Marcos 6
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ · Toque num versículo para ver as referências cruzadas.
1Skömmu síðar yfirgaf hann héraðið og sneri aftur ásamt lærisveinum sínum til Nasaret, þar sem hann hafði átt heima. 2Á helgideginum fór hann í samkomuhúsið til að kenna. Bæjarbúar undruðust visku hans og kraftaverk, því að hann var frá Nasaret eins og þeir. „Hvar hefur hann lært þetta?“ spurði fólkið. „Hann er ekkert betri en við! Hann er bara smiður – sonur hennar Maríu, bróðir Jakobs, Jósefs, Júdasar og Símonar og systur hans búa líka hér í Nasaret.“ Og allir hneyksluðust á honum.
4Þá sagði Jesús: „Hvergi er spámaður minna metinn en í heimabæ sínum og meðal fjölskyldu sinnar og ættingja.“ 5Og vegna vantrúar þeirra gat hann ekki gert neitt kraftaverk þar, nema hann lagði hendur yfir nokkra sjúka og læknaði þá. 6Hann furðaði sig á vantrú þeirra.
Eftir þetta fór Jesús til ýmissa þorpa og kenndi. 7Hann kallaði til sín lærisveinana tólf og sendi þá af stað tvo og tvo saman og gaf þeim vald til að reka út illa anda. 8Hann sagði þeim að hafa ekkert með sér nema göngustaf – ekkert nesti eða farangur, enga peninga og jafnvel ekki skó eða föt til skiptanna.
10„Hvar sem þið komið eða hafið viðdvöl í borg eða bæ, þá dveljist allan tímann á sama heimili, en farið ekki frá einu heimili til annars. 11Sé einhverstaðar hvorki tekið á móti ykkur né hlustað á orð ykkar, skuluð þið dusta rykið af fótum ykkar um leið og þið farið þaðan. Það er merki þess að þið hafið ofurselt þorpið örlögum sínum.“
12Lærisveinarnir héldu nú af stað og hvöttu alla til að iðrast og snúa baki við syndinni. 13Þeir ráku út marga illa anda og smurðu fjölda fólks með ólífuolíu og læknuðu það.
Dauði Jóhannesar
14Ekki leið á löngu uns Heródes konungur frétti um Jesú, því að alls staðar var verið að tala um kraftaverk hans. Konungurinn hélt að Jesús væri Jóhannes skírari risinn upp frá dauðum og því sagði fólk: „Nú, það er þá ekkert skrítið þótt hann geti gert slík kraftaverk.“ 15Aðrir héldu að Jesús væri Elía, hinn forni spámaður, endurborinn, og enn aðrir töldu hann vera nýjan spámann, svipaðan hinum miklu spámönnum fyrri alda.
16„Nei, þetta er Jóhannes, maðurinn sem ég lét hálshöggva, hann er risinn upp frá dauðum,“ sagði Heródes.
17Heródes hafði sent hermenn til að handtaka og fangelsa Jóhannes, því Jóhannes hafði alltaf haldið því fram við Heródes að rangt væri af honum að kvænast Heródías, konu Filippusar bróður síns. 19Heródías vildi því hefna sín á Jóhannesi með því að láta drepa hann, en það gat hún ekki án samþykkis Heródesar. 20Heródes bar hins vegar virðingu fyrir Jóhannesi, því hann vissi að hann var góður og heilagur maður, og því hélt hann hlífiskildi yfir honum. Heródesi líkaði vel að tala við Jóhannes, þótt samviska hans yrði óróleg í hvert sinn.
21Loksins sá Heródías sér þó leik á borði. Það var á afmælisdegi Heródesar, en þá bauð hann hallarþjónum sínum og herforingjum, auk helstu fyrirmanna úr Galíleu, til veislu. 22Dóttir Heródíasar kom þá inn í veislusalinn og dansaði fyrir gestina, öllum til mikillar ánægju. Þá sagði Heródes við stúlkuna: „Þú mátt óska þér hvers sem þú vilt og ég skal gefa þér það, jafnvel hálft konungsríkið.“
24Stúlkan fór til móður sinnar og ráðfærði sig við hana. Þar fékk hún þetta ráð: „Biddu um höfuð Jóhannesar skírara.“
25Stúlkan flýtti sér aftur til konungsins og sagði: „Ég vil fá höfuð Jóhannesar skírara á fati – og það strax.“
26Konungurinn varð hryggur, en þorði þó ekki að ganga á bak orða sinna frammi fyrir öllum gestunum. 27Hann skipaði því einum lífvarða sinna að fara til fangelsisins og hálshöggva Jóhannes og koma með höfuð hans. Hermaðurinn fór og hjó Jóhannes í fangelsinu. 28Síðan kom hann með höfuð hans á fati og rétti stúlkunni, sem fór með það til móður sinnar.
29Þegar lærisveinar Jóhannesar fréttu hvað gerst hafði, sóttu þeir lík hans og jarðsettu það.
