Matthew 23
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Vei faríseum og hræsnurum
1Jesús talaði til mannfjöldans og lærisveina sinna og sagði:
2„Halda mætti að þessir leiðtogar og farísear væru sjálfir Móse, því þeir eru alltaf að setja ný lög. 3Þið skuluð gera það sem þeir segja, en eftir verkum þeirra skuluð þið ekki breyta, því að þeir fara sjálfir ekki eftir því sem þeir kenna. 4Þeir krefjast mikils af öðrum, en lítils af sjálfum sér. 5Þeir gera allt til að sýnast. Þeir láta líta út sem þeir séu heilagir með því að breikka minnisborðana og lengja skúfana á skikkjum sínum. 6Þeir njóta þess að sitja við háborðið í veislum og hafa mætur á stúkusætum samkomuhúsanna. 7Þeim líkar vel að tekið sé eftir þeim á götum og þeir vilja gjarnan láta kalla sig „rabbí“ eða „meistari“. 8Látið engan kalla ykkur meistara, því ykkar eini meistari er Guð og allir eruð þið jafnir sem bræður. 9Ávarpið heldur engan sem föður á jörðu, því að þannig á aðeins að ávarpa Guð á himnum. 10Kallið ykkur ekki heldur „leiðtoga“ því ykkar eini leiðtogi er Kristur. 11Sá ykkar sem er fremstur, á að vera þjónn ykkar. Sá sem er mestur, þjóni hinum! 12Sá sem upphefur sjálfan sig, mun niðurlægjast, en þeir sem auðmýkja sig hljóta heiður. 13Þið farísear og trúarleiðtogar, vei ykkur, því þið eruð hræsnarar! Þið útilokið menn frá því að komast inn í himnaríki og sjálfir munuð þið ekki komast þangað. Þið biðjið langar bænir á almannafæri til að auglýsa guðrækni ykkar, en svo flæmið þið ekkjur út af heimilum sínum Hræsnarar! 15Já, vei ykkur, þið hræsnarar! Þið farið langar leiðir til þess að vinna einn trúskipting, og gerið hann síðan að miklu verra helvítisbarni en þið eruð sjálfir. 16Þið eruð blindir leiðsögumenn. Vei ykkur! Þið segið að það sé markleysa að sverja við musterið, en sá sem sverji við eigur musterisins sé skuldbundinn. 17Blindu heimskingjar! Hvort er meira, gullið eða musterið sem helgar gullið? 18Einnig segið þið að rjúfa megi eið sem svarinn sé við altarið en ekki þann sem svarinn sé við gjöfina á altarinu. 19Þið eruð blindir! Hvort er meira, gjöfin á altarinu eða altarið sjálft, sem helgar gjöfina? 20Þegar þú sverð við altarið, þá sverðu við það sjálft og allt sem á því er. 21Þegar þú sverð við musterið, þá sverðu við það og við Guð sem þar býr. 22Þegar þú sverð við himininn, sverðu við hásæti Guðs og við Guð sjálfan. 23Farísear og aðrir leiðtogar, vei ykkur, því að þið eruð hræsnarar! Þið gætið þess að gjalda tíund, en skeytið ekkert um það sem meira er um vert, réttvísi, miskunnsemi og trúmennsku. Haldið áfram að gefa tíund, en látið hitt ekki ógjört sem mikilvægara er. 24Blindu leiðsögumenn! Þið tínið flugurnar úr matnum, en gleypið svo úlfaldann með húð og hári. 25Vei ykkur, farísear og trúarleiðtogar – hræsnarar! Þið nostrið við að fægja bollann og diskinn að utan, en gleymið að hann er mengaður kúgun og ágirnd að innan. 26Þú blindi farísei! Hreinsaðu fyrst bollann og diskinn að innan svo að hann verði allur hreinn. 27Vei ykkur, fræðimenn og farísear. Þið líkist kölkuðu grafhýsi, sem er fagurt að utan – en að innan fullt af ódaun, rotnun og dauðra manna beinum. 28Þið reynið að sýnast heilagir menn í annarra augum, en hjörtu ykkar eru menguð af hræsni og lögbrotum. 29Vei ykkur, farísear og fræðimenn – hræsnarar! Þið reisið minnismerki um spámennina sem forfeður ykkar drápu, skreytið grafir guðrækinna manna, sem þeir einnig líflétu, og segið: „Aldrei hefðum við framið slíkt ódæði sem forfeður okkar.“ 31Með þessum orðum lýsið þið yfir að þið séuð synir vondra manna, 32síðan fetið þið í fótspor þeirra og fullkomnið illverk þeirra. 33Eiturnöðrur og höggormssynir! Hvernig fáið þið umflúið dóm helvítis? 34Ég sendi til ykkar spámenn og kennimenn. Suma þeirra munið þið krossfesta, en berja aðra í samkomuhúsum ykkar og ofsækja þá í borg eftir borg. 35Þannig berið þið ábyrgð á lífláti allra guðrækinna manna, allt frá Abel hinum réttláta til Sakaría Barakíasonar, sem þið drápuð milli altarisins og musterisins. 36Dómurinn fyrir glæpaverkin mun koma yfir þessa kynslóð.“
Jesús grætur yfir Jerúsalem
37„Jerúsalem, Jerúsalem, þú borg sem líflætur spámennina og grýtir þá sem sendir eru til þín. Oft hef ég viljað safna börnum þínum saman eins og hæna safnar ungum sínum undir vængi sína – en þið hafið ekki viljað það, 38Hús þín munu verða skilin eftir í eyði. 39Og þetta skaltu vita: Þú munt ekki sjá mig aftur fyrr en þú ert reiðubúin að taka á móti þeim, sem Guð sendir til þín.“
Did you know?
Jesus’ woes and lament over Jerusalem
- Jesus speaks of the righteous blood shed from Abel, the second son of Adam and Eve, whom his brother Cain killed, to Zechariah son of Berechiah, murdered between the temple and the altar. A related account says this alludes to Zacharias, son or grandson of the high priest Jehoiada, who was stoned in the court of the temple at the king’s command after he condemned the king and the people.Sources: the Bible text itself · Abel · Zacharias · Jehoiada
- Jesus compares his longing to gather Jerusalem’s children to a hen gathering her chicks under her wings. A dictionary note says this familiar bird was common among Jews in Palestine in later times, and that it is mentioned only in this lament and in the similar lament in Luke.Sources: the Bible text itself · Josiah
- The lament is addressed to Jerusalem, a mountain city whose name is explained as “possession of peace” or “foundation of peace.” The dual form of the name probably refers to the two mountains on which it was built, Zion and Moriah, or, as some suppose, to the upper and lower parts of the city. Jesus says that the city kills the prophets and stones those sent to her, and that her house is left to her desolate.Sources: the Bible text itself · Jerusalem
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 37
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org