Filipenses 3
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
1Kæru vinir, verið glaðir vegna samfélagsins við Drottin. Ég þreytist ekki á að segja þetta og þið hafið gott af slíkri hvatningu.
Gætið ykkar á falskennendum
2Gætið ykkar á þessum vondu mönnum – ég kalla þá hunda – þeim sem segja að þið verðið að láta umskerast til að geta frelsast. 3Við verðum ekki börn Guðs með því að skera í líkama okkar, heldur með því að tilbiðja hann í anda okkar – það er hin eina og sanna „umskurn“. Hrós okkar kristinna manna er það sem Jesús Kristur hefur gert fyrir okkur og okkur er ljóst að við getum ekkert gert sjálf til eigin frelsunar.
4Ef einhver hefði nokkru sinni minnstu von um að geta frelsað sjálfan sig, þá væri það ég. Ef aðrir gætu frelsast fyrir það sem þeir hafa gert, þá gæti ég það áreiðanlega! 5Ég var umskorinn, og þar með vígður gyðingdómnum átta daga gamall. Ég er fæddur Gyðingur – kominn af hinni gömlu Benjamínsætt – og er þar með ósvikinn Gyðingur, ef hægt er að taka svo til orða. En það sem meira er, ég tilheyrði flokki farísea og þeir kröfðust skilyrðislausrar hlýðni við öll lög og siðvenjur Gyðinga. 6Skyldi ég hafa tekið það alvarlega? Já, hvort ég gerði! Ég ofsótti hina kristnu hatrammlega og reyndi að hlýða hverri einustu reglu og lagagrein út í ystu æsar.
7En hvað er nú orðið um allt þetta sem mér þótti svo mikils virði? Ég fleygði því burt, svo að ég gæti sett allt mitt traust á Krist og hann einan. 8Samanborið við þekkinguna á Kristi Jesú Drottni mínum, er allt annað rusl í mínum augum. Ég hef ýtt öllu öðru til hliðar og met það einskis, til þess að ég geti verið með Kristi og orðið eitt með honum. 9Nú treysti ég ekki lengur á það, að eigin góðverk eða hlýðni við lög Guðs frelsi mig, heldur treysti ég Kristi einum til þess. Hvernig eignumst við rétta afstöðu til Guðs? Með því að trúa – trúa og treysta Kristi einum. 10Nú hef ég varpað öllu öðru fyrir borð, það var eina leiðin til að kynnast Kristi í raun og veru, og því feiknar afli sem reisti hann upp frá dauðum. Að yfirgefa allt var líka eina leiðin til að skilja hvað það er að þjást og deyja með honum. 11Ég vil verða einn þeirra sem fá hlut í upprisu lífsins hvað sem það kostar. 12Ég er ekki að segja að ég sé fullkominn. Enn hef ég ekki lært allt það sem ég á að læra, en ég stefni að því að verða það sem Kristur frelsaði mig til og vill að ég sé.
13Nei, kæru vinir, enn er ég ekki fullkominn, en þetta er mér efst í huga: Að gleyma fortíðinni og horfa fram á við til þess sem í vændum er. 14Ég tek á öllu sem ég á til að ná markinu og fá verðlaunin sem Guð hefur heitið okkur á himnum, og allt er það Kristi Jesú að þakka.
15Ég vona að þið sem þroskuð eruð í trúnni, séuð mér sammála, en ef þið eruð ósammála um eitthvert atriði, þá trúi ég því að Guð muni leiða ykkur í allan sannleikann 16– það er að segja ef þið breytið samkvæmt þeim sannleika sem þið hafið lært.
17Kæru vinir, takið líferni mitt til fyrirmyndar og veitið þeim athygli sem feta í mín fótspor. 18Ég hef sagt ykkur það oft áður og ég segi það enn og nú með tárin í augunum: Margir sem telja sig kristna eru í raun og veru óvinir kross Krists. 19Glötunin bíður þeirra því að þeir hafa ofurselt sig ágirndinni. Þeir stæra sig af því sem þeir ættu að blygðast sín fyrir og jarðlífið er það eina sem þeir hugsa um. 20En föðurland okkar er á himnum og þar er Drottinn okkar og frelsari, Jesús Kristur, sem við væntum. 21Þegar hann kemur, mun hann breyta stöðugt hrörnandi líkömum okkar í dýrðarlíkama, eins og þann sem hann sjálfur hefur, með guðdómskrafti sínum, sem hann beitir er hann leggur allt undir sig.

Você sabia?
Da confiança na carne ao conhecimento de Cristo
- Quando o autor enumera motivos para ter confiança na carne, inclui pertencer à tribo de Benjamim. Benjamim era o filho mais novo de Jacó com Raquel, nascido em Efrata, no caminho entre Betel e Belém. A mãe morreu ao dá-lo à luz e o chamou de Ben-oni, "filho da minha dor", mas o pai mudou esse nome para Benjamim.Fontes: Benjamin (patriarch) · o próprio texto bíblico
- O Easton's Bible Dictionary (1897) diz que os descendentes de Benjamim, os benjamitas, eram no Êxodo a menor tribo, exceto uma, marchavam com Manassés e Efraim a oeste do tabernáculo e contavam 45.600 guerreiros na entrada em Canaã. O autor deste capítulo ainda cita essa tribo como parte da própria linhagem.Fontes: Benjamin (patriarch) · o próprio texto bíblico
- Ele também diz que foi circuncidado no oitavo dia, hebreu de hebreus e, quanto à lei, fariseu; quanto ao zelo, perseguiu a igreja e, quanto à justiça na lei, era irrepreensível. Agora considera tudo isso como perda, até lixo, em comparação com conhecer a Cristo Jesus, e manda os leitores terem cuidado com aqueles a quem chama de mutiladores da carne.Fontes: o próprio texto bíblico
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org