4„En er nokkurn mat að finna hér í óbyggðinni?“ spurðu lærisveinarnir.

5„Hvað eigið þið mörg brauð?“ spurði hann. „Sjö,“ svöruðu þeir. 6Þá sagði hann fólkinu að setjast niður. Síðan tók hann brauðin og þakkaði Guði. Hann braut þau í sundur, rétti lærisveinunum og þeir síðan fólkinu. 7Þeir höfðu einnig nokkra smáfiska sem Jesús þakkaði líka fyrir og bað þá að tilreiða.

8Allir viðstaddir borðuðu sig metta og að því búnu sendi hann þá heim. Þarna voru um fjögur þúsund manns og þegar leifunum hafði verið safnað saman eftir máltíðina, fylltu þær sjö stórar körfur!

„Þurfið þið að sjá enn fleiri kraftaverk?“

10Strax að þessu loknu fór hann á bátnum ásamt lærisveinunum og hélt til Dalmanútahéraðs. 11Þegar leiðtogar staðarins fréttu að Jesús væri kominn, fóru þeir til hans til að þrátta við hann.

„Gerðu nú eitthvert kraftaverk fyrir okkur,“ sögðu þeir. „Láttu eitthvað birtast á himninum og þá skulum við trúa á þig.“

12Þegar hann heyrði þetta stundi hann þungan og sagði: „Nei, ég hef alls ekki hugsað mér að gefa ykkur slíkt tákn.“

13Síðan steig hann aftur um borð í bátinn og hélt yfir vatnið. 14Þeir höfðu þá aðeins eitt brauð meðferðis því lærisveinarnir höfðu gleymt að birgja sig upp af mat áður en þeir lögðu frá landi.

15Á leiðinni yfir vatnið sagði Jesús við lærisveinana alvarlegur í bragði: „Varið ykkur á súrdeigi Heródesar konungs og faríseanna.“ 16„Hvað á hann nú við?“ spurðu lærisveinarnir hver annan. Að lokum komust þeir að þeirri niðurstöðu að hann hlyti að eiga við brauðið sem þeir höfðu gleymt að kaupa.

17Jesús vissi um hvað þeir voru að tala og sagði því: „Nei, ég á alls ekki við það! Skiljið þið mig ekki? 18Það er satt sem Jesaja sagði. „Augun eru til að sjá, en hvers vegna notið þið þau ekki? Og hvers vegna hlustið þið ekki, til þess eru eyrun.“ Munið þið ekkert eða hvað?

19Hvað um fimm þúsundirnar sem ég mettaði með brauðunum fimm? Og hvað fylltuð þið margar körfur með brauðmolum á eftir?“ „Tólf,“ svöruðu þeir.

20„Og þegar ég lét sjö brauð nægja handa fjórum þúsundum, varð þá eitthvað eftir?“

„Sjö fullar körfur,“ svöruðu þeir.

21„Haldið þið þá enn að ég kvíði brauðleysinu?“

22Þegar þeir stigu á land í Betsaída var komið með blindan mann og Jesús beðinn að lækna hann. 23Jesús leiddi blinda manninn út úr bænum, spýtti í augu hans og lagði hendur sínar yfir þau.

„Sérðu núna?“ spurði Jesús.

24Maðurinn leit í kring um sig. „Já,“ svaraði hann, „ég sé fólk, en ég sé óskýrt, það er eins og trjástofnar.“

25Þegar Jesús hafði lagt hendur sínar yfir augu mannsins í annað sinn horfði hann athugull í kringum sig, því nú sá hann allt mjög skýrt.

26Jesús sagði að hann skyldi halda rakleiðis heim til fjölskyldu sinnar en ekki koma við í bænum á leiðinni.

