Nations Bible

Marcos 15

316-biblían · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

1Strax næsta morgun funduðu æðstuprestarnir með öldungunum, lögmálskennurunum og öllu æðstaráðinu. Þeir bundu Jesú og fóru með hann til Pílatusar. 2„Ert þú konungur Gyðinganna?“ spurði Pílatus. „Það segir þú að ég sé,“ svaraði Jesús. 3Æðstuprestarnir ásökuðu Jesú um fjölmargt en hann svaraði þeim engu. 4„Ætlarðu ekki að segja neitt?“ spurði Pílatus hann aftur. „Heyrirðu ekki allt sem þeir eru að ásaka þig um?“ 5En Jesús svaraði enn engu, sem Pílatusi fannst stórmerkilegt.

6Á hátíðinni var Pílatus vanur að sleppa einum fanga sem fólkið vildi fá lausan. 7Í fangelsinu var maður sem hét Barabbas, uppreisnarmaður sem hafði framið morð í uppreisninni. 8Mannfjöldinn byrjaði að hrópa og kalla á Pílatus að sleppa fanga lausum eins og hann hefði alltaf gert. 9„Viljið þið kannski að ég sleppi konungi Gyðinganna?“ spurði Pílatus fólkið. 10Hann vissi nefnilega að æðstuprestarnir höfðu bara handtekið Jesú vegna þess að þeir öfunduðu hann. 11En æðstuprestarnir æstu fólkið upp í að hrópa að það vildi frekar fá Barabbas. 12„Hvað viljið þið þá að ég geri við þennan mann sem þið kallið konung Gyðinganna?“ spurði Pílatus. 13„Krossfestu hann!“ hrópaði fólkið. 14„Af hverju?“ spurði Pílatus á móti. „Hvað hefur hann eiginlega gert af sér?“ En fólkið hrópaði bara enn hærra: „Krossfestu hann!“ 15Pílatus vildi halda fólkinu góðu og sleppti þess vegna Barabbasi lausum. En hann lét hýða Jesú og senda hann síðan til krossfestingar.

16Hermennirnir leiddu hann burt og í hallarsalinn sem var kallaður „pretorium“. Þangað kölluðu þeir alla hersveitina. 17Þeir klæddu Jesú í fjólubláa skikkju, fléttuðu kórónu úr þyrnum, settu hana á höfuðið á honum 18og byrjuðu síðan að hylla hann sem konung Gyðinganna. 19Þeir slógu hann í höfuðið með staf, hræktu á hann og krupu síðan og þóttust tilbiðja hann. 20Þegar þeir voru búnir að hæðast að honum tóku þeir af honum fjólubláu skikkjuna, klæddu hann aftur í sín eigin föt og leiddu hann síðan út til krossfestingarinnar.

21Á leiðinni létu þeir mann sem þeir sáu bera krossinn. Þessi maður hét Símon og var Kýreningur sem var á leiðinni heim úr sveitinni – hann var faðir Alexanders og Rúfusar. 22Þeir fóru með Jesú til Golgota, sem þýðir „Hauskúpustaðurinn“. 23Þeir reyndu að gefa honum vín blandað með myrru, en hann neitaði að drekka það. 24Þegar þeir voru búnir að krossfesta hann tóku þeir fötin hans og köstuðu upp á það hver þeirra fengi hvað. 25Klukkan var um níu að morgni þegar þeir krossfestu Jesú. 26Það sem hann var ásakaður um var skrifað fyrir ofan hann: „Konungur Gyðinganna“. 27Þeir krossfestu líka tvo þjófa með honum, sinn hvorum megin við hann. 28Þar með rættist það sem stóð í ritningunni, að hann yrði flokkaður með afbrotamönnum. 29Fólkið sem fór þar framhjá hristi höfuðið. „Ætlaðir þú ekki að eyða musterinu á þremur dögum og reisa það svo aftur?“ hrópaði það til hans. 30„Geturðu þá ekki bjargað sjálfum þér niður af krossinum?“ 31Æðstuprestarnir hæddust að honum sín á milli. „Hann bjargaði öðrum,“ sögðu þeir við lögmálskennarana, „en getur ekki bjargað sjálfum sér! 32Nú ætti Kristur, hinn útvaldi konungur Ísraels, að stíga niður af krossinum, svo við sjáum hver hann er og trúum á hann.“ Meira að segja þeir sem voru krossfestir með honum bölvuðu honum.

