Nations Bible

Marcos 9

Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.

Jesús ummyndast

1Jesús hélt áfram að tala við lærisveina sína og sagði: „Sumir ykkar, sem hér standa, munu lifa það að sjá guðsríki – vald Guðs og stjórn – koma með miklum krafti.“

2Sex dögum síðar tók Jesús þá Pétur, Jakob og Jóhannes eina með sér upp á hátt fjall.

Skyndilega sáu þeir að andlit hans sveipaðist dýrlegum ljóma 3og föt hans urðu skínandi björt – hvítari en nokkur föt geta orðið.

4Síðan birtust Móse og Elía og fóru að ræða við Jesú!

5„Meistari, þetta er stórkostlegt!“ hrópaði Pétur. „Við skulum reisa hér þrjú skýli, eitt handa þér, annað handa Móse og það þriðja handa Elía.“

6Þetta sagði hann bara til að segja eitthvað, því hann vissi ekki hvað hann átti að gera, og raunar voru þeir allir skelfingu lostnir.

7En áður en Pétur hafði lokið við setninguna, kom ský yfir þá, sem skyggði á sólina, og þeir heyrðu rödd úr skýinu, sem sagði: „Þessi er minn elskaði sonur. Hlustið á hann.“

8Er þeir litu í kring um sig, sáu þeir engan nema Jesú einan, – Móse og Elía voru horfnir.

9Á leiðinni niður af fjallinu bað hann þá að segja engum frá því sem þeir höfðu séð, ekki fyrr en hann væri risinn upp frá dauðum. 10Þeir þögðu því um þetta við aðra en ræddu það oft sín á milli og veltu þá fyrir sér hvað hann hefði átt við með orðunum „risinn upp frá dauðum“.

11En þarna í fjallshlíðinni spurðu þeir hann um nokkuð sem trúarleiðtogar þjóðarinnar töluðu oft um, það að fyrst yrði Elía að koma (áður en Kristur gæti komið). 12Jesús játti því að Elía yrði að koma á undan og ryðja brautina – síðan bætti hann við: „Hann er reyndar búinn að koma! En það var farið hræðilega með hann, rétt eins og spámennirnir höfðu sagt fyrir.“ Síðan spurði hann þá hvað spámennirnir hefðu átt við er þeir spáðu að Kristur ætti að þjást og þola hina dýpstu niðurlægingu.

14Við rætur fjallsins sáu þeir mikinn mannfjölda, sem safnast hafði umhverfis lærisveinana níu, sem orðið höfðu eftir. Þar voru nokkrir fræðimenn að þrátta við þá. 15Þegar Jesús nálgaðist, leit fólkið til hans með lotningu og hljóp til móts við hann til þess að heilsa honum. 16„Um hvað eruð þið að deila?“ spurði Jesús.

17„Meistari,“ sagði maður einn í hópnum, „ég kom hingað með son minn til að biðja þig að lækna hann – hann er mállaus, því illur andi er í honum. 18Þegar andinn hefur hann á valdi sínu, kastar hann honum niður svo að hann froðufellir, gnístir tönnum og stífnar upp. Ég bað lærisveina þína að reka þennan illa anda út en þeir gátu það ekki.“

19Þá sagði Jesús (við lærisveinana): „Æ, lítil er trú ykkar, hversu lengi þarf ég að vera með ykkur til þess að þið trúið? Hversu lengi á ég að umbera ykkur? Komið hingað með drenginn.“

20Þeir sóttu því drenginn, en þegar illi andinn sá Jesú, þá teygði hann drenginn sundur og saman svo að hann féll til jarðar, veltist um og froðufelldi.

21„Hve lengi hefur þetta verið svona?“ spurði Jesús föður hans.

„Síðan hann var lítill. 22Oft lætur andinn hann falla í eldstóna eða í vatn til að reyna að gera út af við hann. Ó, miskunnaðu okkur og gerðu eitthvað til að hjálpa okkur, ef þú getur.“

23„Ef ég get?“ spurði Jesús, og síðan bætti hann við: „Ef þú trúir er allt mögulegt.“

24„Ég trúi,“ svaraði maðurinn, „en hjálpaðu mér svo ég eignist enn meiri trú.“

25Mannfjöldinn þyrptist nú að, en Jesús hastaði á illa andann og sagði: „Þú andi heyrnarleysis og málleysis, ég skipa þér að fara út af þessu barni og koma aldrei aftur.“

26Þá rak illi andinn upp hræðilegt org, teygði drenginn sundur og saman og fór út úr honum. Drengurinn lá hreyfingarlaus og virtist dáinn. Kliður fór um mannfjöldann – „Hann er dáinn, hann er dáinn.“ 27En Jesús tók um hönd hans og hjálpaði honum á fætur. Og þarna stóð hann – alheill! 28Eftir á, þegar Jesús var orðinn einn með lærisveinunum innan dyra, spurðu þeir hann: „Hvers vegna gátum við ekki rekið þennan illa anda út?“

29Jesús svaraði og sagði: „Við þessu dugar ekkert nema bæn.“

30Síðan fór hann burt þaðan og ferðaðist um Galíleu. Hann reyndi að forðast að vekja á sér athygli, svo að hann gæti eytt meiri tíma með lærisveinunum og kennt þeim. Hann sagði við þá: „Ég, Kristur, mun verða svikinn og deyddur en á þriðja degi mun ég rísa upp á ný.“

32Þetta skildu þeir ekki og þorðu ekki að spyrja hann við hvað hann ætti.

