Nations Bible

Mark 7

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Trúarleiðtogarnir leggja spurningu fyrir Jesú

1Dag nokkurn komu trúarleiðtogarnir frá Jerúsalem til að fylgjast með Jesú. 2Þeir tóku eftir því að sumir lærisveina hans skeyttu engu reglum þeim sem farið var eftir áður en menn neyttu matar. 3(Gyðingar, og sérstaklega farísear, mötuðust aldrei nema þeir hefðu, samkvæmt sérstökum trúarsiðum, þvegið sér um hendurnar. 4Þegar þeir komu heim af markaðnum, urðu þeir alltaf að þvo sér á þennan hátt áður en þeir snertu matinn. Þetta var aðeins ein af mörgum reglum þeirra og lögum sem þeir hafa fylgt öldum saman og gera enn. Ein reglan er til dæmis sérstakur trúarlegur þvottur á pottum, pönnum og diskum.)

5Trúarleiðtogarnir spurðu því Jesú. „Hvers vegna hlýða lærisveinar þínir ekki aldagömlum venjum okkar? Þeir borða án þess að þvo sér, en það er brot á reglunum.“

6„Þið hræsnarar!“ svaraði Jesús. „Jesaja spámaður lýsti ykkur vel þegar hann sagði: „Fólk þetta talar fagurlega um Drottin, en það elskar hann ekki. Tilbeiðsla þess er einskis virði, því það heldur því fram að það sé skipun Guðs að fólk hlýði öllum þeirra ómerkilegu reglum.“ Jesaja hafði sannarlega rétt fyrir sér! 8Þið virðið að vettugi skýr boð Guðs en takið í staðinn upp ykkar eigin siðvenjur. 9Með þessu hafnið þið boðum Guðs og traðkið á þeim, til þess eins að gera eins og ykkur langar.

10Móse sagði til dæmis: „Heiðraðu föður þinn og móður.“ Hann sagði einnig að hver sá er formælti foreldrum sínum væri dauðasekur. 11Þið segið hins vegar að í lagi sé að menn sinni ekki þörfum foreldra sinna og segi við þau: „Mér þykir leitt að geta ekki hjálpað ykkur, en ég hef gefið Guði það sem ég annars hefði gefið ykkur.“ 12Þannig brjótið þið boðorð Guðs til að geta hlýtt ykkar eigin mannaboðorðum. Þetta er aðeins eitt dæmi, en ég gæti nefnt mörg önnur.“

14Síðan kallaði Jesús á fólkið og sagði: „Takið eftir, og reynið að skilja. 15Sálir ykkar bíða ekki tjón af því sem þið borðið, heldur hinu sem þið hugsið og segið.“

17Að því búnu fór hann í húsið til að fá næði fyrir fólkinu. Þá spurðu lærisveinar hans hvað hann hefði átt við með þessum orðum. 18„Eruð þið líka svona skilningslausir?“ spurði hann. „Getið þið ekki skilið að það sem þið borðið skaðar ekki sál ykkar, 19því maturinn kemst ekki í snertingu við sálina, hann fer aðeins í gegnum meltingarfærin.“ (Með þessu átti hann við að leyfilegt væri að neyta hvaða matar sem er.)

20Síðan bætti hann við: „Það er hugarfarið sem spillir manninum. 21Frá hjarta hans koma illar hugsanir, girnd, þjófnaður, morð, hórdómur, 22eftirsókn eftir eigum annarra, illmennska, sviksemi, saurlifnaður, öfund, baktal, hroki og alls konar heimska. 23Allt þetta illa kemur innan frá og spillir og óhreinkar manninn í augum Guðs?“

„Allt sem hann gerir er gott“

24Eftir þetta fór Jesús frá Galíleu og norður til héraðanna umhverfis Týrus og Sídon. Hann reyndi að fara huldu höfði en án árangurs. Fréttirnar um komu hans bárust um allt eins og venjulega.

25Kona ein sem þarna var kom til hans. Hún átti dóttur sem haldin var illum anda. Hún hafði heyrt um Jesú og því kom hún nú, kraup við fætur hans, 26og grátbað hann að losa dótturina við illa andann. (Konan var frá sýrlensku Fönikíu og því heiðingi í augum Gyðinga.)

27Jesús svaraði henni og sagði: „Fyrst verð ég að hjálpa samlöndum mínum – Gyðingunum. Það er ekki rétt að taka matinn frá börnunum og kasta honum til hvolpanna.“

28„Rétt er það, herra, en hvolparnir týna þó upp molana sem börnin leifa,“ sagði hún.

29„Rétt,“ sagði hann, „þú svaraðir vel – svo vel, að nú hef ég læknað dóttur þína! Farðu nú heim – illi andinn er farinn út af henni.“

30Þegar konan kom heim lá litla stúlkan róleg í rúminu; illi andinn var farinn.

31Frá Týrus fór Jesús til Sídonar og síðan til Dekapólis (þorpanna tíu) við Galíleuvatnið. 32Þá var leiddur til hans maður sem bæði var heyrnarlaus og mállaus. Bað fólkið Jesú að leggja hendur yfir hann og lækna hann.

33Jesús fór með hann afsíðis, stakk fingrunum í eyru hans og vætti tungu hans með munnvatni sínu. 34Síðan horfði hann upp til himins, andvarpaði og sagði: „Opnist þú.“ 35Um leið fékk maðurinn fulla heyrn og talaði skýrt!

36Jesús bannaði fólkinu að láta þetta fréttast, en því meir sem hann bannaði það, því meir var það borið út, 37kraftaverkið hafði mikil áhrif á alla. Fólk sagði: „Allt sem hann gerir er gott. Hann getur meira að segja gefið heyrnarlausum heyrn og mállausum mál.“

Did you know?

Purity, tradition, and the road beyond Galilee

  • Pharisees and scribes who had come from Jerusalem questioned Jesus because some of his disciples were eating with unwashed hands. Mark explains that, in holding to the tradition of the elders, the Pharisees and all the Jews did not eat until they washed ceremonially, and that they also washed after the market and washed cups, pitchers, kettles, and couches for dining. A chronology dates this discourse on commandments and tradition to AD 29.Sources: the Bible text itself · Commandments and Tradition Discourse
  • Jesus answered by quoting Isaiah, the son of Amoz, about people who honor God with their lips while their hearts are far from him, and who teach human precepts as doctrine. He set against the tradition of the elders a command he attributes to Moses—to honor father and mother—and the practice of Corban, which the text explains as a gift devoted to God and by which, he said, a person was no longer permitted to do anything for his parents.Sources: the Bible text itself · Isaiah
  • In the region of Tyre, a Greek woman of Syrophoenician origin begged Jesus to drive an unclean spirit out of her daughter. He later went through Sidon to the Sea of Galilee and into the Decapolis: Sidon, on the Mediterranean north of Tyre, was the older Phoenician city and Tyre’s mother city, while the Decapolis—a name meaning ten cities—lay east and southeast of the lake and was chiefly inhabited by Greeks. There a man who was deaf and hardly able to speak was brought to him, and Jesus said, “Ephphatha,” which the narrative explains as “Be opened.”Sources: the Bible text itself · Sidon · Tyre · Decapolis

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 1
  • Galilee · 32.760, 35.527 · verse 24
  • Sidon · Today: Sandikli archaeological site in Sidon · 33.561, 35.372 · verses 24, 31
  • Tyre · 33.271, 35.196 · verses 24, 31
  • Phoenicia · 33.271, 35.196 · verse 26
  • Decapolis · 32.717, 35.800 · verse 31
  • Sea of Galilee · 32.819, 35.590 · verse 31

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.