Luke 13
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Dyr himinsins eru þröngar
1Um þetta leyti frétti Jesús að Pílatus hefði látið drepa nokkra Galíleumenn, sem voru að bera fram fórnir í musterinu í Jerúsalem.
2„Haldið þið að þeir hafi verið meiri syndarar en Galíleumenn almennt?“ spurði hann. „Er það ástæðan fyrir þjáningum þeirra? 3Nei, alls ekki! Skiljið þið ekki að sjálfir munuð þið farast, nema þið snúið ykkur frá syndinni og til Guðs?
4Hvað um mennina átján, sem dóu þegar Sílóamturninn hrundi? Voru þeir verstu syndarar í Jerúsalem? 5Nei, hreint ekki! Og þið munuð sjálfir týna lífi og glatast, ef þið gerið ekki iðrun.“
6Því næst sagði Jesús þeim þessa dæmisögu: „Maður nokkur gróðursetti fíkjutré í garði sínum. Oft leitaði hann ávaxta á því, en sér til mikilla vonbrigða fann hann enga. 7Að lokum skipaði hann garðyrkjumanni sínum að höggva tréð upp. „Ég hef beðið í þrjú ár og það hefur ekki borið eina einustu fíkju,“ sagði hann. „Til hvers er að standa í þessu lengur? Það er bara fyrir.“
8„Gefum því enn eitt tækifæri,“ sagði garðyrkjumaðurinn. „Látum það standa eitt ár enn og við skulum hugsa sérstaklega vel um það og bera vel á. 9Ef við fáum fíkjur eftir árið, þá er allt í lagi. Ef það ber ekki ávöxt, þá fellum við það“.“
10Helgidag einn var Jesús að kenna í einu af samkomuhúsunum. 11Tók hann þá eftir konu sem var illa bækluð. Hún hafði verið krypplingur í átján ár og gat ekki rétt úr sér.
12Jesús kallaði hana til sín og sagði: „Kona, þú ert læknuð af sjúkdómi þínum.“ 13Og um leið og hann snerti hana rétti hún úr sér og lofaði Guð!
14En forstöðumaður samkomuhússins varð mjög reiður vegna þess að Jesús skyldi hafa læknað hana á helgidegi og hrópaði: „Við höfum sex daga til að vinna í viku hverri! Komið þá og látið lækna ykkur, en ekki á hvíldardögum.“
15„Hræsnarar,“ svaraði Jesús, „þið vinnið á helgidögum. Leysið þið ekki nautgripina af stalli til að brynna þeim jafnt á helgidögum sem aðra daga? 16Er þá rangt af mér að leysa þessa konu úr fjötrum, sem Satan hefur haldið henni í, í átján ár, aðeins vegna þess að það er hvíldardagur?“
17Óvinir hans urðu skömmustulegir við þessi orð, en fólkið gladdist vegna dásemdarverkanna sem hann vann.
18Jesús tók á ný að ræða við fólkið um guðsríki og spurði: „Hverju líkist guðsríki? Við hvað á ég að líkja því? 19Það er líkt örsmáu sinnepsfræi, sem sáð er í mold. Áður en langt um líður er það orðið að hávöxnum runna, þar sem fuglarnir byggja hreiður sín. 20Því má einnig líkja við ger sem hnoðað hefur verið saman við deig, svo það hverfur í deigið, en samt lyftir það öllu deiginu.“
22Eftir þetta lagði Jesús af stað til Jerúsalem og kom við í mörgum bæjum og þorpum á leiðinni.
23Eitt sinn var hann spurður þessarar spurningar: „Verða þeir fáir sem frelsast?“
24„Reynið að komast inn um þröngu dyrnar,“ svaraði Jesús, „því að margir munu reyna að komast þangað inn án árangurs, og þegar húsbóndinn hefur læst dyrunum verður það ekki lengur hægt. Ef þið standið þá fyrir utan, berjið og hrópið: „Drottinn, opnaðu fyrir okkur,“ mun hann svara: „Ég þekki ykkur ekki.“ 26„Já, en… við átum og drukkum með þér og þú kenndir í þorpinu okkar,“ segið þið. 27En ég svara: „Ég segi ykkur satt: Ég þekki ykkur ekki. Þið getið ekki komist hingað inn, því að þið eruð sekir. Burt með ykkur.“
28Þið munuð gráta og kveina þegar þið standið fyrir utan og sjáið Abraham, Ísak, Jakob og alla spámennina í guðsríki. 29Því þangað mun fólk streyma hvaðanæva, úr öllum heiminum, og taka þar sæti sín. 30Takið eftir: Sumir sem nú eru fyrirlitnir, munu þá hljóta heiður, en aðrir sem nú eru í hávegum hafðir, verða þá taldir sístir allra.“
31Í sama bili komu nokkrir farísear til hans og sögðu: „Ef þú vilt sleppa lifandi, komdu þér þá héðan sem fyrst, því Heródes konungur situr um líf þitt.“
32„Farið og segið þeim ref,“ svaraði Jesús, „að ég muni halda áfram að reka út illa anda og lækna í dag og á morgun, en þriðja daginn lýk ég mér af. 33Jafnframt þessu mun ég halda áfram ferð minni til Jerúsalem, því ekki hæfir að spámaður láti lífið annars staðar en þar.
34Ó, Jerúsalem, Jerúsalem! Borgin, sem líflætur spámennina og grýtir þá sem sendir eru henni til hjálpar. Oft hef ég viljað safna börnum þínum saman, rétt eins og hæna verndar unga sína undir vængjum sér, en þið hafið ekki viljað það. 35Hús ykkar skulu verða skilin eftir í eyði og þið munuð ekki sjá mig aftur fyrr en þið segið: „Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins.“ “

Did you know?
Repentance on the Way to Jerusalem
- Pontius Pilate was the sixth Roman procurator of Judea, from A.D. 26 to 36. His headquarters were at Caesarea, though he often went up to Jerusalem. Luke 13 opens with the report that he had mixed the blood of some Galileans with their sacrifices; Jesus replies that this does not show they were worse sinners than the other Galileans, and that unless his hearers repent they too will all perish.Sources: Pontius Pilate · the Bible text itself
- Jesus also asks whether the eighteen who were killed when the tower of Siloam collapsed were more sinful than all the others living in Jerusalem, and again says that unless his hearers repent they too will all perish. Siloam, meaning “sent” or “sending,” has been identified with the Birket Silwan in the lower Tyropoeon valley, southeast of the hill of Zion. Water reaches that pool intermittently through a winding underground channel from the Fountain of the Virgin, and John’s Gospel records that Jesus gave sight to a blind man there.Sources: Siloam · the Bible text itself
- While he travels through the towns and villages toward Jerusalem, Jesus laments the city that kills the prophets and stones those sent to her. It is described as a mountain city set on a stronghold; its name, in the dual form, means “possession of peace” or “foundation of peace,” probably referring to Zion and Moriah, the two mountains on which it was built, or, as some suppose, to the upper and lower city. He says he has often longed to gather its children as a hen gathers her chicks under her wings, and Easton's Bible Dictionary (1897) notes that this familiar bird is mentioned only in this lament and in Matthew 23:37.Sources: the Bible text itself · Jerusalem · Josiah
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Galilee · 32.760, 35.527 · verses 1, 2
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · verses 4, 22, 33, 34
- Siloam · Today: Pool of Siloam · 31.771, 35.235 · verse 4
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org