Nations Bible

Matthew 22

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

Dæmisagan um brúðkaupið

1Jesús sagði fólkinu fleiri sögur til þess að auka skilning þess á mætti og valdi Guðs. Hér er ein þeirra:

2„Guðsríki má líkja við konung sem undirbjó brúðkaupsveislu sonar síns. 3Fjöldi gesta var boðinn, og þegar stundin nálgaðist sendi hann þjóna sína til þess að segja öllum að veislan væri að hefjast. En fólkið vildi ekki koma! 4Hann sendi því aðra með þessi skilaboð: „Allt er tilbúið. Steikin er í ofninum. Flýtið ykkur!“ 5En þeir sem boðnir voru hlógu aðeins og sneru sér að vinnu sinni, eins og ekkert hefði í skorist. Einn að búskapnum, annar að versluninni, 6enn aðrir börðu sendiboðana, svívirtu þá og drápu suma þeirra. 7Þá reiddist konungurinn heiftarlega og sendi þangað herlið, drap morðingjana og brenndi borg þeirra. 8Síðan sagði hann við þjóna sína: „Brúðkaupsveislan skal haldin, en gestirnir, sem boðnir voru, eru ekki verðir þessa heiðurs. 9Farið nú út á göturnar og bjóðið þeim sem þið sjáið að koma!“ 10Þjónarnir fóru og náðu í alla sem þeir gátu, bæði vonda og góða, og veislusalurinn varð fullur af brúðkaupsgestum. 11En þegar konungurinn kom inn til að heilsa gestunum, tók hann eftir manni sem ekki var í brúðkaupsklæðum (þeim sem gestunum hafði verið séð fyrir). 12„Heyrðu vinur,“ sagði konungurinn, „Hvernig stendur á því að þú ert ekki í brúðkaupsklæðum?“ Maðurinn svaraði engu. 13Þá sagði konungurinn við þjóna sína: „Bindið hann á höndum og fótum og kastið honum út í myrkrið – þar verður grátið og kveinað.“ 14Margir eru kallaðir en fáir útvaldir.“

Hverjum á að greiða skatt?

15Farísearnir sátu nú á fundi, til að ræða hvernig þeir gætu flækt Jesú í orðum, svo hægt væri að handtaka hann. 16Niðurstaðan varð sú að þeir ákváðu að senda lærisveina sína ásamt öðrum úr hópi Heródesarsinna til þess að leggja fyrir hann spurningar og segja:

„Herra við vitum að þú ert mjög heiðarlegur og segir sannleikann, hvað sem öðrum finnst. 17Segðu okkur nú, er rétt af okkur að greiða skatt til rómverska ríkisins, eða ekki?“ 18En Jesús skildi bragðið og kallaði:

„Þið hræsnarar! Eruð þið að reyna að leika á mig með lævísum spurningum? 19Sýnið mér mynt.“ Þá réttu þeir honum pening. 20„Af hverjum er myndin á peningnum,“ spurði hann, „og hvaða nafn er undir myndinni?“

21„Keisarans,“ svöruðu þeir.

„Jæja,“ sagði hann. „Gjaldið þá keisaranum það sem keisarans er, og Guði það sem Guðs er.“ 22Þeir urðu orðlausir af undrun við þetta svar og fóru burt.

Um upprisuna

23Þennan sama dag komu nokkrir saddúkear til hans, en þeir héldu því fram að upprisa dauðra ætti sér aldrei stað. Þeir spurðu: 24„Herra, Móse segir að deyi maður barnlaus, eigi bróðir hans að kvænast ekkjunni og börn þeirra síðan að erfa eignir hins látna. 25Einu sinni voru sjö bræður. Sá fyrsti kvæntist en dó án þess að eignast börn. Konan giftist þá elsta bróðurnum, 26en sá bróðir dó einnig barnlaus, og þá giftist konan þeim sem næstur var í röðinni. Svona gekk þetta koll af kolli þangað til hún hafði verið gift þeim öllum, og 27að lokum dó hún einnig. 28Nú spyrjum við: Kona hvers þeirra verður hún í upprisunni, fyrst hún var gift þeim öllum?“ 29Jesús svaraði:

„Þið vaðið reyk, því þið þekkið hvorki Biblíuna né kraft Guðs. 30Í upprisunni verður ekkert hjónaband, því þá verða allir eins og englarnir á himnum. 31En hafið þið ekki lesið það sem Biblían segir um upprisu dauðra? Skiljið þið ekki að Guð talar til ykkar þegar hann segir: 32„Ég er Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs.“ Guð er ekki Guð hinna dauðu heldur þeirra sem lifa.“ 33Mannfjöldanum þótti mikið til um svör Jesú 34en farísearnir voru ekki á sama máli.

Hvert er mikilvægasta boðorðið?

Þegar farísearnir fréttu að Jesús hefði gert saddúkeana orðlausa fitjuðu þeir upp á nýrri spurningu, og var lögfræðingur nokkur fenginn til að bera hana fram. Spurningin var þessi:

36„Herra, hvert er mikilvægasta boðorðið í lögum Móse?“ Jesús svaraði:

37„Elska skalt þú Drottin Guð þinn af öllu hjarta þínu, allri sálu þinni og öllum huga þínum. 38Þetta er fyrsta og jafnframt æðsta boðorðið. Það næstæðsta er svipað, en það er þannig: „Elskaðu meðbróður þinn eins og sjálfan þig.“ 40Öll hin boðorðin og fyrirmæli spámannanna – já, öll Biblían – byggja á þessu tvöfalda boði. Ef þið hlýðið því, þá hlýðið þið öllum hinum um leið.“

Hvað sagði Davíð?

41En nú spurði Jesús faríseana:

42„Getið þið sagt mér hvers son Kristur er?“

„Sonur Davíðs,“ svöruðu þeir.

43„Hvers vegna talar þá Davíð, knúinn af heilögum anda, um hann sem Drottin?“ spurði Jesús. „Var það ekki Davíð sem sagði:

44„Guð sagði við minn Drottin: sittu mér til hægri handar uns ég hef lagt óvini þína að fótum þér.“

45Fyrst Davíð kallar hann „Drottin,“ hvernig getur hann þá verið sonur hans?“ 46Þessu gátu þeir ekki svarað og eftir það þorði enginn að spyrja hann neins.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

A Banquet and a Day of Questions

  • The challenges in this chapter all fall on one day: Pharisees and Herodians ask whether it is lawful to pay taxes to Caesar, Sadducees who say there is no resurrection tell of seven brothers and one widow, and an expert in the law asks which commandment is greatest. A listing of the episode calls it Debates in the Temple and assigns it a length of one day; the narrative adds that from that day on no one dared to question Jesus further.Sources: the Bible text itself · Debates in the Temple
  • Answering the Sadducees, Jesus cites the words “I am the God of Abraham, the God of Isaac, and the God of Jacob” and says that God is not the God of the dead but of the living. A Bible dictionary calls Abraham, son of Terah, father of a multitude; describes Isaac as the only son of Abraham by Sarah and the longest-lived of the three patriarchs; and identifies Jacob, also called Israel, as the younger of the twin sons of Isaac and Rebekah.Sources: the Bible text itself · Abraham · Isaac · Jacob (Israel)
  • Asked whose son the Christ is, the Pharisees answer that he is David’s. A dictionary entry glosses David as Beloved and identifies him as the eighth and youngest son of Jesse, a citizen of Bethlehem. Jesus then asks how David, speaking in the Spirit, can call the Christ Lord, and no one is able to answer.Sources: the Bible text itself · David

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.