„Þú ert Kristur“

27Jesús og lærisveinar hans fóru nú frá Galíleu og til þorpanna í grennd við Sesareu Filippí. Á leiðinni spurði hann þá: „Hvað heldur fólk um mig? Hver heldur það að ég sé?“

28„Sumir halda að þú sért Jóhannes skírari,“ svöruðu lærisveinarnir. „Aðrir segja að þú sért Elía eða einhver hinna fornu spámanna risinn upp frá dauðum.“

29„En þið?“ spurði hann, „hvern segið þið mig vera?“ Og Pétur svaraði: „Þú ert Kristur.“ 30Þá áminnti Jesús þá um að tala ekki um þetta við nokkurn mann.

31Síðan sagði hann þeim frá þjáningunum sem biðu hans, að honum yrði hafnað af öldungunum, æðstu prestunum og öðrum leiðtogum þjóðarinnar, og eftir það yrði hann deyddur, en risi upp frá dauðum á þriðja degi. 32Hann talaði svo opinskátt við þá um þetta, að Pétur vék honum afsíðis og ávítaði hann.

„Svona mátt þú ekki tala,“ sagði Pétur. 33Jesús sneri sér við, leit á lærisveinana og sagði síðan við Pétur ákveðinni röddu: „Burt með þig, Satan! Þú lítur á málið frá mannlegu sjónarmiði en ekki Guðs.“

34Síðan kallaði hann á lærisveinana og allt fólkið og sagði: „Vilji einhver fylgja mér, þá afneiti hann sjálfum sér, taki upp kross sinn og fylgi mér fast eftir, 35því hver sá sem vill eiga líf sitt fyrir sjálfan sig, mun tapa því. Þeir einir, sem afneita sjálfum sér vegna mín og gleðiboðskaparins, munu kynnast lífinu í raun og veru.

36Hvaða gagn er að því að eignast allan heiminn, ef maður týnir við það sálu sinni? 37Er sál mannsins ekki það dýrmætasta sem hann á? 38Þegar ég kem aftur í dýrð föðurins með heilögum englum, mun ég blygðast mín fyrir hvern þann sem blygðast sín fyrir mig og mín orð á þessum tímum syndar og vantrúar.“

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Seeing Who Jesus Is

  • After about four thousand men had eaten and seven baskets of broken pieces had been picked up, Jesus got into the boat with his disciples and went to the district of Dalmanutha, a name that appears only in this chapter. It was a place on the west side of the Sea of Galilee, near Magdala. In the parallel passage in Matthew, he comes into the borders of Magdala, which was probably the Greek name of one of the watch-towers on the western shore of the lake.Sources: the Bible text itself · Dalmanutha
  • At Bethsaida some people brought a blind man, and Jesus led him by the hand out of the village, spit on his eyes, and placed his hands on him. At first the man saw people like trees walking; only when Jesus placed his hands on the man’s eyes again was his sight fully restored. The town is described as standing on the east side of the lake, about two miles up the Jordan, in Gaulonitis; Philip the tetrarch enlarged it and called it Julias, after the emperor’s daughter, though some have supposed there was only one Bethsaida, built on both sides of the lake near where the Jordan enters it.Sources: the Bible text itself · Bethsaida
  • Jesus and his disciples went on to the villages around Caesarea Philippi, a city about twenty miles north of the Sea of Galilee, near the base of Mount Hermon at the upper source of the Jordan, and described as the northern limit of his public ministry. According to some, it had earlier been Baal-Gad or Baal-Hermon, a Canaanite sanctuary of Baal, and it was later called Panium or Paneas, from a deep cavern full of water near the town. There Peter said, "You are the Christ," and when he rebuked Jesus for teaching that the Son of Man must suffer many things, be killed, and rise after three days, Jesus answered, "Get behind me, Satan," a name that means adversary or accuser.Sources: the Bible text itself · Caesarea Philippi · Satan

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Caesarea Philippi · Today: Banias · 33.246, 35.693 · verse 27
  • Galilee · 32.760, 35.527 · verse 27

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.