Nations Bible

Romanos 3

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Rök fyrir dómi Guðs

1Hvaða gagn er þá af því að vera Gyðingur? Hafa þeir einhver sérstök forréttindi hjá Guði? Hefur hin gyðinglega siðvenja, umskurnin, eitthvert gildi? 2Já, það hefur marga kosti að vera Gyðingur. Fyrst og fremst þann að Guð trúði þeim fyrir lögum sínum (svo að þeir gerðu sér grein fyrir vilja hans og hlýddu honum). 3Það er að vísu rétt að sumir þeirra reyndust ótrúir, en tekur Guð loforð sín aftur vegna þess eins að þeir brugðust? 4Nei, að sjálfsögðu ekki! Þótt sérhver maður reyndist lygari, væri Guð það ekki. Munið þið hvað stendur í Davíðssálmunum um þetta:

„Guðs orð mun alltaf reynast satt og rétt, jafnvel þótt einhver dragi það í efa.“

5„Já, en,“ segja sumir, „sviksemi okkar við Guð verður til góðs – syndir okkar þjóna góðum tilgangi. Þegar fólk sér hversu vondir við erum, veitir það því athygli hve Guð er góður. Og fyrst synd okkar verður honum til hjálpar, er þá nokkuð réttlæti í því að hann refsi okkur?“ 6Þannig tala sumir en slíkar röksemdir ná ekki nokkurri átt. Hvers konar Guð væri hann ef honum væri sama um syndina – ef hann léti sig einu gilda hvort menn óhlýðnuðust boðum hans og vilja – og hvernig gæti hann þá sakfellt nokkurn mann? 7Nei, hann gæti ekki dæmt mig og sakfellt sem syndara ef óheiðarleiki minn og lygi yrðu honum til dýrðar, við það að vera borin saman við heiðarleika hans. 8Sé þetta hins vegar skoðun þín, þá verður niðurstaðan þessi: Því verri sem við erum, því ánægðari verður Guð! Þeir sem þannig tala verðskulda glötun. Hvernig geta menn haldið því fram að þetta sé sá boðskapur sem ég flyt?

Allir hafa syndgað

9En erum við Gyðingar betri en annað fólk? Nei, alls ekki. Við höfum þegar sýnt fram á að allir menn eru syndarar, Gyðingar jafnt sem heiðingjar.

10Um þetta segir Gamla testamentið:

„Enginn maður er réttlátur, ekki einn einasti. 11Enginn maður þekkir Guð í raun og veru né þráir að kynnast honum. 12Allir hafa farið sína eigin leið – og villst. Enginn hefur í einu og öllu lagt stund á hið góða, ekki einn einasti. 13Tal mannanna er viðbjóðslegt og rotið, já, rétt eins og nálykt frá opinni gröf. Lygin loðir við tungu þeirra og allt sem þeir segja hefur í sér brodd og banvænt eitur höggormsins. 14Munnur þeirra er fullur formælinga og beiskju. 15Þeir eru fljótir til að drepa og hata hvern þann sem er þeim ósammála. 16Hvar sem þeir fara, skilja þeir eftir sig eymd og ógæfu, 17og þeir hafa engan skilning á því hvað það er að njóta öryggis og blessunar Guðs. 18Þeim er alveg sama um Guð og hvað honum finnst um þá.“

19Dómur Guðs er þungur yfir Gyðingum, því þeim ber að hlýða lögum Guðs, en ekki leggja stund á hið illa. Þeir hafa því enga afsökun, enginn þeirra. Þegar allt kemur til alls verður heimurinn að þagna, því að hann er sekur frammi fyrir hinum almáttuga Guði.

20Skiljið þið nú, að enginn getur orðið réttlátur í augum Guðs með því að hlýðnast lögunum? Eftir því sem við kynnumst lögum Guðs betur, því betur sjáum við að við getum alls ekki hlýtt þeim. Tilgangur laganna er sá einn að sýna okkur fram á að við erum syndarar.

