Nations Bible

Apocalipse 21

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Nýr himinn og ný jörð

1Eftir þetta sá ég nýjan himin og nýja jörð. Hinn fyrri himinn og hin fyrri jörð voru horfin og höfin voru ekki lengur til. 2Þá sá ég, Jóhannes, borgina helgu, hina nýju Jerúsalem! Hún kom niður af himninum frá Guði. Þetta var dýrleg sjón! Borgin var fögur eins og brúður á brúðkaupsdegi.

3Þá heyrði ég kallað hárri röddu frá hásætinu: „Sjá! Bústaður Guðs er meðal mannanna. Hann mun búa hjá þeim og þeir munu verða fólk hans – Guð mun sjálfur vera hjá þeim. 4Hann mun strjúka hvert tár af augum þeirra og dauðinn mun ekki framar verða til. Þar verður engin sorg, enginn grátur og engin kvöl, allt slíkt er horfið og kemur aldrei aftur.“

5Þá sagði sá sem í hásætinu sat: „Sjá, ég geri alla hluti nýja!“ Síðan sagði hann við mig: „Nú skaltu skrifa, því að þessi orð eru sönn: 6Það er fullkomnað! Ég er Alfa og Ómega, upphafið og endirinn. Ég gef þeim ókeypis, sem þyrstur er, lífsins vatn. 7Þeir sem sigra, munu erfa blessunina og ég mun vera Guð þeirra og þeir munu vera börnin mín. 8Eldsdíkið sem logar af brennisteini, er staðurinn fyrir bleyður sem snúa við mér bakinu, þá sem eru mér ótrúir, hrakmenni, morðingja, saurlífismenn, þá sem hafa samskipti við illu andana, skurðgoðadýrkendur og alla þá sem iðka lygi – þar er hinn annar dauði.“

9Þá kom einn af englunum sjö, sem tæmt höfðu skálarnar með síðustu sjö plágunum, og sagði við mig: „Komdu með mér og ég skal sýna þér brúðina, eiginkonu lambsins.“

Borgin dýrlega

10Ég sá í sýninni að hann fór með mig upp á hátt fjall og þaðan sá ég borgina dýrlegu, hina heilögu Jerúsalem, koma niður af himni frá Guði. 11Hún var full af dýrð Guðs og glóði eins og gimsteinn. Það glampaði á hana eins og slípaðan jaspis. 12Múrarnir voru háir og breiðir og tólf englar gættu hliðanna tólf, sem á þeim voru. Nöfn hinna tólf ættkvísla Ísraels voru rituð á hliðin. 13Borgin hafði fjórar hliðar og voru þrír inngangar á hverri hlið, en hliðarnar sneru í norður, suður, austur og vestur. 14Múrarnir höfðu tólf undirstöðusteina og á þá voru rituð nöfn hinna tólf postula lambsins.

15Engillinn hélt á mælistiku í annarri hendinni og ætlaði að mæla hlið og veggi borgarinnar. 16Þegar hann hafði lokið því sá hann að borgin var ferhyrnd, hliðarnar voru allar jafnlangar, reyndar var hún líkust teningi því að hæðin sem var 2.400 kílómetrar, var jöfn lengdinni og breiddinni. 17Síðan mældi hann þykkt veggjanna og komst þá að því að þeir voru 65 metrar í þvermál (engillinn kallaði til mín þessi mál og notaði mælieiningar sem allir þekkja).

18Sjálf var borgin úr skíru og gegnsæju gulli, líkustu gleri. Múrinn var úr jaspis og byggður á tólf lögum undirstöðusteina og var hvert þeirra um sig skreytt þessum gimsteinum: Hið fyrsta jaspis, annað safír, þriðja kalsedón, fjórða smaragð, fimmta sardónix, sjötta sardis, sjöunda krýsólít, áttunda beryl, níunda tópas, tíunda krýsópras, ellefta hýasint og tólfta ametýst.

21Hliðin tólf voru úr perlum – hvert um sig úr einni perlu. Aðalgatan var úr skíru gegnsæju gulli sem líktist gleri.

22Musteri sá ég ekkert í borginni, því að Drottinn Guð hinn almáttki og lambið eru tilbeðin um alla borgina. 23Borgin þarf hvorki á sólarljósi né tunglskini að halda, því að dýrð Guðs og lambsins lýsa hana upp. 24Ljós hennar mun lýsa þjóðum jarðarinnar og konungar jarðarinnar munu koma og færa henni dýrð sína. 25Hliðunum er aldrei lokað, þau standa opin allan daginn, því að nótt þekkist þar ekki. 26Menn munu færa borginni dýrð og vegsemd þjóðanna 27og ekkert illt mun komast inn í hana – engin illmenni eða lygarar. Þar munu þeir einir verða, sem eiga nöfnin sín innrituð í lífsbók lambsins.

Ilustração artística — interpretação, não registro histórico.

Você sabia?

A nova Jerusalém

  • Nesta visão, a cidade que desce do céu é chamada de cidade santa, a nova Jerusalém. Jerusalém também era conhecida como a cidade santa e a cidade de Deus, e em árabe é el-Khuds, que significa a santa. O nome está numa forma dual e significa posse da paz ou fundamento da paz.Fontes: o próprio texto bíblico · Jerusalem
  • O vidente é levado no Espírito a um monte grande e alto e vê essa cidade santa descendo. Jerusalém é descrita como uma cidade de montanha entronizada numa fortaleza de montanha, e a forma dual do nome provavelmente se refere aos dois montes sobre os quais foi construída, Sião e Moriá, ou, como alguns supõem, à cidade alta e à cidade baixa.Fontes: o próprio texto bíblico · Jerusalem
  • A muralha da cidade tem doze portas, três de cada lado, inscritas com os nomes das doze tribos de Israel. Israel é outro nome de Jacó, explicado como aquele que segue os calcanhares de outro, ou como um suplantador.Fontes: o próprio texto bíblico · Jacob (Israel)

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Jerusalem · 31.777, 35.234 · versículos 2, 10

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.