Acts 26
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
Páll ver mál sitt
1Þá sagði Agrippa við Pál: „Gjörðu svo vel. Segðu okkur nú sögu þína.“
Páll rétti fram höndina til kveðju og hóf varnarræðu sína:
2„Það er mér gleðiefni, Agrippa konungur, að fá að kynna þér mál mitt, 3því að ég veit að þú gjörþekkir lög og siði Gyðinga. Sýnið nú þolinmæði og hlustið á mig.
4Eins og Gyðingarnir vita, fékk ég gyðinglega uppfræðslu frá fyrstu bernsku í Tarsus en seinna meir í Jerúsalem og lifði ég lífi mínu í samræmi við hana. 5Þeim er líka fullljóst að ég var strangastur allra farísea í hlýðni við lög og siðvenjur þjóðar okkar. 6Ástæðan fyrir því að ég er lögsóttur, er sú von mín að Guð muni standa við loforðið sem hann gaf forfeðrum okkar. 7Það er loforðið sem allar tólf ættkvíslir Ísraelsmanna bíða eftir að verði uppfyllt. En konungur, nú segja þeir að með því hafi ég gerst afbrotamaður! 8Hvað er glæpsamlegt við að trúa upprisu dauðra? Finnst þér ótrúlegt að Guð geti reist menn frá dauðum?
9Ég leit svo á að mitt hlutverk væri að ofsækja fylgjendur Jesú frá Nasaret. 10Ég fékk leyfi hjá æðstu prestunum til að varpa mörgum hinna heilögu í Jerúsalem í fangelsi og samþykkti svo að þeir yrðu teknir af lífi. 11Ég notaði pyntingar til að neyða kristna menn, hvar sem þeir fundust, til að formæla Kristi. Slíkt æði hafði gripið mig að ég elti þá jafnvel til fjarlægra borga í öðrum löndum.
12Eitt sinn fór ég til Damaskus í slíkum erindagjörðum með sérstakt leyfi og umboð frá æðstu prestunum. 13Þá gerðist það einn daginn, um hádegisbilið, að ljós, bjartara en sólin, birtist á himninum og skein á mig og félaga mína. 14Við féllum allir til jarðar og ég heyrði rödd, sem sagði við mig á hebresku: „Sál, Sál, hví ofsækir þú mig? Það verður aðeins sjálfum þér til tjóns.“
15„Hver ert þú herra?“ spurði ég
Drottinn svaraði: „Ég er Jesús, sem þú ofsækir. 16En stattu upp! Ég hef birst þér til að útnefna þig þjón minn og vitni. Þú átt að segja heiminum frá þessari opinberun, og öðrum, sem þú munt fá í framtíðinni. 17Ég mun vernda þig bæði fyrir heiðingjunum og þinni eigin þjóð. Ég ætla að senda þig til heiðingjanna 18til þess að þeir sjái hið sanna ástand sitt, geri iðrun og lifi í ljósi Guðs en ekki í myrkri Satans. Þeir munu taka við fyrirgefningu syndanna og þeim arfi, sem Guð vill veita öllum, hvar sem þeir eru, fyrir trúna á mig.“
19Agrippa konungur, þessari himnesku sýn óhlýðnaðist ég ekki. 20Fyrst predikaði ég í Damaskus, síðan í Jerúsalem og um alla Júdeu og að lokum meðal heiðingjanna. Ég hvatti alla til að snúa sér frá syndinni og til Guðs og sanna afturhvarf sitt með því að ástunda góð verk. 21Fyrir að predika þetta, handtóku Gyðingarnir mig í musterinu og reyndu að drepa mig. 22En Guð verndaði mig, svo ég er enn á lífi og vitna um þetta fyrir háum og lágum. Í kenningu minni er ekkert sem ekki er frá Móse eða spámönnunum. 23Þeir sögðu að Kristur yrði að þjást og myndi rísa upp frá dauðum, fyrstur allra, til að verða ljós bæði Gyðingum og heiðingjum.“
24„Þú ert búinn að missa vitið, Páll!“ hrópaði Festus allt í einu. „Allur þessi bókalestur hefur gert þig ruglaðan!“
25„Ekki er ég vitskertur, göfugi Festus,“ svaraði Páll, „ég er með fullu viti og er aðeins að segja sannleikann. 26Agrippa konungur skilur þetta allt mætavel. Ég tala hreinskilnislega, því að ég er viss um að hann er þessu vel kunnugur, enda hafa þessir atburðir ekki gerst í leynum heldur fyrir allra augum. 27Agrippa konungur, trúir þú spámönnunum? Ég veit að þú gerir það…“
28Þá greip Agrippa fram í og sagði: „Heldurðu að ekki þurfi meira til að gera mig kristinn?“
29„Þess bið ég Guð,“ svaraði Páll, „að hvort sem rök mín eru veik eða sterk, þá mættir þú og aðrir, sem hér hlusta, verða eins og ég, að undanskildum hlekkjunum.“
30Þá stóð konungurinn upp ásamt landstjóranum, Berníke og öllum hinum og fór. 31Þegar þau ræddu málið eftir á, urðu þau sammála um að Páll hefði ekkert aðhafst, sem réttlætti dauðadóm eða fangelsisvist.
32Síðan sagði Agrippa við Festus: „Nú hefði verið hægt að sleppa honum, ef hann hefði ekki skotið málinu til keisarans.“

Did you know?
Paul's Defense before King Agrippa
- Easton's Bible Dictionary (1897) identifies the Agrippa of this hearing as Agrippa II, born in Rome in A.D. 27 and brother of Bernice and Drusilla. It records that the emperor Claudius made him superintendent of the Temple in Jerusalem in A.D. 48 and governor of Chalcis in A.D. 50, and later king over the tetrarchy of Philip and Lysanias. That background illuminates Paul's appeal to the king's familiarity with Jewish customs and controversies, and Bernice, Agrippa's sister, was present and rose with the king and the governor when the hearing ended.Sources: Agrippa · Bernice · the Bible text itself
- Festus, who had succeeded Felix as procurator of Judea, heard Paul at Caesarea in the presence of Herod Agrippa II and Bernice. He found nothing deserving death or imprisonment and would have released Paul, but Paul had appealed to Caesar, so Festus sent him to Rome.Sources: Portius Festus · the Bible text itself
- Paul tells Agrippa that about noon, on the road to Damascus, he saw a light from heaven, brighter than the sun, shining around him and his companions, and heard a voice in Hebrew calling him Saul. Damascus lies about 133 miles north of Jerusalem. Easton's Bible Dictionary (1897) says Saul was his Hebrew name and that the name Paul was probably also given to him in infancy for use in the Gentile world; he was a native of Tarsus, the capital of Cilicia, a Roman province in southeastern Asia Minor.Sources: Paul · Damascus · the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · verses 4, 10, 20
- Nazareth · 32.702, 35.298 · verse 9
- Damascus · 33.511, 36.306 · verses 12, 20
- Judea · Today: Judea 1 · 31.777, 35.234 · verse 20
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org