Nations Bible

Acts 23

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.

1Páll hvessti augun á ráðið og sagði: „Bræður, ég hef alltaf kappkostað að hafa góða samvisku gagnvart Guði.“

2Ananías, æðsti presturinn, fyrirskipaði þá að Páll yrði þegar í stað sleginn á munninn.

3Þá sagði Páll: „Guð mun slá þig, þú kalkaði veggur. Hvers konar dómari ert þú? Þú brýtur sjálfur lögin með því að fyrirskipa að ég skuli sleginn?“

4Þeir sem næstir stóðu Páli, sögðu við hann: „Þú smánar, með þessum orðum, æðsta prest Guðs.“

5„Bræður, ekki var mér ljóst að hann væri æðsti prestur,“ svaraði Páll, „enda veit ég að í Biblíunni stendur: „Talaðu aldrei illa um yfirmann þjóðar þinnar“.“

6Allt í einu datt Páli nokkuð í hug. Annar hluti ráðsins var saddúkear en hinn farísear. Hann kallaði því: „Bræður, ég er farísei eins og forfeður mínir, en nú er ég fyrir rétti vegna vonarinnar um eilíft líf og trúar á upprisu dauðra.“

7Þar með klofnaði ráðið – farísear á móti saddúkeum. 8Saddúkear segja að hvorki sé til upprisa né englar og að ekki sé eilífur andi í manninum, en öllu þessu trúa farísearnir.

9Nú hófst mikil deila. Sumir leiðtoganna spruttu á fætur til að styðja orð Páls. „Við sjáum ekkert athugavert við hann!“ hrópuðu þeir. „Kannski hefur engill eða andi talað til hans þarna á veginum til Damaskus.“

10Hrópin og köllin urðu æ háværari. Menn þrifu í Pál frá báðum hliðum og toguðu hann á milli sín. Hersveitarforinginn óttaðist að þeir slitu hann í sundur. Hann skipaði því hermönnum sínum að taka hann af þeim með valdi og fara með hann aftur til kastalans.

11Um nóttina kom Drottinn til Páls og sagði: „Vertu ekki kvíðinn, Páll. Þú hefur vitnað um mig fyrir íbúum Jerúsalem og sama muntu gera í Róm.“

12Morguninn eftir, gerðu um fjörutíu Gyðingar samkomulag um að bragða hvorki vott né þurrt, fyrr en þeir hefðu komið Páli fyrir kattarnef. 14Síðan fóru þeir til æðstu prestanna og öldunganna og sögðu þeim frá fyrirætlun sinni. 15„Biðjið hersveitarforingjann að leiða Pál aftur fram fyrir ráðið,“ sögðu þeir, „og segið að þið ætlið að spyrja hann nokkurra viðbótarspurninga. Við munum svo drepa hann á leiðinni.“

16Systursonur Páls frétti um samsærið, fór upp í kastalann og lét Pál vita.

17Páll kallaði þá til eins liðsforingjans og sagði: „Farðu með þennan unga mann til hersveitarforingjans. Hann er með áríðandi skilaboð.“

18Liðsforinginn fór með hann til hersveitarforingjans og sagði: „Bandinginn Páll bað mig að fara með þennan unga mann til þín. Hann hefur víst eitthvað að segja þér.“

19Hersveitarforinginn tók í hönd drengsins, leiddi hann afsíðis og spurði: „Hvað ætlar þú að segja mér, vinur minn?“

20„Á morgun,“ svaraði drengurinn, „ætla Gyðingarnir að biðja þig að leiða Pál aftur fram fyrir ráðið, undir því yfirskyni að þeir vilji fá að spyrja hann enn frekar. 21En gerðu það ekki! Því rúmlega fjörutíu menn ætla að fela sig við veginn og stökkva á Pál og drepa hann. Þeir hafa lofað hver öðrum því að borða hvorki né drekka, fyrr en hann sé dauður. Þeir eru hérna fyrir utan núna og eru komnir til að fá samþykki þitt.“

22„Láttu ekki nokkurn lifandi mann vita að þú hafir sagt mér frá þessu,“ sagði hersveitarforinginn við drenginn um leið og hann lét hann fara. 23Síðan kallaði hann á tvo liðsforingja og gaf eftirfarandi fyrirmæli: „Hafið 200 hermenn reiðubúna til að fara til Sesareu klukkan níu í kvöld. Hafið einnig 200 menn vopnaða spjótum og 70 riddara. Hafið tilbúinn hest handa Páli, til þess að koma honum heilum á húfi til Felixar landstjóra.“

25Síðan skrifaði hann landstjóranum svohljóðandi bréf:

26„Frá: Kládíusi Lýsíasi.