Jesús mettar fimm þúsundir
30Lærisveinarnir tólf komu nú aftur til Jesú úr predikunarferð sinni og sögðu honum frá öllu því sem þeir höfðu sagt og gert.
31Þá sagði Jesús: „Við skulum yfirgefa mannfjöldann um stund og hvíla okkur.“ Fólk var alltaf að koma og fara, svo að þeir höfðu varla næði til að matast. 32Þeir lögðu því af stað á bátnum og ætluðu á óbyggðan stað. 33En mannfjöldinn sá til ferða þeirra, hljóp fram með vatninu og tók á móti þeim þegar þeir komu að landi! 34Hann mætti því aftur sama fólki þegar hann steig út úr bátnum. Og Jesús kenndi í brjósti um fólkið, því það var eins og fjárhópur án hirðis, og hann tók að kenna því margt sem það þurfti að vita.
35Þegar á daginn leið komu lærisveinarnir til hans og sögðu: „Segðu nú fólkinu að fara til þorpanna og bóndabæjanna í grenndinni og kaupa sér mat. Hér í óbyggðinni er ekkert að fá, og nú er framorðið.“
37„Þið skuluð gefa þeim að borða,“ sagði Jesús. „Já, en hvernig?“ spurðu þeir. „Það kostar stórfé að fæða allan þennan fjölda.“
38„Athugið hvað við höfum mikinn mat með okkur.“ sagði Jesús. Þeir komu aftur og sögðu honum að það væru fimm brauð og tveir fiskar. 39Jesús skipaði þá fólkinu að setjast niður. Fljótlega hafði það skipt sér í fimmtíu eða hundrað manna hópa og sest í grasið.
41Hann tók nú brauðin fimm og fiskana, horfði upp til himins og þakkaði Guði. Síðan braut hann brauðin og rétti lærisveinunum þau ásamt fiskunum og sagði þeim að bera það til fólksins. 42Og allir urðu mettir, 43en karlmennirnir einir voru um fimm þúsund, auk kvenna og barna. Að máltíðinni lokinni var afganginum safnað úr grasinu og fyllti hann tólf körfur!
45Eftir þetta bauð Jesús lærisveinunum að fara um borð í bátinn og sigla yfir vatnið til Betsaída, en þar ætlaði hann að hitta þá seinna. Sjálfur ætlaði hann að staldra við, kveðja fólkið og koma því af stað heim.
46Þegar því var lokið gekk Jesús upp á fjallið til að biðjast fyrir. 47Um nóttina þegar lærisveinarnir voru komnir út á mitt vatnið, var Jesús einn á ströndinni. 48Það var hvasst á vatninu og hann sá að róðurinn var þungur hjá þeim.
Um klukkan þrjú um morguninn kom hann til þeirra gangandi á vatninu. Hann gekk til hliðar við bátinn eins og hann ætlaði fram hjá. 49Þegar þeir sáu einhvern á gangi við bátshliðina urðu þeir ofsahræddir og æptu, því þeir héldu að þetta væri vofa 50– þeir sáu hann allir.
Þá sneri hann sér að þeim og sagði: „Þetta er ég! Verið óhræddir.“ 51Síðan steig hann upp í bátinn og þá lygndi! Lærisveinarnir sátu agndofa og skildu hvorki upp né niður í öllu þessu.
52Þeir gerðu sér ekki enn grein fyrir hver hann var, þrátt fyrir kraftaverkið kvöldið áður. Það var eins og þeir vildu ekki trúa.
53Þegar þeir komu til Genesaret hinum megin vatnsins stigu þeir á land og bundu bátinn.
54Fólk sem stóð þar hjá, þekkti hann undir eins, 55og hljóp um allt til að láta vita að hann væri kominn. Nú var hafist handa um að færa til hans veikt fólk á börum og dýnum. 56Hvar sem hann fór – í bæi eða borgir – lagði fólk hina veiku á markaðstorgin eða strætin og bað hann um að leyfa þeim að snerta, þó ekki væri nema faldinn á skikkju hans, og þeir sem það gerðu læknuðust, og hið sama gerðist á bóndabæjum þar sem hann kom.

Você sabia?
Ministério, Oposição e Milagres
- Quando Jesus ensinou na sinagoga de sua cidade natal, os moradores locais se escandalizaram com ele, identificando-o por sua profissão de carpinteiro e citando sua mãe Maria e seus irmãos Tiago, José, Judas e Simão.Fontes: o próprio texto bíblico · Mary (Mother of Jesus) · James (Brother of Jesus) · Simon
- João Batista foi preso e executado por Herodes Antipas após declarar que o casamento de Herodes com Herodias, a antiga esposa de seu irmão Filipe, não era lícito.Fontes: o próprio texto bíblico · Herod Antipas · Herodias · Philip
- Ao enviar os Doze discípulos de dois em dois pela Galileia, Jesus os instruiu a levar apenas um bordão e sandálias, dependendo inteiramente da hospitalidade dos lares que os recebessem.Fontes: o próprio texto bíblico · Galilee
Notas escritas com auxílio de IA a partir de fontes abertas (Theographic Bible Metadata, CC BY-SA 4.0; Easton’s Bible Dictionary, domínio público) e revisadas antes de publicar.