33Þeir komu til Kapernaum og er þeir voru komnir þar inn í hús, spurði hann þá: „Um hvað voruð þið að ræða á leiðinni?“

34Þeir þorðu ekki að svara, því þeir höfðu verið að þrátta um hver þeirra væri mestur.

35Hann settist, kallaði þá til sín og sagði: „Sá sem vill verða mestur, hann verður að vera minnstur; þjónn allra.“

36Síðan kallaði hann á lítið barn og setti það á meðal þeirra. Að því búnu tók hann það í fang sér og sagði: 37„Hver sá sem tekur á móti litlu barni eins og þessu, mín vegna, tekur á móti mér, og hver sá sem tekur á móti mér, tekur á móti föður mínum sem sendi mig.“

„Bannið það ekki!“

38Dag einn sagði Jóhannes, einn af lærisveinum hans, við hann: „Meistari, við sáum mann sem notaði nafn þitt til að reka út illa anda. Við bönnuðum honum það, af því að hann er ekki einn úr okkar hópi.“

39„Það skuluð þið ekki gera,“ sagði Jesús, „því að enginn sem unnið hefur kraftaverk í mínu nafni, snýst gegn mér á eftir. 40Sá sem ekki er á móti okkur, hann er með okkur. 41Ef einhver gefur ykkur eitthvað, þó ekki sé nema eitt vatnsglas, vegna þess að þið tilheyrið mér – þá skuluð þið vita að hann mun fá sín laun. 42En! – ef einhver verður til þess að einn af þessum smælingjum sem trúa á mig, glatar trúnni, væri betra fyrir þann mann að vera fleygt í sjóinn, með stóran myllustein bundinn um hálsinn.

43Ef hönd þín gerir rangt, þá er betra að skera hana af og hafa aðeins aðra höndina og eignast eilíft líf, en hafa báðar og vera varpað í helvíti. 45Ef fótur þinn leiðir þig á veg illskunnar, höggðu hann þá af! Betra er að vera einfættur og eignast eilíft líf, en ganga á báðum fótum til helvítis. 47Ef auga þitt teymir þig út í syndina, stingdu það þá úr! Betra er að ganga hálfblindur inn í guðsríki, en hafa bæði augun og líta elda helvítis. 48Þar mun ormurinn aldrei deyja og eldur ekki slokkna. 49Þar eru allir eldi saltaðir!

50Salt er gott, en ef það missir seltuna, þá er það gagnslaust. Gætið því að missa ekki seltuna og haldið frið ykkar á milli.“

Você sabia?

A transfiguração e o ensino no caminho

  • Seis dias depois, Jesus levou Pedro, Tiago e João sozinhos a um alto monte, e foi transfigurado diante deles. Pedro, originalmente chamado Simão, era pescador de Betsaida, no mar da Galileia. Tiago, irmão mais velho de João e filho de Zebedeu, também era pescador e esteve presente com Pedro e João na transfiguração.Fontes: o próprio texto bíblico · Simon Peter · James (Son of Zebedee)
  • No alto monte, Elias, o tesbita e o Elias do Novo Testamento, apareceu com Moisés, conversando com Jesus. Enquanto desciam, os discípulos perguntaram por que os escribas dizem que Elias deve vir primeiro. Jesus respondeu que Elias de fato vem primeiro e que ele já veio.Fontes: o próprio texto bíblico · Elijah
  • Jesus e os discípulos passaram pela Galileia, mas ele não queria que ninguém soubesse, porque os estava ensinando, e chegaram a Cafarnaum. Cafarnaum, a cidade de Naum, era uma cidade da Galileia que se tornou a própria cidade de Jesus depois de sua expulsão de Nazaré. Os judeus chamavam Galil a uma planície elevada entre as montanhas de Naftali, e a região passou a ser chamada Galileia dos gentios.Fontes: o próprio texto bíblico · Capernaum · Galilee

Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.

Lugares deste capítulo

  • Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 30

Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).

Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+)
copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc.
Language: Íslenska (Icelandic)
Contributor: Biblica, Inc.
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Creative Commons License
Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum.
Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ."
Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA).
Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact .
This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA.
Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .”
Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows:
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™
Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc.
Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™
Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc.
“Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi.
“Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission.
You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA).
If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact .
This translation is made available to you under the terms of the
Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0.
You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that:
You include the above copyright and source information.
If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes.
If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original.
Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents.
For other uses, please contact the respective copyright owners.
Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19.
2025-05-03

Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org

Fale com a gente

Conte de onde você lê, como a Bíblia tem te ajudado ou o que podemos melhorar. Lemos todas as mensagens.