Réttlæti Guðs fyrir trú

21En nú hefur Guð bent okkur á aðra leið til sín. Hún felst ekki í því að menn skuli vera góðir og reyna að hlýða lögunum, heldur er um nýja leið að ræða (reyndar er hún nú ekki ný því að Gamla testamentið sagði frá henni fyrir langa löngu). Hún er þessi: Guð vill taka okkur í sátt við sig og sýkna okkur, ef við treystum því að Jesús Kristur fyrirgefi og taki burt syndir okkar. Öll getum við frelsast á þennan eina og sama hátt: Að koma til Krists, og þá skiptir engu hver við erum eða hvernig við höfum lifað. 23Allir hafa syndgað – óhlýðnast Guði og skortir dýrð hans, 24en Guð lýsir því yfir að við séum saklaus af allri andstöðu við hann, ef við treystum Jesú Kristi, sem í kærleika sínum vill fyrirgefa okkur syndir okkar.

25Guð sendi Jesú Krist til að taka á sig hegninguna fyrir syndir okkar og að binda enda á reiði Guðs í okkar garð. Við frelsumst frá þessari reiði Guðs fyrir blóð Krists, það er að segja, vegna dauða hans á krossinum – og með því að trúa á hann og treysta hjálp hans. Í öllu þessu var Guð fullkomlega réttlátur, jafnvel þótt hann hafi ekki refsað þeim sem syndguðu fyrr á tímum, því að hann leit fram til þess tíma er Kristur kæmi og tæki burt syndir þeirra. 26Guð getur á sama hátt tekið á móti syndurunum nú á okkar dögum, því að Jesús dó einnig fyrir þeirra syndir. En er nokkurt réttlæti í því að Guð láti afbrotamenn ganga lausa og lýsi því yfir að þeir séu saklausir? Já, það getur hann ef þeir trúa því að Jesús hafi fyrirgefið þeim syndir þeirra.

Guð fer ekki í manngreinarálit

27Getum við þá hrósað okkur af góðverkum okkar og sagt að þeirra vegna eigum við skilið að fá hjálp Guðs? Nei, alls ekki. Hvers vegna ekki? Vegna þess að við fáum ekki fyrirgefninguna sem laun fyrir góðverk okkar, heldur fyrir trú á það sem Kristur gerði. 28Þannig frelsumst við fyrir trúna á Krist en ekki fyrir það góða sem við gerum. 29Frelsar Guð einungis Gyðinga á þennan hátt? Nei, þetta á einnig við um heiðingjana, 30því að Guð fer ekki í manngreinarálit. Ef við trúum þá sýknar Guð okkur, hvort sem við erum Gyðingar eða heiðingjar. 31Og segjum nú að við séum frelsuð fyrir að trúa, þýðir það þá ekki að við séum þar með laus undan því að þurfa að hlýða lögum Guðs? Nei, þvert á móti, því að sannleikurinn er sá að eina leiðin til að hlýða Guði er að trúa á Jesú Krist.

Você sabia?

Todos sob o pecado, justificados pela fé

  • Romanos 3 começa perguntando qual é a vantagem de ser judeu e qual é o valor da circuncisão. A resposta é que há muita vantagem em todos os sentidos e, antes de tudo, que lhes foram confiadas as próprias palavras de Deus. O capítulo argumenta, então, que, se alguns não tiveram fé, essa falta de fé não anula a fidelidade de Deus.Fontes: o próprio texto bíblico
  • Para sustentar a acusação de que judeus e gregos estão igualmente sob o pecado, o capítulo reúne trechos introduzidos por “como está escrito”: não há justo, ninguém entende nem busca a Deus, a fala é descrita como engano e veneno, os pés se apressam para derramar sangue, e não há temor de Deus. O texto diz que a lei fala aos que estão debaixo dela, para que toda boca se cale e o mundo inteiro seja responsável diante de Deus, e que ninguém é justificado pelas obras da lei, porque a lei traz o conhecimento do pecado.Fontes: o próprio texto bíblico
  • Com as palavras “Mas agora”, o capítulo afirma que, à parte da lei, a justiça de Deus foi revelada, testemunhada pela Lei e pelos Profetas, e que ela vem pela fé em Jesus Cristo a todos os que creem, sem distinção. Todos pecaram e ficam aquém da glória de Deus, e são justificados gratuitamente pela sua graça, por meio da redenção que há em Cristo Jesus. A vanglória fica excluída pelo princípio da fé, não das obras; há um só Deus, que justifica os circuncidados pela fé e os incircuncisos por essa mesma fé, e o capítulo diz que essa fé sustenta a lei em vez de anulá-la.Fontes: o próprio texto bíblico

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.