Lugares deste capítulo
- Nazareth · 32.702, 35.298 · versículo 1
- Galilee · 32.760, 35.527 · versículo 21
- Gennesaret · Hoje: El Ghuweir · 32.861, 35.507 · versículo 53
Só aparecem lugares com identificação de alta confiança (90% ou mais segundo as fontes acadêmicas reunidas pelo OpenBible). Mapa da época: DARE (Digital Atlas of the Roman Empire), CC BY 4.0; mapa atual: © colaboradores do OpenStreetMap; lugares: OpenBible.info (CC BY 4.0).
Créditos e licença desta tradução
Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Icelandic: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ (New Testament+) copyright © 1979, 1995 Biblica, Inc. Language: Íslenska (Icelandic) Contributor: Biblica, Inc. Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Creative Commons License Þetta verk er gert aðgengilegt samkvæmt CC BY-SA leyfinu (Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License). Til að skoða afrit af þessu leyfi skaltu fara á https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 eða senda bréf til Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, Bandaríkjunum. Biblica® er vörumerki skráð af Biblica, Inc., og notkun á Biblica® vörumerkinu krefst skriflegs leyfis Biblica, Inc. Samkvæmt skilmálum CC BY-SA leyfisins geturðu afritað og endurdreift þessu óbreyttu verki svo framarlega sem þú heldur Biblica® vörumerkinu óskertu. Ef þú breytir afriti eða þýðir þetta verk og býrð þannig til afleitt verk, verður þú að fjarlægja Biblica® vörumerkið. Á afleidda verkinu verður þú að tilgreina hvaða breytingar þú hefur gert og eigna verkið á eftirfarandi hátt: "Upprunalega verkið eftir Biblica, Inc. er fáanlegt ókeypis á www.biblica.com og open.bible ." Tilkynning um höfundarrétt verður að birtast á titla- eða höfundarréttarsíðu verksins sem hér segir: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. Þú verður einnig að gera afleidda verkið þítt aðgengilegt samkvæmt sama leyfi (CC BY-SA). Ef þú vilt láta Biblica, Inc. vita um þýðingu þína á þessu verki, vinsamlegast hafðu samband við okkur á https://open.bible/contact . This work is made available under the Creative Commons Attribution-ShareAlike 4.0 International License (CC BY-SA). To view a copy of this license, visit https://creativecommons.org/licenses/by-sa/4. 0 or send a letter to Creative Commons, PO Box 1866, Mountain View, CA 94042, USA. Biblica® is a trademark registered by Biblica, Inc., and use of the Biblica® trademark requires the written permission of Biblica, Inc. Under the terms of the CC BY-SA license, you may copy and redistribute this unmodified work as long as you keep the Biblica® trademark intact. If you modify a copy or translate this work, thereby creating a derivative work, you must remove the Biblica® trademark. On the derivative work, you must indicate what changes you have made and attribute the work as follows: “The original work by Biblica, Inc. is available for free at www.biblica.com and open.bible .” Notice of copyright must appear on the title or copyright page of the work as follows: Biblica® Opna Lifandi Orð Nýja testamentið og Sálmarnir™ Höfundarréttarvarið © 1979, 1995 af Biblica, Inc. Biblica® Open Icelandic Living New Testament and Psalms™ Copyright © 1979, 1995 by Biblica, Inc. “Biblica” er vörumerki skráð hjá bandarísku einkaleyfa- og vörumerkjaskrifstofunni af Biblica, Inc. Notað með leyfi. “Biblica” is a trademark registered in the United States Patent and Trademark Office by Biblica, Inc. Used with permission. You must also make your derivative work available under the same license (CC BY-SA). If you would like to notify Biblica, Inc. regarding your translation of this work, please contact us at https://open.bible/contact . This translation is made available to you under the terms of the Creative Commons Attribution Share-Alike license 4.0. You have permission to share and redistribute this Bible translation in any format and to make reasonable revisions and adaptations of this translation, provided that: You include the above copyright and source information. If you make any changes to the text, you must indicate that you did so in a way that makes it clear that the original licensor is not necessarily endorsing your changes. If you redistribute this text, you must distribute your contributions under the same license as the original. Pictures included with Scriptures and other documents on this site are licensed just for use with those Scriptures and documents. For other uses, please contact the respective copyright owners. Note that in addition to the rules above, revising and adapting God's Word involves a great responsibility to be true to God's Word. See Revelation 22:18-19. 2025-05-03
Fonte: http://ebible.org/isl/ · eBible.org