Acts 22
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Tap a verse to see its cross-references.
1„Kæru ættmenn,“ hóf hann mál sitt, „hlustið á málsvörn mína.“ 2(Þegar fólkið heyrði hann tala hebresku varð þögnin enn meiri.) 3„Ég er Gyðingur, fæddur í Tarsus, sem er borg í Kilikíu, en hér í Jerúsalem hlaut ég menntun mína. Ég var í skóla hjá Gamalíel og lærði þar að hlýða lögum og siðum okkar Gyðinga út í ystu æsar. Mér var umhugað að þóknast Guði í öllu sem ég gerði, rétt eins og þið í dag. 4Ég ofsótti kristna menn og elti þá uppi til að lífláta þá. Ég lét binda bæði karla og konur og varpa þeim í fangelsi. 5Æðsti presturinn, eða hver sem er úr ráðinu, getur staðfest það, því þeir gáfu mér skriflegt umboð til Gyðinganna í Damaskus, um að mér væri heimilt að taka þar alla kristna menn og færa í hlekkjum til Jerúsalem og láta refsa þeim þar.
6Þegar ég var á leiðinni og nálgaðist Damaskus, gerðist það skyndilega um hádegi að skært og bjart ljós skein á mig frá himni. 7Ég féll til jarðar og heyrði rödd segja við mig: „Sál, Sál, hvers vegna ofsækir þú mig?“
8„Hver ert þú herra?“ spurði ég. „Ég er Jesús frá Nasaret, sem þú ofsækir,“ svaraði röddin.
9Mennirnir, sem með mér voru, sáu ljósið, en skildu ekki það sem sagt var.
10„Drottinn, hvað á ég að gera?“ spurði ég þá. „Stattu á fætur,“ svarði Drottinn, „farðu inn í Damaskus og þar mun þér verða sagt hvað bíður þín.“ 11Ég hafði blindast af þessu skæra ljósi, svo ferðafélagar mínir urðu að leiða mig inn í Damaskus.
12Í borginni bjó maður sem hét Ananías. Hann var guðrækinn, fór nákvæmlega eftir lögum Gyðinga og var í miklum metum meðal Gyðinganna í borginni. 13Hann kom til mín og sagði: „Bróðir Sál, líttu upp! Þú hefur fengið sjónina!“ Og á sama andartaki fékk ég sjónina!
14Og síðan sagði hann við mig: „Guð feðra okkar hefur valið þig til að þekkja vilja sinn, sjá Krist og heyra hann tala. 15Þú átt að flytja öllum boðskap hans og segja frá því sem þú hefur séð og heyrt. 16Nú er ekki eftir neinu að bíða. Láttu skírast og hreinsast af syndum þínum og ákalla síðan nafn Drottins.“
17Daginn sem ég kom aftur til Jerúsalem var ég á bæn í musterinu. Þá varð ég frá mér numinn og sá Guð í sýn. Hann sagði: „Flýttu þér! Farðu burt frá Jerúsalem, því að íbúar hennar munu ekki trúa þér, þegar þú flytur þeim boðskap minn.“
19„Já, en Drottinn,“ sagði ég, „þeir vita þó örugglega að það var ég sem lét fangelsa þá, sem á þig trúa, og berja þá í samkomuhúsunum. 20Og þegar vottur þinn, Stefán, var drepinn, þá var það ég sem stóð þar hjá og gaf samþykki mitt. Ég gætti yfirhafna þeirra sem grýttu hann!“
21En Guð sagði: „Farðu burt frá Jerúsalem, því að ég ætla að senda þig annað – já alla leið til heiðingjanna!“ “
22Fram að þessu hafði mannfjöldinn hlustað með athygli á Pál, en þegar hann minntist á heiðingjana, hrópuðu þeir einum rómi: „Burt með slíkan mann! Drepið hann! Hann á ekki skilið að fá að lifa!“ 23Þeir æptu, köstuðu af sér yfirhöfnunum og þeyttu sandinum upp í loftið til merkis um reiði sína.
24Foringi hersveitarinnar lét þá leiða Pál inn og skipaði svo fyrir að hann yrði húðstrýktur til þess að fá hann til að játa glæp sinn. Hann vildi fá skýringu á æðinu sem runnið hafði á fólkið.
25Meðan verið var að binda Pál og búa hann undir svipuhöggin, sagði hann við liðsforingja sem þar stóð: „Hafið þið leyfi til að húðstrýkja rómverskan borgara, án þess að rannsaka mál hans?“
26Liðsforinginn gekk til hersveitarforingjans og spurði: „Veistu hvað þú ert að gera? Þessi maður er rómverskur borgari!“
27Foringi hersveitarinnar gekk þá til Páls og spurði: „Segðu mér, ert þú rómverskur borgari?“
„Já,“ svaraði Páll.
28„Ég líka,“ muldraði hersveitarforinginn, „og það kostaði mig ærið fé.“
„Ég er hins vegar fæddur með þeim rétti,“ sagði Páll.
29Þegar hermennirnir, sem þarna stóðu með reiddar svipurnar, heyrðu að Páll væri rómverskur borgari, laumuðust þeir í burtu og hersveitarforinginn varð sömuleiðis hræddur, því að það var hann sem hafði fyrirskipað að Páll skyldi bundinn og húðstrýktur.
Páll frammi fyrir ráðinu
30Daginn eftir lét hersveitarforinginn leysa fjötrana af Páli og fyrirskipaði æðstu prestunum að kalla saman Gyðingaráðið. Síðan lét hann leiða Pál fyrir ráðið til að reyna að útkljá þessa deilu.

Did you know?
Paul's Defense in Jerusalem
- Paul began his defense in Hebrew, and the crowd grew even quieter. He presented himself as a Jew born in Tarsus of Cilicia, raised in Jerusalem, and educated at the feet of Gamaliel in strict conformity to the law of the fathers. A dictionary entry describes Gamaliel as a learned Pharisee, grandson of the rabbi Hillel, and president of the Sanhedrin during the reigns of Tiberius, Caligula, and Claudius.Sources: the Bible text itself · Gamaliel
- Paul recalled imprisoning and beating believers, and standing by in approval while he watched over the garments of those who killed Stephen. A dictionary entry calls Stephen, one of the seven deacons, the first Christian martyr, and notes that the stoners laid their clothes at the feet of the young Pharisee Saul of Tarsus, a scene that left a deep impression which Paul recalls in this speech.Sources: the Bible text itself · Stephen
- The crowd listened until Paul said he would be sent far away to the Gentiles; then they shouted that he was not fit to live, threw off their cloaks, and tossed dust into the air. As they stretched him out to strap him down, he asked the centurion whether it was lawful to flog a Roman citizen without a trial, and told the commander that he had been born a citizen, while the commander had paid a high price for his. A chronology dates this testimony, and his appearance before the Council the next day, to AD 54.Sources: the Bible text itself · Paul gives his testimony · Paul goes before the Council
Notes written with AI assistance from open sources (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, public domain) and reviewed before publishing.
Places in this chapter
- Cilicia · 36.913, 34.892 · verse 3
- Jerusalem · 31.777, 35.234 · verses 3, 5, 17, 18
- Tarsus · 36.913, 34.892 · verse 3
- Damascus · 33.511, 36.306 · verses 5, 6, 10, 11, 12
- Nazareth · 32.702, 35.298 · verse 8
Only places identified with high confidence are shown (90% or more according to the scholarly sources compiled by OpenBible). Period map: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; modern map: © OpenStreetMap contributors; places: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Credits and license for this translation
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Source: http://ebible.org/isl/ · eBible.org