33Um hádegi varð skyndilega aldimmt í öllu landinu til klukkan þrjú. 34Þá kallaði Jesús hátt: „Eloi, eloi, lama sabaktaní?“ sem þýðir „Guð minn, Guð minn, af hverju hefurðu yfirgefið mig?“ 35Sumum þeirra sem heyrðu þetta heyrðist hann segja „Elía“. „Hann er að kalla á Elía,“ sögðu þeir. 36Einn þeirra hljóp og fyllti svamp með ediki, setti hann á stöng og rétti hann upp svo Jesús gæti drukkið úr honum. „Sjáum hvort Elía kemur og bjargar honum niður af krossinum,“ sagði hann. 37Síðan hrópaði Jesús hátt og andaðist. 38Á þeirri stundu rifnaði fortjaldið í musterinu lóðrétt í tvennt. 39Þegar hermaðurinn sem hafði staðið vörð um Jesú heyrði hvernig hann hrópaði og sá að hann hafði andast sagði hann: „Þessi maður var svo sannarlega sonur Guðs.“

40Nokkrar konur stóðu og horfðu á úr fjarlægð, meðal annars María Magdalena, María móðir Jakobs yngri og Jóse, og Salóme. 41Þær byrjuðu að fylgja Jesú þegar hann var í Galíleu og höfðu þjónað honum. Með þeim voru margar konur sem höfðu komið með Jesú til Jerúsalem.

42Það leið á kvöldið – það var undirbúningsdagur hvíldardagsins. 43Jósef af Arímateu, virtur meðlimur í æðstaráðinu sem trúði á væntanlega komu konungsríkis Guðs, fór þá til Pílatusar og bað um að fá að taka lík Jesú. 44Pílatus var hissa að heyra að Jesús væri strax dáinn. Hann kallaði til sín hermanninn og spurði hversu langt væri síðan Jesús hefði dáið. 45Þegar hermaðurinn hafði staðfest að Jesús væri dáinn leyfði hann Jósef að taka líkið. 46Jósef fór og keypti línklæði og vafði lík Jesú í þau. Síðan lagði hann Jesú í gröf sem var höggvin í klett og velti steini fyrir opið á gröfinni. 47Og María Magdalena og María móðir Jóse sáu hvar gröf Jesú var.

Você sabia?

Julgamento, crucificação e sepultamento

  • Segundo o Easton's Bible Dictionary (1897), Pôncio Pilatos foi procurador romano da Judeia de 26 a 36 d.C., com sede em Cesareia, embora muitas vezes subisse a Jerusalém. Na festa, era costume dele soltar um preso escolhido pelo povo. Barrabás, nome que significa “filho de Abba” ou “filho de um pai”, era um ladrão notório, preso com rebeldes que haviam cometido assassinato durante uma insurreição, e a multidão exigiu que ele fosse solto em lugar de Jesus.Fontes: Pontius Pilate · Barabbas · o próprio texto bíblico
  • Levaram Jesus a um lugar chamado Gólgota, que Marcos explica como o Lugar da Caveira. O nome representa em letras gregas a palavra aramaica Gulgaltha, o hebraico gulgoleth, que significa “caveira”, e é o mesmo lugar conhecido como Calvário. Era um pequeno outeiro arredondado como uma caveira nua, um ponto bem conhecido fora da porta e perto da cidade.Fontes: Golgotha · o próprio texto bíblico
  • Na hora nona, Jesus clamou: “Eloi, Eloi, lema sabachthani?”, que Marcos explica como “Meu Deus, Meu Deus, por que me desamparaste?”. Alguns que estavam por perto pensaram que ele chamava Elias, o profeta tisbita, e alguém sugeriu que esperassem para ver se Elias viria tirá-lo dali.Fontes: o próprio texto bíblico · Elijah

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Cyrene · 32.821, 21.851 · versículo 21
  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 41
  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículo 41

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Fonte: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.