Acts 25
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
1Þrem dögum eftir að Festus kom til Sesareu, til að taka við embætti, fór hann til Jerúsalem. 2Þar náðu æðstu prestarnir og leiðtogar Gyðinga tali af honum og sögðu frá afskiptum sínum af Páli. 3Þeir báðu hann að koma strax með Pál til Jerúsalem. (Ætlun þeirra var að gera honum fyrirsát á leiðinni og drepa hann.)
4Festus svaraði að þar sem Páll væri í Sesareu og hann sjálfur á leið þangað, 5væri best að þeir, sem afskipti hefðu af málinu, yrðu honum samferða til réttarhaldanna.
Réttarhöldin gegn Páli
6Átta til tíu dögum síðar kom Festus til Sesareu og hófust réttarhöldin yfir Páli strax næsta dag.
7Þegar Páll var leiddur inn í réttarsalinn, hópuðust Gyðingarnir frá Jerúsalem umhverfis hann og báru á hann margar alvarlegar sakir, sem þeir gátu þó ekki sannað. 8Páll vísaði öllum þessum ásökunum á bug og sagði: „Ég er saklaus af öllu þessu. Hvorki hef ég brotið lög Gyðinga né vanhelgað musterið og því síður gert uppreisn gegn rómverskum yfirvöldum.“
9Festus, sem vildi þóknast Gyðingunum, spurði Pál: „Viltu fara til Jerúsalem og leyfa mér að taka upp málið þar?“
10„Nei,“ svaraði Páll. „Ég stend á rétti mínum og fer fram á að mál mitt verði rekið fyrir dómstóli keisarans. Þú veist vel að ég er saklaus. Hafi ég gert eitthvað, sem verðskuldar dauða, þá er ég reiðubúinn að deyja. En sé ég saklaus, þá hefur hvorki þú né nokkur annar rétt til að afhenda mig þessum mönnum, til þess að þeir geti drepið mig. Hér með áfrýja ég máli mínu til keisarans!“
12Festus ræddi málið við ráðgjafa sína og svaraði síðan: „Allt í lagi. Þú hefur skotið máli þínu til keisarans og til keisarans skaltu fara!“
13Skömmu síðar kom Agrippa konungur ásamt Berníke í nokkurra daga heimsókn til Festusar. 14Meðan þau dvöldust þar, ræddi Festus mál Páls við konunginn og sagði: „Hér hjá okkur er fangi sem á óútkljáð mál frá því Felix var hér. 15Þegar ég var í Jerúsalem sögðu æðstu prestarnir, og aðrir leiðtogar Gyðinga, mér álit sitt á málinu og heimtuðu að ég léti drepa hann. 16Að sjálfsögðu benti ég þeim strax á að samkvæmt rómverskum lögum væru menn ekki dæmdir til dauða fyrr en búið væri að rannsaka mál þeirra og þeir fengið að flytja vörn.
17Daginn eftir að þeir komu hingað tók ég málið fyrir og lét leiða Pál inn. 18Sakirnar, sem bornar voru á hann, reyndust vera allt aðrar en þær sem ég hafði búist við. 19Þær snerust allar um trúarbrögð þeirra og einhvern Jesú, sem var dáinn, en Páll hélt fram að væri lifandi. 20Ég var í stökustu vandræðum með hvernig ég ætti að dæma í málinu, svo ég spurði Pál hvort hann vildi ekki að málið yrði tekið fyrir í Jerúsalem, 21en þá áfrýjaði hann til keisarans. Ég skipaði því svo fyrir að hann yrði að vera í fangelsinu þangað til ég gæti komið honum til keisarans.“
22„Ég hefði gaman af að heyra í þessum manni,“ sagði Agrippa. „Það skaltu fá,“ svaraði Festus, „jafnvel strax á morgun.“
23Daginn eftir kom konungurinn ásamt Berníke til réttarins með mikilli viðhöfn. Í fylgd með honum voru foringjar úr hernum og æðstu embættismenn borgarinnar. Þá gaf Festus skipun um að Páll skyldi leiddur í salinn.
24Þegar allir voru komnir, tók Festus til máls og sagði: „Agrippa konungur og aðrir viðstaddir, þetta er maðurinn sem Gyðingar hér og í Jerúsalem heimta að verði tekinn af lífi. 25Ég lít svo á að hann hafi ekkert gert sem réttlæti dauðadóm. Nú hefur hann hins vegar skotið máli sínu til keisarans og á ég því engan annan kost en að senda hann þangað. 26Vandinn er hins vegar sá að ég veit ekki hvað ég á að skrifa keisaranum, því að engin kæra liggur frammi gegn manninum! Þess vegna hef ég leitt hann fyrir ykkur, og þó einkanlega þig, Agrippa konungur. Ég vil fá botn í málið, svo ég viti hvað ég á að skrifa. 27Það væri lítið vit í að senda fanga til keisarans án ákæru!“

Did you know?
Paul's Appeal to Caesar
- Caesarea, on the Mediterranean about seventy miles northwest of Jerusalem, was the capital of the Roman province of Judaea and the seat of the procurators. Herod the Great built it and named it after Caesar Augustus, and Festus sat on the judgment seat there; going up to Jerusalem and down to Caesarea follows the road between that coastal capital and the mountain city.Sources: Caesarea · Jerusalem · the Bible text itself
- Easton's Bible Dictionary (1897) identifies Festus as the procurator of Judea who succeeded Felix; a few weeks after Festus took office, the case of Paul, whom Felix had left in prison at Caesarea, was reported to him. The same dictionary says he found nothing worthy of death or bonds and would have set Paul free had Paul not appealed to Caesar; after the appeal, Festus conferred with his council and replied that Paul would go to Caesar.Sources: Portius Festus · Felix · the Bible text itself
- Agrippa II, born in Rome and brother of Bernice, was made superintendent of the Temple in Jerusalem by the emperor Claudius and later king over the tetrarchy of Philip and Lysanias. He and Bernice came down to Caesarea to pay their respects to Festus, who, at a loss over disputes about the Jews’ own religion and about a Jesus whom Paul affirmed to be alive, brought Paul before the king so he would have definite charges to write to the emperor.Sources: Agrippa · Bernice · the Bible text itself
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Caesarea · Today: Caesarea Maritima · 32.500, 34.892 · verses 1, 4, 6, 13, 24
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · verses 1, 3, 7, 9, 15, 20, 24
- Rome · 41.892, 12.485 · verses 25, 27
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org