Nations Bible

Marcos 5

316-biblían · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

1Loks komu þeir í land hinum megin við vatnið, í landi Gerasenanna. 2Þegar Jesús steig frá borði mætti honum maður sem var haldinn óhreinum anda. 3Þessi maður dvaldi í grafreit – sama hvað fólk reyndi að gera til að binda hann fastan 4sleit hann alltaf af sér alla fjötra og keðjur, og enginn réði við hann. 5Hann ráfaði um í fjöllunum og grafreitnum dag og nótt, grét og barði sig með steinum. 6En þegar hann sá Jesú úr fjarska hljóp hann til hans með miklum látum. 7„Hvað vilt þú mér, Jesús, sonur hins hæsta Guðs?“ hrópaði hann. „Í guðanna bænum, láttu mig vera!“ 8„Farðu út úr þessum manni, óhreini andi!“ svaraði Jesús honum. 9„Hvað heitir þú?“ spurði hann andann. „Ég heiti Fjöldi,“ svaraði andinn, „því við erum margir. 10Ekki reka okkur héðan burt, ég bið þig! 11Í fjöllunum héðan skammt frá er stór svínahjörð á beit. 12Sendu okkur frekar til svínanna, og við förum í þau í staðinn.“ 13Þetta leyfði Jesús, og óhreinu andarnir færðu sig úr manninum og yfir í svínin. Síðan hljóp öll svínahjörðin af stað fram af kletti, svo öll svínin (um tvö þúsund talsins) drukknuðu. 14Svínahirðarnir hlupu og sögðu frá því sem þeir höfðu séð um allt svæðið, og fólk kom hvaðanæva að til að sjá það sem hafði gerst. 15Það kom og sá bæði Jesú og manninn sem hafði verið andsetinn (sem var nú kominn í föt og orðinn alveg eðlilegur), og það varð hrætt. 16Þeir sem höfðu orðið vitni að því sem gerðist sögðu fólkinu alla söguna af andsetna manninum og svínunum 17og fólkið bað Jesú um að yfirgefa svæðið. 18Þegar Jesús steig um borð í bátinn bað maðurinn sem hafði verið andsetinn um að fá að koma með honum. 19„Nei,“ sagði Jesús. „Farðu frekar heim til vina þinna og fjölskyldu og segðu þeim hvað Drottinn hefur gert fyrir þig og hvernig hann hefur sýnt þér miskunn.“ 20Og maðurinn fór því af stað, ferðaðist um Dekapólissvæðið og sagði frá öllu því stórkostlega sem Jesús hafði gert fyrir hann.

21Þegar Jesús hafði siglt til baka yfir vatnið safnaðist mikill mannfjöldi í kringum hann við ströndina. 22Þeirra á meðal var einn af samkomuhússtjórunum, maður sem hét Jaírus. Þegar hann sá Jesú féll hann á kné fyrir framan hann. 23„Litla dóttir mín er fárveik og er við dauðans dyr,“ hrópaði hann. „Komdu með mér, gerðu það, og bjargaðu lífi hennar með því að snerta hana.“ 24Jesús fór af stað með honum, og mannfjöldinn fylgdi þeim. 25En í mannfjöldanum var líka kona sem hafði þjáðst af stöðugum blæðingum í tólf ár. 26Hún hafði eytt aleigunni í ótal erfiðar læknismeðferðir, án nokkurs árangurs – henni hafði bara versnað. 27Hún hafði heyrt um Jesú og barðist þess vegna að honum í gegnum mannfjöldann og snerti föt hans. 28„Ef ég næ bara að snerta fötin hans,“ hugsaði hún með sér, „hlýtur mér að batna.“ 29Um leið og hún snerti hann hættu blæðingarnar, og hún fann að hún hafði læknast. 30Við þetta fann Jesús að kraftur hafði runnið frá honum. Hann sneri sér við. „Hver snerti fötin mín?“ spurði hann. 31„Það er fólk allt í kringum okkur,“ sögðu lærisveinarnir. „Hvernig geturðu spurt hver hafi snert þig?“ 32En hann leit í kringum sig og kom auga á konuna sem hafði snert hann. 33Konan skalf af hræðslu, því hún vissi hvað hafði gerst. Hún féll á kné fyrir framan Jesú og sagði honum alla söguna. 34„Kæra dóttir,“ sagði hann við hana, „Það er trúin þín sem hefur bjargað þér. Þetta er allt í lagi. Farðu nú og njóttu heilsunnar.“

35Meðan hann var að tala við konuna kom fólk frá húsi samkomuhússtjórans. „Dóttir þín er látin,“ sagði það honum. „Þú þarft víst ekki að ónáða kennarann lengur.“ 36En Jesús heyrði þetta. „Óttastu ekki,“ sagði hann við samkomuhússtjórann, „heldur hafðu trú.“ 37Og hann hélt einn áfram með Pétri og bræðrunum Jakobi og Jóhannesi 38að heimili samkomuhússtjórans, þar sem allir voru harmi slegnir yfir andláti litlu stelpunnar, og steig inn. 39„Hvaða sorgarlæti eru þetta?“ sagði hann. „Stelpan er ekki dáin – hún sefur bara.“ 40Fólkið hæddist að Jesú þegar það heyrði þetta. En hann skipaði öllum að fara út, og fór inn til litlu stelpunnar með föður hennar og móður. 41Hann tók í hönd hennar og sagði við hana „Talíþa kúmí,“ sem þýðir „Vaknaðu, litla stúlka.“ 42Við það vaknaði þessi tólf ára stelpa og stóð á fætur. Fólkið trúði ekki sínum eigin augum. 43Jesús skipaði þeim að segja engum frá þessu, og sagði þeim að gefa stelpunni eitthvað að borða.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

Restauração nas duas margens do mar

  • Marcos diz que desembarcaram na região dos gerasenos, e o homem liberto anunciou então por toda a Decápolis quanto Jesus tinha feito por ele. A Decápolis era um distrito de dez cidades a leste e sudeste do Mar da Galileia, habitado sobretudo por gregos, e Gadara era uma delas. Um título de fonte também chama o episódio de endemoninhados gadarenos, um nome de lugar diferente dos gerasenos de Marcos.Fontes: o próprio texto bíblico · Decapolis · Gadarene Demoniacs
  • Na outra margem, um chefe da sinagoga chamado Jairo suplicou a Jesus que fosse até sua filhinha. O Easton's Bible Dictionary (1897) o identifica como dirigente da sinagoga de Cafarnaum, cuja única filha Jesus restituiu à vida. Marcos registra “Talitha koum”, explicado como “Menina, eu te digo: levanta-te!”; o dicionário cita “Talitha cumi”, “Moça, levanta-te”, e diz que Jesus mandou dar-lhe comida para fortalecê-la e mostrar que não era um fantasma, mas que havia voltado à vida comum.Fontes: o próprio texto bíblico · Jairus
  • Jesus permitiu que apenas Pedro, Tiago e João entrassem com o pai e a mãe da menina. O Easton's Bible Dictionary (1897) descreve Tiago como pescador, filho de Zebedeu e irmão mais velho de João, em sociedade com Pedro, e observa que ele estava presente quando Jesus levantou a filha de Jairo.Fontes: o próprio texto bíblico · James (Son of Zebedee)

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Gerasa · Hoje: Jerash · 32.272, 35.891 · versículo 1
  • Decapolis · 32.717, 35.800 · versículo 20

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Fonte: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.