Göfugi landstjóri, Felix!

Þennan mann handtóku Gyðingarnir. 27Þeir höfðu nærri því gert út af við hann, þegar ég sendi hermenn til að bjarga honum – en ég hafði komist að því að hann er rómverskur borgari. 28Síðan fór ég með hann fyrir æðsta ráðið til að komast að því hvað hann hefði gert. 29Ég komst fljótt að því að það snerist um eitthvað í trú þeirra – örugglega ekkert sem krefst fangelsunar eða dauðadóms. 30Þegar ég svo frétti af samsæri um að drepa hann, ákvað ég að senda hann til þín. Ég mun láta ákærendur hans vita að þeir verði að bera málið upp við þig.“

31Um nóttina fóru hermennirnir með Pál til Antípatris, eins og fyrir þá var lagt. 32Morguninn eftir sneru þeir aftur til kastalans, en skildu Pál eftir, ásamt riddaraliðinu, sem átti að fara með hann áfram til Sesareu. 33Þegar þeir komu til Sesareu kynntu þeir Pál fyrir landstjóranum og afhentu honum bréfið. 34Hann las það og spurði síðan Pál hvaðan hann væri.

„Frá Kilikíu,“ svaraði Páll.

„Þegar ákærendur þínir eru komnir, mun ég taka mál þitt fyrir,“ sagði landstjórinn. Síðan lét hann varpa honum í fangelsið í höll Heródesar.

Artistic illustration — an interpretation, not a historical record.

Did you know?

Paul before the Sanhedrin and the road to Caesarea

  • Ananias was the high priest before whom Paul was brought while Felix was procurator. After Paul said he had conducted himself before God in all good conscience, Ananias ordered those standing nearby to strike him on the mouth; Paul called him a whitewashed wall, and when they protested that he had insulted God's high priest, he answered that he had not known Ananias held that office. Easton's Bible Dictionary (1897) notes that this reply has occasioned some difficulty.Sources: Ananias (High Priest) · the Bible text itself
  • More than forty men bound themselves by an oath not to eat or drink until they had killed Paul, and soldiers took him by night from Jerusalem as far as Antipatris. Antipatris, built by Herod the Great and named in honor of his father Antipater, lay on the great Roman road from Caesarea to Jerusalem, about twenty-eight miles from Caesarea. Caesarea, on the Mediterranean shore about seventy miles northwest of Jerusalem, was the capital of the Roman province of Judea and the seat of the procurators.Sources: the Bible text itself · Antipatris · Caesarea
  • Claudius Lysias, described by Easton's Bible Dictionary as a Greek who had purchased Roman citizenship and taken the name Claudius, wrote to Governor Felix that the charges concerned questions of Jewish law and that there was no charge worthy of death or imprisonment. Felix, the Roman procurator of Judea, asked which province Paul was from; learning that he was from Cilicia, where Tarsus, Paul's birthplace, was one of the chief towns, he ordered that Paul be kept under guard in Herod's Praetorium until the accusers arrived.Sources: Claudius Lysias · Felix · Cilicia · the Bible text itself

Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.

Places in this chapter

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · verse 11
  • Rome · 41.892, 12.485 · verse 11
  • Caesarea · Today: Caesarea Maritima · 32.500, 34.892 · verses 23, 32, 33
  • Aphek · Today: Tell Ras el Ain · 32.105, 34.930 · verse 31
  • Cilicia · 36.913, 34.892 · verse 34

Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Talk to us

Tell us where you read from, how the Bible has helped you, or what we could improve. We read every message.