Nations Bible

Marcos 11

316-biblían · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

1Þegar þeir voru komnir nálægt Jerúsalem, til Betfage og Betaníu við Ólífufjallið, sendi Jesús tvo lærisveina sína af stað. 2„Farið til þorpsins sem þið sjáið þarna,“ sagði hann þeim. „Þar finnið þið asna sem er bundinn og enginn hefur áður farið á bak. Leysið hann og komið með hann hingað. 3Ef einhver spyr ykkur hvað þið séuð að gera skuluð þið segja að meistarinn þurfi asnann, og þá fáið þið að koma með hann hingað.“ 4Þeir fóru inn í þorpið, fundu asnann bundinn við dyr við götuna, og leystu hann. 5Nokkrir þorpsbúanna fylgdust með þeim. „Hvað eruð þið að gera við asnann?“ spurðu þeir. 6Þeir svöruðu eins og Jesús hafði sagt þeim að svara, og þorpsbúarnir leyfðu þeim þá að fara leiðar sinnar með asnann. 7Þeir komu með asnann til Jesú, breiddu skikkjurnar sínar yfir hann, og Jesús fór á bak honum. 8Margt fólk lagði skikkjurnar sínar á veginn þegar Jesús fór framhjá – aðrir hjuggu greinar af trjánum og lögðu þær á veginn. 9Fólkið sem flykktist á undan og eftir Jesú eftir veginum hrópaði „Hósanna! Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins! 10Blessað sé konungsríki Davíðs, forföður okkar, sem kemur í nafni Drottins! Hósanna og aftur hósanna!“

11Jesús kom til Jerúsalem og fór beint í musterið að skoða sig um. En þar sem það var komið kvöld fór hann síðan aftur út úr borginni og til Betaníu með lærisveinum sínum tólf.

12Daginn eftir, þegar þeir voru á leið frá Betaníu og aftur til borgarinnar, var Jesús svangur. 13Hann sá í fjarska fíkjutré með laufum, og fór að athuga hvort það væru einhverjar fíkjur á trénu. En þegar hann kom að trénu sá hann að það var ekkert á því nema lauf, þar sem það var ekki rétt árstíð til að finna fíkjur á trjánum. 14„Héðan í frá skal enginn borða ávexti af þér framar,“ heyrðu lærisveinar Jesú að hann sagði við fíkjutréð. 15Þegar þeir komu til Jerúsalem fór Jesús í musterið. Þar byrjaði hann að henda út þeim sem stunduðu viðskipti í musterinu, hrinti um koll borðum gjaldeyrisvíxlaranna og stólum dúfnasalanna 16og rak út þá sem báru hluti inn og út úr musterinu. 17„Vitið þið ekki hvað stendur í ritningunni?“ kallaði hann til fólksins. „Þar stendur: „Hús mitt á að vera bænahús fyrir fólk af öllum þjóðum“, en þið farið með það eins og það sé ræningjabæli!“ 18Þegar lögmálskennararnir og æðstuprestarnir heyrðu þetta urðu þeir hræddir við hann, því fólkið hlustaði greinilega á hann, og byrjuðu að ræða sín á milli hvernig þeir gætu losnað við hann. 19Um kvöldið fór Jesús aftur út úr borginni.

20Næsta morgun fóru þeir aftur framhjá fíkjutrénu og sáu að það hafði skrælnað alveg niður að rótum. 21Pétur mundi það sem hafði gerst morguninn áður. „Sjáðu, kennari,“ sagði hann. „Fíkjutréð sem þú bölvaðir er skrælnað!“ 22„Trúin skiptir öllu máli,“ svaraði Jesús. 23„Muniði þetta: Sá sem segir fjalli að rífa sig upp með rótum og kasta sér í hafið, ef hann efast ekkert heldur trúir því af öllu hjarta að það sem hann segir muni gerast, mun það gerast. 24Það sem ég er að segja er að þið verðið að trúa að þið fáið það sem þið biðjið um, og þá fáið þið það. 25Ef þið eruð að biðja og munið allt í einu að þið eruð ósáttir við einhvern skuluð þið fyrirgefa honum. Þannig fyrirgefur Faðir ykkar á himnum það sem þið hafið gert rangt. 26En ef þið fyrirgefið ekki öðrum sjálfir fyrirgefur Faðir ykkar á himnum ykkur heldur ekki fyrir það sem þið hafið gert rangt.“

