Nations Bible

Romanos 7

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Frjáls undan lögunum

1Kæru Gyðingar, trúsystkini, skiljið þið ekki enn, að þegar einhver deyr þá ná lögin ekki lengur yfir hann?

2Leyfið mér að útskýra þetta með dæmi: Þegar kona hefur gifst er hún bundin eiginmanni sínum lögum samkvæmt, þar til hann deyr. Missi hún mann sinn er hún ekki lengur bundin honum og því laus undan hjúskaparlögunum. 3Eftir það gæti hún gifst hverjum sem hún vill. Slíkt væri óheimilt ef maður hennar væri á lífi, en að honum látnum er það fullkomlega heimilt.

4Áður fyrr voru lög Gyðinga eiginmaður ykkar og húsbóndi. Síðan „dóuð“ þið með Kristi á krossinum og fyrst þið eruð „dáin“ þá eruð þið ekki lengur „gift“ lögunum. Þau ná ekki lengur yfir ykkur. Þegar Kristur reis upp, þá risuð þið einnig upp með honum og eruð því nýir menn. Við getum því sagt að nú séuð þið „gengin í hjónaband“ með honum sem reis upp frá dauðum, til að þið getið borið góðan ávöxt, það er að segja, gert það sem Guði er þóknanlegt. 5Meðan þið hlýdduð ykkar gamla synduga eðli, hneigðust þið sífellt til að óhlýðnast vilja Guðs og syndga. Þannig gerðuð þið það sem illt var og báruð skemmdan ávöxt – ávöxt dauðans. 6Nú eruð þið hins vegar leyst undan lögum og siðum Gyðinga, því að þið „dóuð“ meðan þið voruð í ánauð hjá þeim. Nú getið þið þjónað Guði – ekki með gömlu aðferðinni, að hlýða fjölda reglna á vélrænan hátt – heldur með þeirri nýju – að vera leidd af heilögum anda.

Syndin notar lögin

7En er ég þá að segja að þessi lög Guðs séu vond? Nei, auðvitað ekki. Lögin eru ekki syndsamleg, en þau sýndu mér synd mína. Ef lögin hefðu ekki sagt: „Þú skalt ekki girnast…“ þá hefði ég aldrei komið auga á syndina í hjarta mínu, þær illu hvatir og girndir sem þar leynast. 8Syndin tók þessi lög, sem sett voru til að ég mætti verjast illum hvötum og notaði þau til að vekja hjá mér löngun til þess, sem bannað er. Ef ekki væru til nein lög sem hægt væri að brjóta, væri ekki heldur til nein óhlýðni og þar með engin synd.

9Því var það, að á meðan ég skildi ekki hvers lögin kröfðust, fannst mér allt í góðu lagi, en þegar sannleikurinn rann upp fyrir mér, þá sá ég að ég var syndari sem hafði brotið lögin og var því dauðasekur. 10Lögin voru góð og áttu að benda mér á veg lífsins, en þau urðu hins vegar til þess að ég hlaut dauðadóm. 11Syndin blekkti mig með því að nota þessi góðu lög Guðs til að dæma mig til dauða. 12Þrátt fyrir þetta voru lögin sjálf góð og réttlát. 13Hvernig getur það verið? Voru þau ekki orsök þess að ég var dæmdur? Hvernig geta þau þá verið góð? Þau eru vissulega góð, en það var hins vegar syndin, það djöfullega fyrirbæri, sem notaði hið góða til að dæma mig til dauða. Af þessu ættuð þið að skilja hve slæg, banvæn og bölvuð hún er. Hún notar lög Guðs, sem eru góð, til að koma fram sínum illu fyrirætlunum. 14Lögin eru góð og vandinn liggur ekki þar, heldur hjá mér, því að ég er seldur í þrældóm fyrir synd.

Lögmálið getur ekki frelsað frá synd

15Ég get alls ekki skilið sjálfan mig. Mig langar til að gera það sem er rétt, en ég get það ekki. Ég geri það sem mér er ógeðfellt – það sem ég hata. 16Mér er fullkomlega ljóst að það sem ég geri er rangt, því að slæm samviska mín segir mér það. Hún bendir mér á að lögin, sem ég brýt, séu réttlát og sönn. 17Samt get ég ekkert að þessu gert, því að það er ekki lengur ég sem vinn verkið. Syndin, sem í mér er, er sterkari en ég og fær mig til að gera hið illa. 18Ég veit að mitt gamla eðli er gegnsýrt af syndinni. Mér er auðvelt að vilja hið góða, en ekki að framkvæma það, 19því að hið góða, sem ég vil, það geri ég ekki, en hið vonda, sem ég ekki vil, það geri ég. 20Fyrst ég geri það sem mér er ógeðfellt, þá er auðséð hvað að er: Ég er í klóm syndarinnar.

21Það virðist regla hjá mér, sem vil gera hið rétta, að hið illa er mér tamast. 22Samkvæmt mínu nýja eðli þrái ég að gera vilja Guðs, 23en það er eitthvað annað djúpt innra með mér – lægri hvatir – sem berst gegn vilja mínum, hefur yfirburði, sem gerir mig að þræli syndarinnar sem í mér er. Ásetningur minn er að vera hlýðinn þjónn Guðs, en þess í stað finn ég að ég er enn í ánauð syndarinnar.

Þið sjáið þetta sjálf: Hið nýja líf mitt segir mér að gera það rétta en gamla eðlið, sem enn er í mér, þráir syndina. Æ, þetta er hræðileg aðstaða! Hver getur frelsað mig frá þrældómi syndarinnar? Þökk sé Guði að Jesús Kristur, Drottinn okkar og frelsari, hefur þegar gert það og þar með leyst mig úr ánauðinni.

Você sabia?

A autoridade da lei e o conflito interior

  • Este capítulo afirma que a lei tem autoridade sobre uma pessoa apenas enquanto essa pessoa vive. Explica isso com o casamento: a mulher está ligada pela lei ao marido enquanto ele vive, mas, se ele morre, ela é libertada da lei do casamento e não é chamada de adúltera mesmo que se case com outro homem. O autor diz então que seus irmãos também morreram para a lei por meio do corpo de Cristo, para pertencer àquele que foi ressuscitado dentre os mortos, dar fruto para Deus e servir no novo caminho do Espírito, e não no antigo caminho do código escrito.Fontes: o próprio texto bíblico
  • Quando o autor pergunta se a lei é pecado, ele responde: "Certamente que não!" Diz que não teria tido consciência da cobiça se a lei não tivesse dito: "Não cobiçarás", e que o pecado, apoderando-se da oportunidade por meio do mandamento, produziu nele todo tipo de desejo cobiçoso. Ele chama a lei de santa, e o mandamento de santo, justo e bom, ao mesmo tempo que afirma que o pecado produziu morte nele por meio do que era bom, para que o pecado fosse exposto como pecado e se tornasse totalmente pecaminoso.Fontes: o próprio texto bíblico
  • O autor diz que a lei é espiritual, mas que ele não é espiritual, vendido como escravo ao pecado: não faz o bem que quer e continua fazendo o mal que odeia. No seu ser interior, ele se deleita na lei de Deus, mas outra lei em ação no seu corpo guerreia contra a lei da sua mente e o mantém cativo da lei do pecado que habita nele. Ele pergunta quem o resgatará deste corpo de morte, dá graças a Deus por meio de Jesus Cristo, nosso Senhor, e conclui que, com a mente, serve à lei de Deus, mas, com a carne, serve à lei do pecado.Fontes: o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.