Luke 14
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
1Svo bar við á helgidegi er Jesús var gestur á heimili eins höfðingja faríseanna, að þeir höfðu gætur á honum, því að þeir vildu vita hvort hann læknaði mann sem þar var og þjáðist af vatnssótt.
3Jesús sneri sér þá að faríseunum og lögvitringunum og spurði: „Stendur það í lögunum að óheimilt sé að lækna á helgidegi?“
4Farísearnir svöruðu engu orði. Þá snerti Jesús veika manninn, læknaði hann og lét hann fara.
5Síðan sneri hann sér að viðstöddum og sagði: „Segið mér, vinnur enginn ykkar handtak á helgidögum? Segjum svo að kýrin ykkar félli í skurð á helgidegi, hvað mynduð þið gera? Láta hana eiga sig?“
6En þeir voru orðlausir og gátu engu svarað.
Sækist ekki eftir metorðum
7Þegar hann veitti því athygli að gestirnir reyndu allir að ná sér í virðulegustu sætin, sagði hann: 8„Reynið ekki að ná í heiðurssætin í brúðkaupsveislunum! Ef að einhver háttsettari en þú kæmi á eftir þér, 9þá mundi húsbóndinn leiða hann þangað sem þú sætir og segja við þig: „Leyfðu þessum manni að sitja hér.“ Þú yrðir þér til skammar og yrðir að færa þig í autt sæti við neðsta borðið!
10Sestu heldur fyrst við neðsta borðið og þegar húsbóndinn tekur eftir þér þar, mun hann koma og segja við þig: „Kæri vinur, komdu, við tókum miklu betra sæti frá handa þér.“ Þannig mun þér verða sýnd virðing frammi fyrir öllum gestunum. 11Sá sem upphefur sjálfan sig, mun niðurlægjast, en sá sem lítillækkar sig, hlýtur upphefð.“ 12Síðan sneri hann sér að húsráðanda og sagði: „Þegar þú býður til veislu, skaltu ekki bjóða vinum þínum, ættingjum eða ríkum nágrönnum, því að þeir munu allir endurgjalda boðið. 13Bjóddu heldur fátækum, bækluðum, lömuðum og blindum. 14Og í upprisu hinna trúuðu, mun Guð launa þér fyrir að bjóða þeim sem ekki gátu endurgoldið.“
15Þá sagði einn viðstaddra: „Það eru mikil forréttindi að fá að komast inn í guðsríki.“
16Jesús sagði honum þá þessa dæmisögu: „Maður nokkur undirbjó mikla veislu og bauð mörgum. 17Þegar allt var tilbúið sendi hann þjóna sína til að minna boðsgestina á að nú væri stundin komin. 18En þá fóru allir að afsaka sig. Einn sagði: „Ég er nýbúinn að kaupa jörð og þarf að fara og líta á hana. Ég bið þig að hafa mig afsakaðan.“ 19Annar sagðist hafa verið að kaupa tíu uxa og nú langaði hann til að reyna þá. 20Sá þriðji var nýgiftur og gat því ekki komið.
21Þjónninn sneri þá heim og flutti húsbónda sínum svörin. Þá reiddist húsbóndinn, sagði honum að fara strax út á götur og torg borgarinnar og bjóða betlurum, fötluðum, lömuðum og blindum að koma. 22Það var gert en samt var hægt að bæta við fleirum. 23Þá sagði húsbóndinn við þjóninn: „Farðu nú á göturnar sem liggja út úr bænum og líttu bak við limgerðin og hvettu alla sem þú finnur til að koma, svo að hús mitt verði fullt. 24Enginn þeirra sem ég bauð í fyrstu skal fá að smakka á því sem ég ætlaði þeim.“ “
25Mikill mannfjöldi fylgdi Jesú. Hann sneri sér að fólkinu og ávarpaði það: 26„Sá sem vill fylgja mér, verður að elska mig meira en föður sinn og móður, meira en konu sína og börn, bræður eða systur. Já, meira en sitt eigið líf, annars getur hann ekki verið lærisveinn minn. 27Enginn getur verið lærisveinn minn nema hann beri sinn eigin kross og fylgi mér eftir.
28En takið þó ekki ákvörðun um að fylgja mér, fyrr en þið hafið gert ykkur grein fyrir hvað það kostar ykkur. Hver haldið þið að byrji á húsbyggingu án þess að reikna fyrst út kostnaðinn, til að sjá hvort hann hafi nægilegt fé? 29Ef hann gerði það ekki, gæti svo farið að hann yrði peningalaus þegar grunnurinn væri búinn. Þá myndu menn gera gys að honum 30og segja: „Þarna er maðurinn sem fór að byggja en gat ekki lokið við það vegna peningaleysis.“
31Og hvaða konungur haldið þið að léti sig dreyma um að fara í stríð án þess að setjast fyrst niður, ásamt ráðgjöfum sínum, til að ræða um hvort hann geti yfirbugað 20.000 manna óvinalið með 10.000 mönnum? 32Ef niðurstaðan yrði neikvæð, mundi hann senda samninganefnd til óvinanna til að ræða friðarskilmála.
33Af þessu sjáið þið að enginn getur orðið lærisveinn minn nema hann vilji hafna öllu öðru mín vegna.
34Hvaða gagn er í salti sem misst hefur seltuna? 35Bragðlaust salt er einskis virði, það dugar ekki einu sinni í áburð. Það er ónýtt og til þess eins að fleygja því. Ef þið skiljið þetta, þá hugleiðið það vel.“

Did you know?
Sabbath healing, banquets, and costly discipleship
- An event record titles this episode “Teaching and Healing in Perea to Jerusalem,” with a start in AD 30 and a duration of one day. The chapter opens at a Sabbath meal and later shows large crowds traveling with Jesus as he speaks of carrying a cross, counting the cost, and giving up everything in order to be his disciple.Sources: Teaching and Healing in Perea to Jerusalem · the Bible text itself
- On a Sabbath, Jesus went to eat in the home of a leading Pharisee while those present watched him closely. A man with dropsy was right there before him; Jesus asked the experts in the law and the Pharisees whether it was lawful to heal on the Sabbath, and when they remained silent he healed the man and compared the act to pulling a son or an ox out of a pit on that same day.Sources: the Bible text itself
- Noticing that the guests chose the places of honor, Jesus told a parable about seating at a wedding banquet and urged his host to invite the poor, the crippled, the lame, and the blind, who could not repay him. When someone there blessed those who would eat at the feast in the kingdom of God, Jesus described a great banquet whose invited guests excused themselves—one to see a field, one to try five yoke of oxen, and one because he had married—so the master sent his servant into the streets and alleys and then to the highways and hedges.Sources: the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org