27Þegar þeir komu aftur til Jerúsalem og Jesús gekk inn í musterið komu æðstuprestarnir, lögmálskennararnir og öldungarnir þar til hans. 28„Hvaða vald þykist þú hafa til að gera þetta?“ spurði þeir hann. „Hver gaf þér vald til þess?“ 29„Ég er með eina spurningu fyrir ykkur,“ svaraði Jesús. „Leyfið mér að spyrja hennar, og svarið henni, og svo skal ég segja ykkur hvaða vald ég hef til að gera þetta. 30Skírn Jóhannesar – kom hún að ofan eða frá mönnum? Segið mér það.“ 31Æðstuprestarnir, lögmálskennararnir og öldungarnir ræddu þetta sín á milli. „Ef við segjum „að ofan“,“ sögðu þeir, „spyr hann af hverju við trúum honum þá ekki. 32En ef við segjum „frá mönnum“ bregst fólkið illa við, því það trúir því að Jóhannes hafi verið raunverulegur spámaður.“ 33Að lokum sneru þeir sér þess vegna aftur að Jesú og sögðu: „Við getum ekki svarað þessari spurningu.“ „Nú,“ svaraði Jesús, „þá get ég heldur ekki sagt ykkur hvaðan ég fæ valdið til að gera það sem ég geri.“

Você sabia?

A entrada em Jerusalém

  • Este capítulo começa quando Jesus e seus discípulos se aproximam de Jerusalém e chegam a Betfagé e Betânia, no monte das Oliveiras. Betânia era uma aldeia na encosta sudeste, cerca de duas milhas a leste de Jerusalém, no caminho para Jericó, e seu nome vinha da quantidade de palmeiras que ali cresciam; Betfagé, muito perto, era o limite de uma jornada de sábado a partir da cidade, 2.000 côvados. O monte das Oliveiras recebe o nome das oliveiras que revestem suas encostas: uma serra a leste de Jerusalém, separada dela pelo vale do Cedrom.Fontes: o próprio texto bíblico · Bethany · Bethphage · Mount of Olives
  • O nome Betfagé significa “casa do figo imaturo”. No dia seguinte, depois de saírem de Betânia, Jesus estava com fome e foi até uma figueira cheia de folhas, mas não encontrou nela nada além de folhas, pois não era tempo de figos; disse que ninguém jamais comeria do seu fruto. Na manhã seguinte, viram a árvore seca desde as raízes, e Pedro a apontou.Fontes: o próprio texto bíblico · Bethphage
  • Jesus sentou-se num jumentinho, enquanto muitos da multidão estendiam mantos no caminho e outros espalhavam ramos cortados dos campos. Os que iam adiante e os que seguiam clamavam: “Bendito é o reino que vem, o de nosso pai Davi!” Davi, cujo nome significa “amado”, era o oitavo e mais novo filho de Jessé, cidadão de Belém. O monte das Oliveiras é mencionado pela primeira vez em ligação com a fuga de Davi de Jerusalém durante a rebelião de Absalão.Fontes: o próprio texto bíblico · David · Mount of Olives

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 1, 11, 15, 27
  • Mount of Olives · 31.778, 35.246 · versículo 1

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
316-biblían
Portions of the Holy Bible in Icelandic, 316-biblían translation
copyright © 2026 Every Nation Iceland
Language: Íslenska (Icelandic)
https://316.is/316-biblian/
https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4.0/deed.is
Þér er frjálst að:
Deila — afrita og dreifa efninu á hvaða sniði eða miðli sem er í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Aðlaga — endurvinna, umbreyta, og byggja á efninu í hvaða tilgangi sem er, jafnvel gegn gjaldi.
Leyfisveitandanum er óheimilt að afturkalla þetta frelsi svo framarlega að þú fylgir skilyrðum leyfisins.
Samkvæmt eftirfarandi skilyrðum:
TilvísunHöfundar — Þú verður að gefa upp viðeigandi tilvísanir, gefa upp tengil á notkunarleyfi, og gefa til kynna ef breytingar hafa verið gerðar. Þú mátt gera þetta á einhvern skynsamlegan hátt, en þó ekki þannig að gefið sé til kynna að leyfisgjafinn styðji við þig eða notkun þína.
DeilaEins — Ef þú endurvinnur, umbreytir, eða byggir á efninu, verðurðu að dreifa breytingunum þínum með sama notkunarleyfi og upprunalega efnið er með.
Engar frekari takmarkanir — Þú mátt ekki setja inn lagaleg ákvæði eða tæknilegar úrlausnir sem gætu hindrað aðra á lagalega vísu við að gera eitthvað það sem notkunarleyfið heimilar.
Athugasemdir:
Þú þarft ekki að uppfylla ákvæði notkunarleyfisins fyrir þá hluta efnisins sem séu í almannaeigu (public domain) eða þar sem notkun þín sé leyfð samkvæmt undanþágum eða takmörkunum.
Engin ábyrgð fylgir. Notkunarleyfið gæti ekki gefið þér allar nauðsynlegar heimildir fyrir þá notkun sem þú hafðir í huga. Til dæmis, önnur réttarákvæði sem varða birtingu, friðhelgi, eða sæmdarrétt gætu takmarkað hvernig þú getur notað efnið.
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2026-09-25

Fonte: http://ebible.org/isl316/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.